Kallar eftir upplýsingum um kínverska strætisvagna á Íslandi Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 15. janúar 2026 16:02 Þórdís Kolbrún vill vita hvort og þá hvernig íslensk stjórnvöld hafa brugðist við vegna strætisvagna frá kínverskum framleiðanda í eigu og umsjón hins opinbera hér á landi. Vísir/Strætó Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kallar eftir svörum frá innviðaráðherra um strætisvagna á Íslandi frá kínverska framleiðandanum Yutong. Fyrirspurnina leggur Þórdís fyrir ráðherrann á Alþingi, í framhaldi af fréttum frá Norðurlöndum þar sem bent hefur verið á möguleika þess að framleiðandinn kínverski gæti haft áhrif á virkni vagnanna með rafrænum hætti. Þórdís vill vita hversu margir vagnar frá framleiðendanum eru í umferð hjá hinu opinbera og hvort stjórnvöld hér á landi hafi með einhverjum hætti brugðist við.
Í haust bárust fréttir frá Noregi um að almannasamgöngufyrirtæki þar í landi hafi varað yfirvöld við því að Kínverjar geti fjarstýrt rafmagnsvögnum sem eru notaðir á götum höfuðborgarinnar Osló. Strætó á höfuðborgarsvæðinu notar sömu kínversku vagnana hér á Íslandi. Um það skapaðist mikil umræða í Noregi þegar greint var frá niðurstöðum leynilegrar rannsóknar sem gerð var á öryggi strætisvagna síðasta sumar. Þegar tveir vagnar, einn framleiddur í Evrópu en hinn í Kína, voru teknir í sundur kom í ljós að framleiðandi kínverska vagnsins gat tekið yfir stjórn vagnsins úr fjarska, þar á meðal stjórn á rafhlöðu og rafmagnsstýribúnaði. Í framhaldinu brást Jon-Ivar Nygård, samgönguráðherra Noregs við, og sagðist myndu láta vinna ítarlegt áhættumat á notkun almenningsvagna frá löndum sem Noregur á ekki í öryggissamstarfi við. Þá hafa Danir jafnframt gert ráðstafanir vegna sambærilegra vagna í Danmörku. Vísir greindi frá því fyrr í vetur að Strætó á höfuðborgarsvæðinu rekur fimmtán Yutong-rafmagnsvagna. Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, sagðist þá hafa átt símafund með norskum og dönskum kollegum um málið, stöðuna og næstu skref. Vagnarnir sem séu í notkun hér á landi séu frá 2018 og 2019. „Þær upplýsingar sem við höfum er að það er mjög lítið annað hægt að gera en að stoppa þá ef eitthvað slíkt kemur upp. Það á á engan hátt að vera hægt að stýra þeim samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum,“ sagði Jóhannes. Í fyrirspurninni spyr Þórdís Eyjólf Ármannsson innviðaráðherra, sem Inga Sæland reyndar leysir af um þessar mundir, annars vegar um það hversu margir strætisvagnar frá Yutong eru í eigu eða notkun hjá opinberum aðilum hér á landi, til dæmis hjá Strætó bs. Í öðru lagi spyr Þórdís hvort hérlend stjórnvöld hafi „farið að dæmi stjórnvalda í nágrannaríkjum og brugðist við fregnum af þeim eiginleika nefndra strætisvagna að framleiðandi geti haft áhrif á virkni einstakra vagna með rafrænum hætti?“ Og ef svo er vill Þórdís jafnframt vita hvernig stjórnvöld hafa brugðist við, og ef ekki, þá hvers vegna ekki hafi verið brugðist við.
Kína Öryggis- og varnarmál Strætó Samgöngur Tækni Alþingi Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Fleiri fréttir Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Sjá meira