Leikmenn Tottenham sagðir öskuillir og í uppreisnarhug eftir brottrekstur Ange Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. júní 2025 11:31 Ange Postecoglou fagnar sigri í Evrópudeildinni með leikmönnum Tottenham. Getty/Justin Setterfield Tottenham rak í gær knattspyrnustjóra sinn Ange Postecoglou þrátt fyrir að hann hafi skilað félaginu fyrsta titlinum í sautján ár og komið liðinu í Meistaradeildina. Leikmenn liðsins eru sagðir margir mjög ósáttir.
Samkvæmt frétt Telegraph þá eru leikmenn Tottenham öskuillir og í uppreisnarhug eftir brottrekstur Ange Postecoglou. Tottenham gerði vel í Evrópudeildinni en endaði bara í sautjánda sæti í ensku úrvalsdeildinni. Lokasprettur liðsins var vissulega vandræðalegur en liðið vann 1-0 sigur á Manchester United í úrslitaleik Evrópudeildarinnar. Leikmönnum Tottenham þykir brottreksturinn vera mjög miskunnarlaus og það er sögð vera mikil ólga innan leikmannahópsins. Telegraph segir ekki um hvaða leikmenn sé að ræða en að nokkrir þeirra séu það ósáttir að þeir vilji nú yfirgefa félagið. Postecoglou sagði sjálfur frá því að hann hefði ekkert heyrt frá forráðamönnum félagsins í tvær vikur áður en hann var rekinn. „Leikmennirnir eru mjög reiðir yfir því sem hefur gerst og hvernig félagið hagaði sínum málum. Það verður mjög erfitt fyrir næsta knattspyrnustjóra,“ sagði heimildarmaður við Telegraph. Thomas Frank, núverandi knattspyrnustjóri Brentford, þykir líklegatur til að taka við af Postecoglou en nöfn Marco Silva og Andoni Iraola eru líka upp á borði. View this post on Instagram A post shared by Daily Telegraph Sport (@telegraph_sport)
Enski boltinn Mest lesið Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan Íslenski boltinn Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Íslenski boltinn „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Sjá meira