Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Auðun Georg Ólafsson skrifar 20. júní 2025 12:49 Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að áhættan fyrir fyrirtækin að taka þátt í hópmálssókninni sé lítil sem engin. Vísir Nálægt hundrað íslensk hótel og gistiheimili taka þátt í hópmálsókn gegn Booking.com vegna misnotkunar þess á markaðsráðandi stöðu. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunar á ekki á von á að Booking refsi fyrirtækjunum fyrir það sækja rétt sinn. „
Við höfum orðið vör við töluverðan áhuga hjá fyrirtækjunum sem eru að skoða núna að taka þátt,“ segir Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. „Við höfum fengið mikið af fyrirspurnum frá rekstraraðilum sem eru að velta þessu fyrir sér. Við sjáum það líka í samantekt hjá þeim sem sjá um þetta í Evrópu að það fer að nálgast hundrað íslensk fyrirtæki sem hafa skráð sig til þátttöku í málssókninni þannig að það er töluverður áhugi.“ Fyrirtækin verða þá hluti af hópmálsókn með nokkur þúsund evrópskum gistifyrirtækjum. Málið verður höfðað í Hollandi gegn Booking. Jóhannes telur góðar líkur til þess að dómurinn samþykki kröfurnar. Þeir sem standa að hópmálsókninni eru bjartsýnir á að hún geti skilað góðri niðurstöðu. Misnotkun á markaðsráðandi stöðu Evrópudómstóllinn úrskurðaði í fyrra að svokallaðar verðjöfnunarklásúlur Booking hafi verið ólöglegar á árunum 2004 til 2024. Fyrirtæki sem voru í viðskiptum við Booking á þeim tíma hafi þessvegna orðið fyrir misnotkun á markaðsráðandi stöðu fyrirtækisins. Hugmyndin að málsókninni, sem Samtök ferðaþjónustunnar; evrópsku hagsmunasamtökin HOTREC og yfir 25 landssamtök fyrirtækja í gistiþjónustu í Evrópu standa að, er að sækja skaðabætur. Það getur verið í formi þess að þóknun Booking séu lækkaðar eða hluti af þeim endurgreiddar með vöxtum. Erfitt er að setja nákvæma upphæð á það sem er í húfi fyrir hvert og eitt hótel, að sögn Jóhannesar. Það fari eftir stærð og tíma sem viðkomandi hótel hefur verið í viðskiptum við Booking. Í kröfunni sé almennt verið að horfa á um það bil 30% af greiddum þóknunum auk vaxta. Fyrirtæki í Þýskalandi ekki refsað af Booking Jóhannes segir að áhættan fyrir fyrirtækin að taka þátt í hópmálssókninni sé lítil sem engin. „Málsóknin er fjármögnuð af fjármögnunaraðilum í Þýskalandi sem taka svona að sér og eiga þá einhvern gróðamöguleika að fá hlut í þeim skaðabótum sem vinnast eins og þessir hlutir ganga fyrir sig. Fjárhagsleg áhætta hjá fyrirtækjunum er því engin og það á ekki að vera nein lagaleg áhætta heldur að taka þátt í málsókn af þessu tagi. Það eina sem fólk hefur sett fyrir sig er að Booking niðurfæri fyrirtækin einhvernvegin í kerfinu hjá sér. Þær áhyggjur eru ekki á rökum byggðar. Við höfum farið í gegnum þetta með okkar erlendu samstarfsaðilum. Það hafa um tvö þúsund þýsk fyrirtæki verið í samskonar málsókn og þau hafa ekki orðið vör við neinar slíkar aðgerðir af hálfu Booking. Enda væru þær alveg ólöglegar og gætu komið sér verulega illa við fyrirtækið ef upp um það kemst á meðan á þessu stendur.“ Jóhannes á von á að fleiri fyrirtæki bætist við en frestur til að skrá þátttöku rennur út 31. júli eins og lesa má nánar um á heimasíðu Samtaka ferðaþjónustunnar.
Hótel á Íslandi Dómsmál Ferðaþjónusta Mest lesið Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Viðskipti innlent Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda Sjá meira