Umferðarslys á Fagradal og veginum lokað Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 22. október 2025 14:52 Lögreglan á Austurlandi varar við slæmri færð víða á vegum í umdæminu. Vísir/Vilhelm Veginum um Fagradal hefur verið lokað vegna umferðarslyss sem þar varð síðdegis í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Austurlandi standa enn yfir aðgerðir á vettvangi og hafa sjúkrabílar sótt slasað fólk á vettvang en ekki er talið að um alvarleg meiðsl sé að ræða, þó einhver. Nokkur vetrarfærð er á svæðinu og hefur fjallvegum í nágrenninu einnig verið lokað vegna ófærðar.
Þetta staðfetir Hjalti Bergmann Axelsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi í samtali við Vísi. „Það varð þarna umferðarslys rétt fyrir tvö í dag. Það liggur ekki fyrir alvarleiki meiðsla, en það virðist vera ekki alvarleg meiðsli en þó einhver. Ég veit ekki hversu margir voru fluttir með sjúkrabílum til skoðunar hjá lækni, mitt fólk er ennþá uppi á Fagradalnum að vinna í þessu,“ segir Hjalti, en tilkynnt var um árekstur þegar útkallið barst. Sjá einnig: Víða vetrarfærð, Fjarðarheiði lokuð og björgunarsveitir aðstoða fólk Færðin sé ekki eins og best verður á kostið. „Það er skafrenningur og éljagangur uppi á fjallvegunum og skyggnið misgott á köflum. Fjarðaheiðin er lokuð og hefur gengið að mestu leyti ágætlega þar þrátt fyrir allt og allt. En við vonumst nú til þess að veðrið gangi niður þegar líður fram á kvöldið.“ Sjúkrabílar og aðrir viðbragðsaðilar komist þó til og frá vettvangi. Það sé ekki ófært um veginn en þó nokkuð blint og tilefni til að fara varlega yfir. „Við hvetjum ökumenn til að fara varlega og eins að huga að skóbúnaðinum, huga að því að vera á réttum dekkjum til að fara á milli landshluta og byggðakjarna,“ segir Hjalti.
Umferð Samgönguslys Fjarðabyggð Lögreglumál Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Sjá meira