Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 18. janúar 2026 13:05 Pétur G. Markan, sem er bæjarstjóri Hveragerðisbæjar en 80 ára afmæli Hveragerðis er fagnað í ár með fjölbreyttum uppákomum. Magnús Hlynur Hreiðarsson Það verður mikið um að vera í Hveragerði á nýju ári því bæjarfélagið fagnar 80 ára afmæli sínu með fjölbreyttum afmælisviðburðum. Einn af hápunktum afmælisins verður heimsókn forseta Íslands í lok apríl.
Hveragerði er þekkt fyrir jarðhita, gróðurhúsarækt og lista- og menningarlíf. Formlegur afmælisdagur Hveragerðisbæjar er 29. apríl en þann dag var fyrsti fundur bæjarstjórnar og bærinn varð formlega að sjálfstæðu sveitarfélagi. Forseti Íslands mun heimsækja bæinn á afmælisdaginn sjálfan, 29. apríl. Það verður fjölbreytt afmælisdagskrá í boði allt árið eins og Pétur G. Markan, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar veit manna best. „Það er náttúrulega bara stórafmæli og mikill áfangi, sem við ætlum að fagna yfir allt árið með alls konar stórum viðburðum. taka nýtt skilti í gagnið og bæjarhátíðin verður náttúrulega með glæsilegum brag þetta árið og svo eigum við von á því að taka á móti forseta Íslands á afmælisdaginn sjálfan,” segir Pétur. Gengur vel að undirbúa hátíðina eða hvað? „Já Það gengur vel og Það er bara eins og annað hjá okkur þessa dagana, það gengur vel og það er mikill uppgangur og ofboðslegur drífandi í Hvergerðingum þannig að það er bjart yfir,” segir bæjarstjórinn. Íbúar í Hveragerði eru í kringum 3500 og fer fjölgandi en fólksfjölgun hefur verið að meðaltali milli 3 og 4 % síðustu ár. Stefna bæjarins þetta kjörtímabilið er að byggja upp og tryggja byggðagæði og einstakt umhverfi í stað þess að einblína einvörðungu á vöxt í íbúafjölda. „Það er það, sem við leggjum mikla áherslu á í Hveragerði að þetta sé gæðahreiður og gæðasamfélag, gæðaþjónusta og það er það, sem gengur upp,” segir Pétur. Í dag búa um 3.500 manns í Hveragerði og fer íbúum sífellt fjölgandi. Blómstrandi dagar er bæjarhátíð íbúa og verður hún væntanlega sérstaklega glæsileg í sumar vegna 80 ára afmælisins.Magnús Hlynur Hreiðarsson Og bæjarstjórinn og bæjarbúar eru í afmælisskapi. „Já, það heldur betur og kannski dagskráin ber með sér hvað það er í rauninni spennandi um að vera allt saman í Hveragerði,” segir Pétur að lokum. Heimasiða Hveragerðisbæjar
Hveragerði Forseti Íslands Tímamót Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira