Ég er tilbúinn! Birkir Snær Brynleifsson skrifar 28. janúar 2026 09:15 Ég heiti Birkir Snær Brynleifsson, er 22 ára Hafnfirðingur, laganemi og formaður Orators og býð mig fram í 4. – 5. sætið í prófkjöri sjálfstæðismanna í Hafnarfirði hinn 7. febrúar næstkomandi. Ég er Hafnfirðingur í húð og hár, ann bænum mínum og get vart ímyndað mér betri stað til þess að búa á. Á nýjungum er ungs manns augað! Þrátt fyrir ungan aldur tel ég mig hafa reynslu, þekkingu og nógu sterka sannfæringu um hvar sé hægt að gera samfélagið okkar í Hafnarfirði enn betra með því að koma auga á nýjungar – því lengi má gott bæta. Það er gott að búa í Hafnarfirði. Sagt og staðið! Orð Gunnars Birgissonar, bæjarstjóra í Kópavogi, koma vissulega upp í hugann en hann sagði með sinni djúpri röddu „að það væri gott að búa í Kópavogi“. Þetta er það vel mælt hjá Gunnari að ég og fleiri teljum að þetta hljóti að vera tökufrasi frá gömlum gaflara. En að öllu gríni slepptu þá kann fólk að velta því fyrir sér hvort reynsla mín sé næg, enda er ég að stíga mín fyrstu skref í pólitík. Það eru eðlilegar vangaveltur. En því er til að svara að reynsla mín liggur einmitt í því að hafa verið virkur hluti af samfélagi okkar Hafnfirðinga þótt ungur sé að árum. Ég hef gengið hér í skóla og iðkað mínar tómstundir. Ég lærði á gítar í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, spilaði fótbolta með FH og handbolta með Haukum. Það er tvenna sem ekki margir geta státað af og hlýtur að teljast ágætur samnefnari í augum Hafnfirðinga þegar á hólminn er komið í bæjarpólitíkinni. Það að hafa alist upp í Hafnafirði og haft brennandi áhuga á samfélaginu í bænum hefur mótað mig og gefið mér skýra sýn á það hvernig það er að búa í Hafnarfirði, hvað bærinn hefur upp á að bjóða, og eftir hverju við unga fólkið sækjumst. Það er einmitt þetta sjónarhorn sem ég tel svo verðmætt – sjónarhorn ungs einstaklings sem þekkir skólakerfið, tómstundastarfið og hið daglega líf í bænum af eigin raun. Lífið er góður kennari. Það er út frá þeirri reynslu sem ég vil meta hvað sé gott og hvað megi betur fara. Þegar rætt er um velferð barna og ungmenna tel ég afar mikilvægt að tómstundastarf sé öflugt. Tómstundir gegna lykilhlutverki í félagslegum þroska barna, stuðla að heilbrigðu samfélagi og veita ungmennum tilgang og gleði. Því er sérstaklega ánægjulegt að frístundastyrkur hafi hækkað í 65.000 krónur árið 2026. En þegar horft er til málefna ungs fólks í heild skiptir máli að grunnstoðir samfélagsins séu sterkar. Árangur er aldrei endanlegur og það þarf hugrekki til að halda áfram. Uppbygging er lykilatriði í bæjarfélagi sem vill vaxa og blómstra. Hafnarfjörður hefur staðið sig vel en það er ekki sama hverjir stjórna; það er auðvelt að staðna og fara á mis við nýjungar. Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt fram á það í meirihluta að hröð uppbygging sem lagar sig að vilja bæjarbúa liggur í því að hafa einfalt regluverk og skilvirkt skipulag sem hægt er að treysta á og mætir þörfum bæjarbúa. Kerfið á að aðlagast fólkinu sem vinnur í því – ekki fæla það frá. Einfalt regluverk og minni afskipti stjórnvalda af atvinnurekstri eru þau grunngildi sem ég stend fyrir og hef alltaf gert. Ég trúi því að með áherslu á verðmætasköpun styrkjum við samfélagið í heild og að með hraðri, einfaldri og skilvirkri uppbyggingu komum við til móts við ungt fólk. Hafnarfjörður býr yfir stórkostlegum tækifærum sem mörg önnur bæjarfélög státa ekki af; tækifærum sem við megum hvorki hunsa né óttast að nýta. Ungt fólk vill setjast að í Hafnarfirði. Ég veit hvar hjörtu ungs fólks slá – og er tilbúinn! Tilbúinn til að leggja mig allan fram og vinna að framförum, nýjungum og heill þessa góða bæjarfélags sem ég hef alist upp í. Þess vegna bið ég um stuðning allra sjálfstæðismanna í Hafnarfirði í prófkjörinu 7. febrúar. Höfundur býður sig fram í 4. – 5. sætið í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar