Donni þarf líka að fara í aðgerð Ágúst Orri Arnarson skrifar 22. janúar 2026 08:32 Kristján Örn Kristjánsson, Donni, í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Vilhelm Kristján Örn Kristjánsson, sem datt út úr íslenska landsliðshópnum rétt fyrir EM í handbolta, þarf að gangast undir aðgerð vegna kviðslits.
Donni átti að fara með strákunum okkar á mótið en þegar liðið kom saman til æfinga í byrjun janúar varð honum ljóst að meiðslin væru alvarlegri en hann taldi upphaflega. Bakvörðurinn er kviðslitinn en hefur spilað í gegnum sársaukann á þessu tímabili. Oft er hægt að meðhöndla kviðslit með hvíld og endurhæfingu, en félagslið hans í Danmörku, Skanderborg, staðfesti að aðgerð væri nauðsynleg. „Við reyndum að meðhöndla sársaukann og það hefur virkað á löngum köflum, en að þessu sinni teljum við aðgerð vera besta lausnina til að leysa vandann“ sagði í tilkynningu félagsins. Ekki kemur fram hversu lengi Donni verður frá en reikna má með að minnsta kosti 1-2 mánaða endurhæfingu eftir svona aðgerð. Donni var sá fyrsti sem datt út úr íslenska landsliðshópnum en Elvar Örn Jónsson þurfti svo að draga sig úr hópnum í gær, eftir að hafa handarbrotnað í leiknum gegn Ungverjalandi í fyrradag. Elvar er á leið hingað til lands í aðgerð vegna brotsins.
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira