Barcelona vill fá Rashford á tombóluverði Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 23. september 2025 20:02 Kann vel við sig í Katalóníu. Koji Watanabe/Getty Images Enski framherjinn Marcus Rashford hefur farið ágætlega af stað með Spánarmeisturum Barcelona. Hann er þar á láni frá Manchester United og hefur spænska félagið forkaupsrétt á leikmanninum næsta sumar. Það vonast til að fá hann á enn lægra verði en upphaflega samið var um.
Rashford, sem verður 28 ára í október, var á láni hjá Aston Villa á síðari hluta síðasta tímabils. Þar stóð hann sig nægilega vel til að Villa vildi kaupa hann en það gekk ekki eftir vegna fjárhagsvandræða félagsins sem og að Rashford sjálfur var ákveðinn í að ganga til liðs við spænska stórveldið. Talað var um að Aston Villa hefði getað keypt leikmanninn á 40-45 milljónir punda en nú virðist sem Barcelona stefni á að fá Rashford í sínar raðir fyrir töluvert lægri upphæð. ESPN greinir frá að Barcelona geti keypt hann frá Man United á 35 milljónir punda eða 5,7 milljarða íslenskra króna. Þar sem Börsungar vita að Man United vill losna við Rashford af launaskrá og að sama skapi ekki missa hann frítt eru þeir tilbúnir að borga 26 milljónir punda eða 4,2 milljarða íslenskra króna. Jafnframt herma heimildir ESPN að Rashford vilji hvergi annars staðar vera en í Katalóníu. Hann er samningsbundinn Man Utd til sumarsins 2028 og því spurning hvað gerist næsta sumar, ef til vill tekur United sénsinn og reynir að selja hann til hæstbjóðandi. Miðað við hvernig félaginu hefur gengið að selja leikmenn undanfarin ár eru þó engar líkur á því.
Fótbolti Enski boltinn Spænski boltinn Tengdar fréttir Mætti tveimur mínútum of seint og var settur á bekkinn Hansi Flick, knattspyrnustjóri Barcelona, gefur engan afslátt þegar kemur að stundvísi. Það hefur komið í ljós á síðustu dögum. 22. september 2025 14:16 Sjáðu glæsimark Rashford gegn Newcastle og öll hin Marcus Rashford skoraði sín fyrstu mörk fyrir Barcelona þegar liðið bar sigurorð af Newcastle United, 1-2, í Meistaradeild Evrópu í gær. 19. september 2025 08:30 Mest lesið Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan Íslenski boltinn Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Sjá meira
Mætti tveimur mínútum of seint og var settur á bekkinn Hansi Flick, knattspyrnustjóri Barcelona, gefur engan afslátt þegar kemur að stundvísi. Það hefur komið í ljós á síðustu dögum. 22. september 2025 14:16
Sjáðu glæsimark Rashford gegn Newcastle og öll hin Marcus Rashford skoraði sín fyrstu mörk fyrir Barcelona þegar liðið bar sigurorð af Newcastle United, 1-2, í Meistaradeild Evrópu í gær. 19. september 2025 08:30