Amrabat bíður eftir Man. Utd Sindri Sverrisson skrifar 2. ágúst 2023 14:30 Sofyan Amrabat með boltann í úrslitaleik Sambandsdeildar Evrópu í vor, þar sem Fiorentina varð að sætta sig við tap gegn West Ham. Getty/Chris Brunskill Marokkóski miðjumaðurinn Sofyan Amrabat hefur þegar samþykkt að ganga til liðs við Manchester United og þrátt fyrir gylliboð frá Sádi-Arabíu er Old Trafford sá áfangastaður sem hann þráir heitast. Enska félagið hefur þó ekki lagt fram neitt tilboð enn sem komið er.
Frá þessu greinir félagaskiptagúrúinn Fabrizio Romano á Twitter í dag þar sem hann hrekur fréttir sumra af ensku götublöðunum, sem sögðu mögulegt að Amrabat yrði áfram hjá Fiorentina á Ítalíu og að hann hefði sagt svo sjálfur eftir æfingaleik með liðinu gegn D-deildarliði Grosetto. „Ég veit ekki hvort að ég fer… kannski verð ég um kyrrt hjá Fiorentina,“ átti Amrabat að hafa sagt, meðal annars samkvæmt Daily Mail og Metro, en Amrabat segir þessa tilvitnun einfaldlega tilbúning. Amrabat has no doubts: he said yes to Manchester United, he wants the move since first talks in June despite rich Saudi bids Understand he never said he s staying or anything similar. Fake quotes.No official bid yet Man Utd will send it as soon as Fred/Donny leave. pic.twitter.com/ZZz1eNds0W— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 2, 2023 Romano, sem veit meira en flestir um félagaskiptin í fótboltanum, segir að Amrabat sé ekki í nokkrum vafa og vilji fara til United. Romano segir að United hafi fyrst viljað ganga frá kaupunum á framherjanum Rasmusi Höjlund, sem nú eru frágengin, og auk þess bíði félagið nú eftir því að sala heppnist á Fred eða Donny van de Beek. Þegar það gangi eftir muni Fiorentina fá tilboð. Amrabat, sem er 26 ára, sló í gegn á HM í Katar í vetur og átti stóran þátt í því að liðið endaði afar óvænt í 4. sæti mótsins. Hann hefur verið leikmaður Fiorentina frá árinu 2020 en lék áður í Belgíu og Hollandi þar sem hann er fæddur og uppalinn, en hann á marokkóska foreldra.
Enski boltinn Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Fótbolti Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Sjá meira