Samgöngumálið sem ríkisstjórnin talar ekki um Marko Medic skrifar 16. desember 2025 11:31 Sem íbúi utan höfuðborgarsvæðisins verð ég að velta fyrir mér hvort ríkisstjórnin viti að það eru til Íslendingar sem búa ekki í Reykjavík. Vegagerðin hefur kynnt nýja áætlun um almenningssamgöngur á landsbyggðinni sem á að taka gildi 1. janúar næstkomandi. Því miður felur þessi áætlun í sér verulegar skerðingar sem munu hafa neikvæð áhrif á stóran hóp fólks á landsbyggðinni, bæði hvað varðar menntun, atvinnu og daglegt líf. Tvær leiðir standa þar sérstaklega upp úr vegna alvarlegra áhrifa: leið 55 (Keflavík – BSÍ) og leið 81 (Borgarnes – Reykholt). Á leið 81 er fyrirhugað að fækka ferðum úr daglegum ferðum alla virka daga niður í aðeins þrjá daga í viku, mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga. Fyrir íbúa Reykholts þýðir þetta að reglulegar og öruggar samgöngur hverfa nánast með öllu. Á leið 55 eru fyrirhugaðar breytingar sem fela í sér að strætóskýlum í Reykjanesbæ verður fækkað úr átta niður í tvö. Afleiðingin er sú að tvö stór hverfi, Keflavík og Ásbrú, verða án strætóskýla. Íbúar þessara hverfa þurfa þá að ganga í meira en klukkustund til að komast að næstu stoppistöð. Það getur varla talist raunhæfur kostur fyrir nemendur, eldra fólk eða þá sem treysta á almenningssamgöngur í daglegu lífi. Svo á að fresta brottför leiðar 55 frá Reykjavík til Reykjaness, þar á meðal Reykjanesbæjar, Vogafleggjara og Grindavíkurafleggjara, um tvær klukkustundir – úr kl. 14 í kl. 16. Þetta setur nemendur og atvinnufólk í erfiða stöðu, þar sem valkostirnir verða í raun aðeins tveir: að bíða í tvo auka tíma eftir ferð heim eða kaupa sér miða í strætó á höfuðborgarsvæðinu og skipta um leiðir til að komast til Hafnarfjarðar. Afleiðingar þessarar áætlunar eru augljósar. Hún mun takmarka aðgang að menntun, draga úr atvinnutækifærum og fæla grunn- og framhaldsskólanemendur sem búa á landsbyggðinni frá því að sækja nám á höfuðborgarsvæðinu. Umhverfisáhrifin, sem stjórnvöld elska að tala um, eru einnig neikvæð þar sem íbúar landsbyggðarinnar eru síður líklegir til að eiga rafbíla en íbúar höfuðborgarsvæðisins. Áætlunin gengur jafnframt þvert gegn menntunarstefnu stjórnvalda til 2030, þar sem skýrt er tekið fram að búseta eigi ekki að hafa áhrif á möguleika fólks til náms og að bæta eigi samgöngur til að tryggja jafnan aðgang að menntun, óháð búsetu. Reykjanesbær er sveitarfélag með um 25.000 íbúa, sambærilegt að stærð við Garðabæ og Seltjarnarnes samanlagt, á um 10 ferkílómetra svæði. Þetta er einn af stærri bæjum landsins. Ég hef rætt þessi mál við alþingismenn úr Miðflokknum, Framsóknarflokknum, Sjálfstæðisflokknum og Viðreisn. Allir lýstu þeir yfir andstöðu við áætlunina og áhyggjum, líkt og bæjarstjórnir í Reykjanesbæ og Borgarnesi. Ég reyndi að ná sambandi við innviðaráðherra, forsætisráðherra og menntamálaráðherra en fá voru svörin. Sú þögn talar sínu máli. Að lokum hefur Hilmar Stefánsson, forstöðumaður almenningssamgangna hjá Vegagerðinni, bent á að nauðsynlegt sé að fækka stoppistöðvum til að spara fé. Maður verður að setja spurningamerki við þær fullyrðingar á meðan ráðherrar tilkynna okkur reglulega um verkefni í útlöndum sem þeir eru að styrkja um hundruði milljóna. Það er því eðlilegt að spyrja hvort forgangsröðun stjórnvalda sé rétt, þegar atvinna, menntun og samgöngur fólks á Íslandi virðast víkja. Ég segi allavega: Ísland fyrst, svo allt hitt. Höfundur er nemandi í Fjölbrautaskóla í Garðabænum, býr á Reykjanesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar