Kópavogur setur hagsmuni leikskólabarna í fyrsta sæti Hrund Traustadóttir skrifar 19. ágúst 2023 15:30 Umræða um leikskólamál í Kópavogi hefur verið hávær undanfarnar vikur. Sumt fólk steytir rafrænum hnefum og segir Kópavogsbæ ráðast að veikasta hlekknum fátæka fólkinu. Aðrir tala um jafnrétti og afturför þar um, meðan aðrir fagna þessum aðgerðum þar sem þau telja leikskólagjöld hafa verið of lág til að hægt sé að halda uppi faglegu skólastarfi. Kópavogsbær hefur einfaldlega farið í greiningarvinnu á málinu og það er ekki farið í þessar breytingar nema að vel athuguðu máli frá öllum hliðum. Haft var víðtækt samráð við starfsfólk og stjórnendur leikskóla bæjarins, Félag leikskólakennara, Félag stjórnenda í leikskólum, Starfsmannafélag Kópavogs, foreldra, og aðra hagaðila. Samráðið leiddi í ljós skýrt ákall um bættar starfsaðstæður í leikskólum. Leikskólastarfsfólk er að niðurlotum komið og hverfur í umvörpum í veikindaleyfi sökum álags og það er svo löngu tímabært að gripið sé til aðgerða. Þarna er Kópavogsbær einfaldlega að gera einmitt það og svarar ákallinu. Börn á leikskólaaldri eiga ekki að þurfa að vera í 8-9 tíma á dag í öllu áreitinu sem er að buga fullorðna fólkið.Ég tek það fram að ég er ekki að skrifa þessa grein út frá pólitísku sjónarhorni, heldur út frá faglegri reynslu og þekkingu minni. Mér persónulega gæti ekki verið meira sama hvaða stjórnmálaflokkur stendur fyrir því að þetta hugaða skref sé tekið en tilfinningin er sannarlega góð að loksins, loksins séu tekin skref sem eiga að bæta vinnuumhverfi starfsfólks leikskóla og þá ekki síður barna í leikskólum en bættar starfsaðstæður koma til með að skila sér lóðbeint í betri líðan þeirra í skólaumhverfinu. Samkvæmt þessum breytingum fær sambúðarfólk með mánaðartekjur undir 980.000 kr 40% afslátt og eru þá að borga 33.869 kr á mánuði (áður 38.126 kr) sem er raunveruleg lækkun fyrir þann hóp. Nú er ég að tala um 8 klst á dag, verðið er að sjálfsögðu breytilegt eftir tímafjölda. Einstæðir foreldrar með tekjur undir 750.000 fá sama afslátt. Það má kannski taka það fram að eitt leikskólapláss kostar sveitarfélagið um 350.000 kr á mánuði eða 4.200.000 á ári. Það má líka hafa í huga að ef leikskólagjöld hefðu fylgt vísitölu og verðbólgu væri plássið á ca 95.000 kr á mánuði í dag. Heimili sambúðarfólks sem eru með yfir 980.000 kr í mánaðartekjur falla ekki undir viðmiðunarmörk fyrir afslátt af leikskólagjöldum samkvæmt þessum breytingum. Sama á við um einstæða foreldra með mánaðartekjur yfir 750.000 kr. Þau heimili eru þá að borga leikskólagjöld miðað við 8 klst á dag, 49.474 kr á mánuði. Systkinaafsláttur er 30%, 100% með þriðja barni. Einstæðir foreldrar halda sínum 30% afslætti til áramóta. Til samanburðar eru foreldrar í Kópavogi að borga a.m.k. 50.000 kr á mánuði hjá dagforeldrum eftir að Kópavogsbær hefur greitt niður 107.000 krónur af því gjaldi. Flest leikskólabörn hafa verið hjá dagforeldrum áður en þau hefja leikskólanám, þrátt fyrir allar fátæktargildrur sem hækkuð leikskólagjöldin eiga nú að vera að kalla yfir fólk samkvæmt gagnrýnisröddum. Ég sem leikskólakennari lít aðeins bjartari augum fram á við þegar ég sé að raunveruleg skref eru tekin til að bæta starfsaðstæður kennara og nemenda. Það er verið að hlusta á raddir fagfólks og sérfræðinga en rannsóknir sýna fram á neikvæða þróun og þegar fram í sækir er hætt við að viðeigum eftir að að glíma við samfélagsleg vandamál sem fylgja tengslavanda. Raunveruleikinn er nefnilega sá að börn eru fast að 8 klst á dag í leikskólanum sínum að meðaltali. Fólk í fæðingarorlofi lengir jafnvel vistunartíma eldra barns í leikskóla í stað þess að stytta vistunartímann í fæðingarorlofinu og efla tengsl sín við leikskólabarnið. Í vangaveltum Önnu Magneu Hreinsdóttur frá árinu 2019 um skýrslu Eurydice, samstarfsvettvangs Evrópuþjóða á sviði menntamála, kemur fram að dvalartími barna á Íslandi er vel yfir meðaltali samanborið við önnur lönd í Evrópu. Á Íslandi dvelja börn að meðaltali í 37,5 tíma á viku en í öðrum löndum Evrópu í 28 tíma. Hvað er það í íslensku samfélagi sem veldur því að okkar börn virðast þurfa lengri skóladag en börn nágrannaþjóðanna? Núna sé ég fram á að þau sem hafi tækifæri til komi til með að stytta vistun í sex klukkustundir og þau sem þurfa átta klukkustundir eru þá í örlítið rólegra og vænlegra umhverfi seinni part dags. Við þurfum sem samfélag að fara að taka höndum saman í þágu barna og sameinast um að breyta þessu þjóðfélagsmynstri þar sem það er orðið norm að báðir foreldrar vinni 8 tíma á dag og þar af leiðandi börnin einnig. Ég átta mig á því að þarna er ýtt á viðkvæman jafnréttisblett en erum við ekki komin lengra en það í jafnréttisbaráttunni að það væri eingöngu móðirin sem kæmi til með að minnka við sig vinnu? Ábyrgð ríkis, sveitarfélaga og atvinnulífs til að styðja við barnafjölskyldur er gífurleg. Aukinn sveigjanleiki í umhverfi barnafjölskyldna er til lengri tíma raunveruleg hagsæld samfélagsins. Gleymum því ekki að þetta er í okkar höndum sem samfélags, veljum að bjóða foreldrum upp á vænlega kosti þar sem börnin eru sett í forgang. Kópavogur er núna að taka risastórt skref til að sporna við þessari þróun síðastliðinna ára að það þyki eðlilegt og sjálfsagt fyrir barn á leikskólaaldri að vera í allt of krefjandi umhverfi í allt of margar klukkustundir á dag. Ef starfsfólkið er í umvörpum að sligast undan álagi meðal annars vegna áreitis og hávaða getum við ekki boðið börnum á leikskólaaldri upp á slíkar aðstæður í 8-9 klukkustundir á dag. Þetta er ekki sagt til að valda samviskubiti hjá foreldrum. Við verðum að geta rætt hvað er barni fyrir bestu án þess að hræðast samviskubitið. Það er ekkert hlutverk jafn mikilvægt í lífinu og foreldrahlutverkið og því rík ástæða til að taka til greina ábendingar frá fagfólki, hversu óþægilega sem þær kunna að hljóma. Það fylgir því ábyrgð að eignast barn og um leið og það þarf þorp til að ala upp barn má ekki gleyma því að foreldri er alltaf mikilvægasti umönnunaraðili þess. Í stóra samhenginu er þetta stuttur tími sem um er að ræða en um leið sá mikilvægasti í þroska barnsins. Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir talar um í bók sinni “Árin sem enginn man” (2009) mikilvægi fyrstu tengsla barns, sem leggja grunn að öðrum tengslum og sjálfsmynd barnsins ævina á enda. Við þurfum því að tryggja barni nálægð við foreldra sína sem veita því öryggi. Sæunn talar einnig um að starfsfólk leikskóla, þar sem nýliðun er ör þarf að deila athygli sinni á fjölda barna og hætt er við að tilfinningalega tengingu skorti. Þá verður til tómarúm í lífi barns sem erfitt getur reynst að fylla upp í, hversu viljugt og samviskusamt sem leikskólastarfsfólkið er gagnvart barninu. Ég er þakklát og stolt af Kópavogi að þora að taka þetta þarfa og tímabæra framfaraskref með hagsmuni barna sveitarfélagsins að leiðarljósi. Höfundur er leikskólakennari og deildarstjóri á Heilsuleikskólanum Urðarhól. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kópavogur Leikskólar Skóla - og menntamál Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist Skoðun Skoðun Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar