Stelpurnar okkar byrja á erfiðasta glugga sögunnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. nóvember 2025 10:30 Sveindís Jane Jónsdóttir á ferðinni með boltann í umspilsleiknum á móti Norður-Írlandi þar sem íslenska liðið tryggði sér áframhaldandi veru í A-deildinni. Vísir/Anton Brink Marsglugginn á nýju ári verður án efa erfiðasti gluggi íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta frá upphafi. Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta lenti í algjörum martraðarriðli í undankeppni HM 2027 enda í riðli með bæði heimsmeisturum Spánar og Evrópumeisturum Englands. Undankeppni fer fram frá mars til júní á næsta ári og Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur nú staðfest leikjaniðurröðun í riðlum A-deildar kvenna í undankeppni HM 2027. Stelpurnar okkar þurfa að byrja á tveimur erfiðustu leikjunum því Ísland byrjar á tveimur útileikjum í mars, gegn Spáni og Englandi. Á sama tíma og íslensku stelpurnar heimsækja heimsmeistarana á Spáni þá spilar England útileik á móti Úkraínu áður en þær taka á móti Íslandi fjórum dögum síðar. Tveir heimaleikir verða í landsliðsglugganum í apríl, gegn Úkraínu og Englandi. Áður en ensku stelpurnar koma til Íslands þá fá þær heimsmeistara Spánar í heimsókn. Íslensku stelpurnar enda svo á útileik gegn Úkraínu og heimaleik gegn Spáni í júní. Spænska landsliðið spilar heimaleik við England fjórum dögum áður en liðið kemur til Íslands.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta lenti í algjörum martraðarriðli í undankeppni HM 2027 enda í riðli með bæði heimsmeisturum Spánar og Evrópumeisturum Englands. Undankeppni fer fram frá mars til júní á næsta ári og Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur nú staðfest leikjaniðurröðun í riðlum A-deildar kvenna í undankeppni HM 2027. Stelpurnar okkar þurfa að byrja á tveimur erfiðustu leikjunum því Ísland byrjar á tveimur útileikjum í mars, gegn Spáni og Englandi. Á sama tíma og íslensku stelpurnar heimsækja heimsmeistarana á Spáni þá spilar England útileik á móti Úkraínu áður en þær taka á móti Íslandi fjórum dögum síðar. Tveir heimaleikir verða í landsliðsglugganum í apríl, gegn Úkraínu og Englandi. Áður en ensku stelpurnar koma til Íslands þá fá þær heimsmeistara Spánar í heimsókn. Íslensku stelpurnar enda svo á útileik gegn Úkraínu og heimaleik gegn Spáni í júní. Spænska landsliðið spilar heimaleik við England fjórum dögum áður en liðið kemur til Íslands. Leikjaniðurröðun í undankeppni HM 2027: 3. mars Spánn - Ísland 7. mars England - Ísland 14. apríl Ísland - Úkraína 18. apríl Ísland - England 5. júní Úkraína - Ísland 9. júní Ísland - Spánn
Leikjaniðurröðun í undankeppni HM 2027: 3. mars Spánn - Ísland 7. mars England - Ísland 14. apríl Ísland - Úkraína 18. apríl Ísland - England 5. júní Úkraína - Ísland 9. júní Ísland - Spánn
HM 2027 í Brasilíu Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Uppgjörið: Króatía - Ísland 0-4 | Systur á skotskónum í sannfærandi sigri Fótbolti Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfirvinnu Sport Reikna með Kane en vita ekki hvenær Körfubolti Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Sport Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Fleiri fréttir Systraþrenna og Ísland er skrefi nær HM: „Ég var smá stressuð“ Leik lokið: Króatía - Ísland 0-4 | Systur á skotskónum í sannfærandi sigri Njarðvík - Tindastóll | Gestirnir koma heitir frá Evrópu Ronaldo í bann hjá Portúgal Systurnar saman í byrjunarliði Íslands „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Mourinho tekur upp hanskann fyrir Mbappe „Ef ég myndi segja allar þá myndi fólk halda að ég væri klikkuð“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Ungu strákarnir okkar slást við Grikki um sæti á EM Í tveggja leikja bann fyrir að kippa í hárið Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Siggi Raggi saknar barnanna og gefur íslenskum liðum undir fótinn Sluppu við herskyldu en fögnuðu of mikið Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Sjá meira