Jón nánast örugglega á förum úr ráðherraliðinu Jakob Bjarnar skrifar 13. júní 2023 12:02 Guðrún hefur bankað fast á dyrnar og vill komast inn. Nú lítur allt út fyrir að Bjarni ætli loks að láta verða af því að hleypa henni inn og út fer Jón Gunnarsson. Því munu margir í stjórnarandstöðunni fagna en víst er að Sjálfstæðisflokkurinn á við nokkurn vanda að etja. vísir/vilhelm/samsett Boðað hefur verið til ríkisráðsfundar á mánudaginn næsta og ekki er gert ráð fyrir öðru en að þá verði gengið frá breytingum á ráðherraliði í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur: Að Jón Gunnarsson hverfi úr ríkisstjórn og Guðrún Hafsteinsdóttir komi inn.
Ríkisstjórnin hélt sinn hefðbundna fund í morgun og ræddi Heimir Már Pétursson fréttamaður við Jón í lok hans. Að sögn Jóns gerði hann ekki ráð fyrir öðru en að hann væri að hætta í ríkisstjórninni. Ert þú að fara úr ráðherraliðinu? „Það verður bara að koma í ljós. Það er, eins og þú segir, ríkisráðsfundur á mánudaginn og þá verður væntanlega þær breytingar sem hafa verið boðaðar.“ Hefur formaður flokksins eitthvað rætt þessi skipti við þig? „Nei við höfum ekki rætt þetta sérstaklega. Hann fundar eflaust með þingflokknum í þessari viku til að fara yfir sínar hugmyndir.“ Jón segist sjá eftir því að fara úr dómsmálaráðuneytinu en hefur þó þann fyrirvara að ef sú verður raunin. „Það er alltaf eftirsjá fyrir þann sem er í pólitík að hverfa úr þessu. Við erum að mörgu leyti í miðri á en svona er bara pólitíkin og það verður bara að koma í ljós hver ákvörðun þingflokks og formanns verður í þessum efnum.“ Guðrún bankað fast á dyrnar Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið rukkaður í sífellu um það loforð þessa efnis síðan hann sagði að breytingar yrðu gerðar að átján mánuðum liðnum. Átján mánuðirnir sem Bjarni gaf sér til að stokka upp í ríkisstjórninni eru liðnir, hvernig sem er reiknað. Guðrún Hafsteinsdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi, hefur bankað fast á dyrnar og vill komast inn. Það hefur hún gert í nokkrum viðtölum og rukkað Bjarna um loforð sem hann gaf þess efnis. Guðrún flutti athyglisverða ræðu um þetta efni í Vikulokunum 27. maí, útvarpsþætti Rásar 1. Hún var þá spurð um þessa stöðu með þeim formála umsjónarmanns að Bjarni hafi tilkynnt að Jón yrði ráðherra í 18 mánuði og síðan myndi Guðrún taka við: Guðrún sagði í janúar að hún yrði ráðherra í mars, þegar átján mánuðir yrðu liðnir frá kosningum. „Eins og Bjarni var búinn að lofa. Hann stóð ekki við það,“ sagði Sunna Valgerðardóttir umsjónarmaður þáttarins: Ekkert fararsnið sé á Jóni sem virðist líða ágætlega. Og hann hafi „hótað því að víkja af þingi missi hann ráðherrastólinn“. Þetta þýðir þá að varamaður hans komi inn á þingið sem er Arnar Þór Jónsson, sem hefur verið afar gagnrýninn á stefnu Sjálfstæðisflokksins í þessu ríkisstjórnarsamstarfi. Og talið hann hafa horfið frá grunngildum sinnar stefnu. Sunna spyr: Ertu svekkt að ekki sé búið að standa við þau loforð sem gefin voru í upphafi kjörtímabilsins? „Ég sagði þetta í janúar og hef síðan sagt að líklega kann hvorki Jón Gunnarsson né ég að telja. Ég miðaði við að þessir átján mánuðir væru frá kosningum. Jón miðar við að það sé frá því að ríkisstjórn var mynduð. Ef við miðum við frá kosningum hefði ég átt að taka við í mars.“ Stillti sér upp sem ráðherraefni Guðrún segir að ef miðað er við síðan ríkisstjórn var mynduð þá er það núna í lok maí. Þá eru þeir 18 mánuðir á enda. En það er víst að Bjarni hefur dregið lappirnar við að skipta Jóni út, að hennar mati og ýmissa annarra sem vilja helst ekki hafa Jón í dómsmálaráðuneytinu. En á móti kemur að Jón hefur styrkt stöðu sína verulega innan þingflokksins í ráðherratíð sinni og fer fyrir ákveðnum sjónarmiðum þar sem Bjarni á erfitt með að forsmá. Sjónarmiðum sem margir innan flokksins telja að hafi látið undan í þessu ríkisstjórnarsamstarfi. En Guðrún hefur ekki gefið tommu eftir. „Bjarni sagði líka á sínum tíma þegar þessi ríkisstjórn var mynduð að Jón sæti í ríkisstjórninni að hámarki 18 mánuði. Ég fór ekkert í grafgötur með það þegar ég steig inn í pólitík 2021 og fór í prófkjör í mínu kjördæmi lagði ég af stað með það í farteskinu, og ég stillti mér upp sem ráðherraefni. Og ég sigra prófkjörið. Og ég sigra kosningarnar í Suðurkjördæmi. Við erum með næst mest fylgi fyrir utan kjördæmi formannsins. Við munum öll að Framsóknarflokkurinn var á miklu flugi. Ég sigra í kjördæmi formanns Framsóknarflokksins og er 1. þingmaður. Ég gerði skýlausa kröfu til þess að ég væri hluti af ráðherrum ef flokkurinn færi í ríkisstjórn. Þess vegna var ég svekkt á þeim tíma,“ sagði Guðrún. Samkvæmt heimildum Vísis þá mun Jón ekki hætta þingmennsku þó hann láti af ráðherraembætti, ekki strax í það minnsta, þannig að þeir sem hafa haft af því þungar áhyggjur að varamaður hans, Arnar Þór Jónsson, muni reynast sem minkur inn í þegar órólegan þingflokkinn vegna slaks gengis flokksins í skoðanakönnunum og erfiðrar stöðu innan flokks geta andað rólegar. Í bili.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Sjálfstæðisflokkurinn Alþingiskosningar 2021 Suðurkjördæmi Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Fleiri fréttir Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Sjá meira