Grétar Snær höfuðkúpubrotnaði í Taílandi Jakob Bjarnar skrifar 10. desember 2024 14:56 Þeir bræður, Grétar Snær og Andri Geir, eru nú komnir heim eftir að hafa lent í miklum hremmingum í Taílandi. vísir Andri Geir Gunnarsson, sem þekktastur er fyrir að halda úti ásamt Vilhjálmi Frey Hallssyni, hinu mjög svo vinsæla hlaðvarpi Steve Dagskrá, lenti ásamt bróður sínum Grétari Snæ í miklum hremmingum úti í Taílandi.
Þar voru þeir bræður í menningarreisu en þurftu að vera þar lengur en til stóð því þeir munu hafa lent í því að hafa verið byrlað og svo lamdir illa með þeim afleiðingum að Grétar Snær höfuðkúpubrotnaði. Vísir náði að ræða stuttlega við Grétar Snæ og sagðist hann hafa komið heim fyrir tveimur dögum. En Grétar er knattspyrnumaður í FH. „Ég er að drepast. Já, þetta var svakalegt en nú verð ég að sofa og svona.“ Greinilegt var að það kostaði hann áreynslu að tala við blaðamann en hann var að fara að hitta lækni. Það á ekki af Grétari að ganga en í sumar braut hann þrjú rifbein í leik gegn Vestra á Ísafirði eftir harkaleg viðskipti við Ibra Balde leikmann Vestra. Ekki náðist í Andra Geir þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir en samkvæmt heimildum Vísis verður öll þessi svakalega hremmingasagan gerð upp í Steve Dagskrá á föstudaginn.
Íslendingar erlendis Hlaðvörp FH Lögreglumál Taíland Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Sjá meira