Hildur Björnsdóttir óskoraður oddviti í Reykjavík Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 6. janúar 2026 16:43 Hildur Björnsdóttir hefur verið og mun verða oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Vísir/Anton Brink Hildur Björnsdóttir verður áfram oddviti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í borgarstjórnarkosningum 16. maí næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Verði, fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.
Líkt og Vísir greindi frá í morgun hyggst Guðlaugur Þór Þórðarson ekki bjóða sig fram gegn Hildi. Hann sagðist ekki vilja ala á flokkadráttum í Sjálfstæðisflokknum og sagðist styðja Hildi. Þrálátur orðrómur hafði verið uppi um marga mánaða skeið að hann myndi bjóða sig fram. „Yfirkjörstjórn Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík úrskurðaði framboð hennar í fyrsta sæti gilt síðdegis í dag. Aðeins eitt framboð barst í fyrsta sæti svo að ekki kemur til leiðtogaprófkjörs eins og til stóð,“ segir í tilkynningunni. „Framundan er kosning kjörnefndar Varðar sem fram fer í næstu viku og verður nánar auglýst í þessari viku. Kjörnefndin hefur það hlutverk að gera tillögu að framboðslista til Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.“ Greint var frá því um helgina að fylgi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hefði aukist um tvö prósentustig milli mánaða, samkvæmt könnun Gallup. Flokkurinn undir leiðsögn Hildar mældist með 35,5 prósent fylgi og gæti ef kosningar fara svo í maí myndað meirihluta með Viðreisn og Miðflokknum. Hildur sagði í samtali við Vísi fyrr í dag að þau Guðlaugur Þór hafi átt í góðu samtali undanfarið, líkt og mörg ár á undan, en ákvörðun um að gefa ekki kost á sér hafi alfarið verið hans. Hún kvaðst ekki myndu sakna þess að fara í hressandi oddvitaslag við Guðlaug Þór og sagðist full tilhlökkunar til að taka þátt í kosningunum í vor. „Sjálfstæðisflokkurinn er auðvitað langstærsti flokkur landsins, við höfum gríðarlegan styrk á sveitarstjórnarstiginu og erum full tilhlökkunar til að eiga samtal við íbúa um land allt fyrir komandi kosningar. Við erum auðvitað í dauðafæri í borginni. Ítrekaðar mælingar benda til þess að það sé skýrt ákall eftir breytingum í borginni og vilji til þess að Sjálfstæðisflokkurinn leiði þær breytingar. Við finnum til ábyrgðar og erum reiðubúin að vinna fyrir fólkið í borginni.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík Borgarstjórn Tengdar fréttir Sjálfstæðisflokkurinn í 35 prósentum Fylgi Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn jókst um tvö prósentustig milli mánaða og nemur nú 35 prósentum í könnun Gallup frá því í desember. Samfylkingin tapar þremur prósentustigum. Sjálfstæðismenn gætu myndað borgarstjórnarmeirihluta með Viðreisn og Miðflokknum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur mest fengið um 34 prósenta kosningu frá því eftir hrun. 3. janúar 2026 12:01 „Við Guðlaugur Þór erum góðir vinir“ Allt lítur út fyrir að Hildur Björnsdóttir verði oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í borgarstjórnarkosningum í vor, eftir að Guðlaugur Þór Þórðarson tilkynnti í morgun að hann myndi ekki fara í oddvitaslag við hana. „Við Guðlaugur Þór erum góðir vinir og höfum átt gott samstarf sem oddvitar í Reykjavík. Hann hefur verið öflugur þingmaður Reykvíkinga og það er eðlilegt að margir hafi skorað á hann. En hann hefur nú lýst yfir fullum stuðningi við mig í baráttunni fram undan og það er auðvitað ómetanlegt fyrir mig. Við Sjálfstæðismenn göngum sameinuð til kosninga í vor,“ segir hún. 6. janúar 2026 12:13 Guðlaugur fer ekki fram í Reykjavík Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar ekki í framboð í Reykjavík. Hann vísar í færslu í flokkadrætti innan flokksins sem hafi verið erfiðir. Hann hafi íhugað málið vandlega eftir fjölda áskoranna en ákveðið að fara ekki fram. Hann segir margt benda til þess að Reykvíkingar séu komnir með nóg og það séu mörg sóknarfæri fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Flokkurinn hefur í síðustu könnunum mælst sá stærsti í borginni. 6. janúar 2026 09:08 Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Sjá meira
Sjálfstæðisflokkurinn í 35 prósentum Fylgi Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn jókst um tvö prósentustig milli mánaða og nemur nú 35 prósentum í könnun Gallup frá því í desember. Samfylkingin tapar þremur prósentustigum. Sjálfstæðismenn gætu myndað borgarstjórnarmeirihluta með Viðreisn og Miðflokknum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur mest fengið um 34 prósenta kosningu frá því eftir hrun. 3. janúar 2026 12:01
„Við Guðlaugur Þór erum góðir vinir“ Allt lítur út fyrir að Hildur Björnsdóttir verði oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í borgarstjórnarkosningum í vor, eftir að Guðlaugur Þór Þórðarson tilkynnti í morgun að hann myndi ekki fara í oddvitaslag við hana. „Við Guðlaugur Þór erum góðir vinir og höfum átt gott samstarf sem oddvitar í Reykjavík. Hann hefur verið öflugur þingmaður Reykvíkinga og það er eðlilegt að margir hafi skorað á hann. En hann hefur nú lýst yfir fullum stuðningi við mig í baráttunni fram undan og það er auðvitað ómetanlegt fyrir mig. Við Sjálfstæðismenn göngum sameinuð til kosninga í vor,“ segir hún. 6. janúar 2026 12:13
Guðlaugur fer ekki fram í Reykjavík Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar ekki í framboð í Reykjavík. Hann vísar í færslu í flokkadrætti innan flokksins sem hafi verið erfiðir. Hann hafi íhugað málið vandlega eftir fjölda áskoranna en ákveðið að fara ekki fram. Hann segir margt benda til þess að Reykvíkingar séu komnir með nóg og það séu mörg sóknarfæri fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Flokkurinn hefur í síðustu könnunum mælst sá stærsti í borginni. 6. janúar 2026 09:08