Andspyrna á Íslandi sé hvatning fyrir þau sem heima eru Lovísa Arnardóttir skrifar 31. mars 2026 06:47 Hópurinn kom saman á Austurvelli og færði sig svo á veitingahús. Devin Kuchcinski Hópurinn Indivisible Iceland boðaði til mótmæla á Austurvelli síðustu helgi til að mótmæla aðgerðum Trump í Bandaríkjunum og víða um heim. Um átta milljónir manns tóku þátt í svipuðum No Kings-mótmælum víða um Bandaríkin síðustu helgi. „
Hver dagur virðist færa með sér nýja bylgju óskiljanlegs hryllings frá Trump-stjórninni,“ segir í yfirlýsingu frá hópnum sem hittist síðdegis á laugardag á Austurvelli. „Þótt það sé skylda okkar sem heimsborgara að fylgjast með hryllingnum verðum við einnig að leita gleðinnar með virkum hætti. Gleðin er bæði leiðarljós í myrkrinu og mótstaða sem grefur undan. Gleðin minnir okkur á það sem er þess virði að berjast fyrir og gefur okkur von um heim sem getur orðið,“ segir enn fremur í yfirlýsingunni en á Austurvelli fögnuðu þau fjölbreyttum hópi innflytjenda á Íslandi. Eftir fundinn á Austurvelli færðu þau sig á veitingastaðinn Mama Reykjavík. Hópurinn sem stóð fyrir mótmælunum á Íslandi boðaði fyrr á árinu til kertafleytingar þegar Trump hafði verið forseti í eitt ár og hefur reglulega mótmælt aðstæðum í Bandaríkjunum á No Kings-samstöðufundum og mótmælum þar sem fólk var hvatt til að sniðganga Tesla. Þá hefur hópurinn tekið þátt í Gleðigöngunni. Forsetinn teiknaður í snjóinn. Devin Kuchcinski Sjá sér ekki fært að heimsækja Bandaríkin Kalere Adele Payton er einn Bandaríkjamannanna sem eru búsettir á Íslandi sem standa fyrir viðburðinum. Indivisible Iceland samanstendur af Bandaríkjamönnum sem búa á Íslandi, stuðningsneti og fjölskyldum þeirra. Hún segir mörg í hópnum ekki sjá sér fært að heimsækja Bandaríkin á meðan Trump-stjórnin er við völd en þau finni sig knúin til að berjast gegn stjórn hans og mótmæla. Kalere Adele Payton segir foreldra sína hafa barist fyrir mannréttindum og hún vilji ala sín börn upp með sama hætti. Vísir/Lýður Valberg „Hugmyndin um að koma svona saman til að staðfesta það sem er í gangi er svo magnað og ég held að þetta sé hluti af andstöðunni. Svona samstaða kemur í veg fyrir að fólk aftengist og upplifi sinnuleysi og tilfinningadeyfð,“ segir Kalere. Þegar fólk komi saman sjái það að fleirum líði eins og þeim og það skipti verulegu máli. „Það er samfélag fólks sem er umhugað um þetta og við verðum bara að halda áfram að láta þetta okkur varða,“ segir hún og þannig komi þau í veg fyrir að örvænting heltaki þau. Kalere segir ástandið verulega erfitt og jafnvel þó að hún sé ein þeirra sem skipuleggi viðburðina hafi hún, og aðrir í teyminu, varla haft dug í það í þetta sinn. Það hafi margt gerst síðustu mánuði, eins og innrás í Íran. Hópurinn vill enga kónga. Devin Kuchcinski „Okkur leið ekkert sérstaklega vel og fundum ekki til mikillar hamingju, og það tengist fréttunum og því sem er að gerast, en á sama tíma vitum við að það er enn mikilvægara að halda áfram. Jafnvel þó það sé ekki „happy“ þá er það mjög mikilvægt og mér líður eins og samfélag Bandaríkjamanna hér hafi um leið viðurkennt að þetta hafi verið rétt. Þau voru svo glöð að fá þetta rými.“ Hún segir að þó svo að viðburðurinn sé aðeins eitt stykki í púslinu haldi það fólki við efnið. „Þannig getur það haldið áfram að sinna þessari vinnu, sem er svo mikilvæg.“ Mikilvægt að kenna börnunum um réttindi Hún segir foreldra sína hafa barist fyrir borgaralegum réttindum fólks í Bandaríkjunum og það hafi því verið stór partur af hennar uppeldi, hún vilji ala börnin sín upp með sama hætti. Hún segist þó hafa fullan skilning á því að fólki finnist þessar aðstæður yfirþyrmandi. „Ég held að mikilvægi þessara mótmæla sé að í stað þess að reyna að forðast óttann, sorgina, reiðina og hneykslunina sem við finnum fyrir, séum við að reyna að skapa tækifæri fyrir samfélagið til að koma saman og vinna úr þessum tilfinningum,“ segir hún. Bandaríkjamenn virkir á Íslandi Eitt af verkfærum Trump-ríkisstjórnarinnar hafi verið blekking og lygar og þau vilji standa með sannleikanum. „Það er mjög virkur hópur á Facebook fyrir bandaríska ríkisborgara á Íslandi og margir hafa lýst yfir þakklæti fyrir að við séum að skipuleggja þessa viðburði og að þeir eigi sér stað,“ segir hún. Kalere segist líta þannig á að þó svo að þau séu lítill hópur í litlu landi getur andspyrna þeirra virkað sem hvatning fyrir þau sem heima eru. No Kings mótmæli fóru fram víða um Bandaríkin um helgina. Devin Kuchcinski „Þegar við birtum myndir af viðburðum okkar í hópum fáum við þúsundir „like“-a, hundruð deilinga frá fólki og athugasemdir frá fólki sem segir þúsund þakkir fyrir að líta ekki undan. Þúsund þakkir fyrir að standa með okkur. Og ég held að þessi samstöðutilfinning sé svo mikilvæg. Saman held ég að við getum gert eitthvað áhrifamikið. Við erum lítil en öflug.“ Kalere hefur ekki farið aftur heim frá því að Trump var kjörinn aftur og hefur ekki í hyggju að gera það. Hún segir orðfæri Trump og liðsfélaga hans vekja hjá sér miklar áhyggjur. Erfið orðræða „Orðræða stjórnvalda núna er mjög mikið á þá leið að ef þú ert ekki sammála okkur, þá ertu óvinur okkar. Ef þú ert ekki sammála okkur, þá ertu öfgamaður og hryðjuverkamaður. Þetta er orðræðan sem kemur fram,“ segir hún og að aukin almenn hervæðing valdi henni einnig miklum áhyggjum. Hópurinn stóð fyrir kertafleytingu við upphaf árs þegar Trump hafði verið við völd í eitt ár. Vísir/Lýður Valberg Hún segir aðgerðir Trump víða um heim valda henni áhyggjum og vekja hjá henni reiði. „En þetta er líka mjög dæmigert fyrir þessa ríkisstjórn. Þau halda að reglurnar eigi ekki við um þau og þeim er alveg sama um alþjóðalög, um milliríkjasambönd til langs tíma.“ Hópurinn vill enga kónga. Devin Kuchcinski Fréttin hefur verið lagfærð vegna endurtekninga. Hægt er að fylgjast með aðgerðum hópsins í Facebook-hópi.
Bandaríkin Donald Trump Reykjavík Tengdar fréttir Fólk ekki fasistar þó það eigi Teslu Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata, segir mótmæli sem hún tók þátt í fyrir framan umboð Tesla í Vatnagörðum um helgina ekki beinast gegn eigendum Teslu bíla eða starfsfólki fyrirtækisins heldur Elon Musk, stærsta eigenda þess. 25. mars 2025 15:04 Talið að milljónir mótmæli Bandaríkjaforseta Yfir þrjú þúsund mótmælaviðburðir gegn forsetanum Donald Trump hafa verið skipulagðir víða í Bandaríkjunum í dag og viðbúið er að milljónir sæki þá. 28. mars 2026 14:55 Gríðarlegur fjöldi á No Kings mótmælunum Búist er við að milljónir manna flykkist út á götur bandarískra borgra til að taka þátt í mótmælum gegn ríkisstjórn Donald Trumps. Samtökin No Kings eru að baki mótmælunum en þau héldu einnig gríðarstór mómtæli í júní. 18. október 2025 17:25 Mest lesið Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Fleiri fréttir Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Sjá meira
Fólk ekki fasistar þó það eigi Teslu Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata, segir mótmæli sem hún tók þátt í fyrir framan umboð Tesla í Vatnagörðum um helgina ekki beinast gegn eigendum Teslu bíla eða starfsfólki fyrirtækisins heldur Elon Musk, stærsta eigenda þess. 25. mars 2025 15:04
Talið að milljónir mótmæli Bandaríkjaforseta Yfir þrjú þúsund mótmælaviðburðir gegn forsetanum Donald Trump hafa verið skipulagðir víða í Bandaríkjunum í dag og viðbúið er að milljónir sæki þá. 28. mars 2026 14:55
Gríðarlegur fjöldi á No Kings mótmælunum Búist er við að milljónir manna flykkist út á götur bandarískra borgra til að taka þátt í mótmælum gegn ríkisstjórn Donald Trumps. Samtökin No Kings eru að baki mótmælunum en þau héldu einnig gríðarstór mómtæli í júní. 18. október 2025 17:25