Ratcliffe vill fá manninn sem fékk Salah og Van Dijk til Liverpool á Old Trafford Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. október 2023 10:31 Michael Edwards (lengst til hægri) starfaði við hlið Jürgens Klopp hjá Liverpool. getty/John Powell Ef Sir Jim Ratcliffe eignast hlut í Manchester United og fær að ráða fótboltamálum hjá félaginu ætlar hann að fá einn af arkitektunum að góðu gengi Liverpool undanfarin ár.
Talið er líklegt að Íslandsvinurinn Ratcliffe muni kaupa fjórðungshlut í United. Hann mun freista þess að stjórna því sem viðkemur fótboltanum hjá félaginu og samkvæmt enskum fjölmiðlum er hann búinn að finna mann til að hjálpa sér að koma United aftur á toppinn. Sá heitir Michael Edwards og var áður yfirmaður knattspyrnumála hjá Liverpool. Hann sá meðal annars um leikmannakaup félagsins og er eignaður heiðurinn af því að hafa meðal annarra fengið Mohamed Salah og Virgil van Dijk á Anfield. Edwards yfirgaf Liverpool í maí á síðasta ári. Ratcliffe vill fá Edwards til að sjá um leikmannakaup United og taka til í þeim málum hjá félaginu, enda ekki vanþörf á. Þrátt fyrir að hafa eytt svimandi háum upphæðum í leikmenn undanfarin ár hefur United ekki verið í baráttu um Englandsmeistaratitilinn síðan Sir Alex Ferguson hætti hjá félaginu fyrir áratug. Ratcliffe hefur einnig augastað á Paul Mitchell sem starfaði áður við hlið Mauricios Pochettino hjá Southampton og Liverpool og vann hjá RB Leipzig áður en hann var ráðinn íþróttastjóri Monaco.
Enski boltinn Mest lesið Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Íslenski boltinn Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Sjá meira