Fylgi flokks borgarstjórans dalar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. febrúar 2025 23:46 Fylgi Framsóknarflokksins, flokks Einars Þorsteinssonar, dalar milli kannanna. Vísir/Vilhelm Sjálfstæðisflokkurinn er á mikilli siglingu í Reykjavíkurborg samkvæmt nýjustu könnun Gallup. Fylgi Framsóknarflokksins dalar enn.
Í nýrri Gallup könnun sem birt var á vef Viðskiptablaðsins mælist Sjálfstæðisflokkurinn með 31,2 prósenta fylgi. Það er um tíu prósenta aukning frá síðustu könnun sem gerð var í október 2024. Vinstri grænir bæta einnig við sig fylgi á milli kannana og fara úr 1,9 prósentum í fjögur prósent. Þá bætir Viðreisn einnig við sig en í október mældust þau með 7,3 prósent fylgi. Nú í janúar mældust þau með ellefu prósenta fylgi. Allir aðrir flokkar missa fylgi. Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur en á eftir honum kemur Samfylkingin með 22,9 prósent fylgi og missir þar um þrjú prósent frá síðustu könnun. Framsóknarflokkurinn, flokkur Einars Þorsteinssonar borgarstjóra, mælist með 3,3 prósent fylgi og er þar af leiðandi með minnsta fylgið. Í síðustu borgarstjórnarkosningum árið 2022 fékk flokkurinn 18,9 prósenta fylgi. Píratar misstu mesta fylgið á milli kannana, fóru úr 11,8 prósenta fylgi í 4,4. Flokkur fólksins mælist þá með 6,5 prósent fylgi, 8,6 prósent í október, og Miðflokkurinn 6,6 prósent en flokkurinn mældist með 8,5 prósenta fylgi í október 2024. Meirihlutinn í borgarstjórn sem samanstendur nú af Framsóknarflokknum, Samfylkingunni, Viðreisn og Pírötum er því fallinn.
Reykjavík Framsóknarflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Sósíalistaflokkurinn Píratar Vinstri græn Miðflokkurinn Flokkur fólksins Viðreisn Mest lesið „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Innlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Innlent Ráðherra byrjar með hlaðvarp Innlent Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Sjá meira