Galin stjórnsýsla Magnús Guðmundsson, Benedikta Svavarsdóttir og Sigfinnur Mikaelsson skrifa 6. mars 2023 09:30 Þá er óbreytt strandsvæðaskipulag runnið í gegn hjá Sigurði Inga innviðaráðherra. Það er búið að eyða mikilli vinnu og stórum upphæðum í það. Seyðisfjörður var settur í burðarþolsmat á röngum forsendum skv. svörtu skýrslu Ríkisendurskoðunar, af þáverandi sjávarútvegsráðherra Sigurði Inga Jóhannessyni. Skipulagið er nánast eins og lagt var upp með fyrir fjórum árum. Sjókvíaeldið stjórnaði bæði upphafi og enda. Var ekki bara best að ákveða þetta strax? Skipulagið brýtur á innviðum bæði á Vest- og Austfjörðum. Við ætlum fara yfir brotin í Seyðisfirði. Seyðisfjörður er eini fjörður landsins með fjarskiptastreng til Evrópu. Farice-1 strengurinn er ríkiseign, sem á að njóta fyllsta öryggis skv. öryggisstefnu landsins. Strandsvæðaskipulagið, sem innviðaráðherra var að samþykkja, tryggir ekki öryggi hans því það brýtur fjarskiptalög. VÁ vonar að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, sem fer með fjarskiptalög taki betur á málunum og fullverji strengi landsins, og að þjóðaröryggi verði betur tryggt en nú er lýst í skýrslu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Það á alla vega ekki að ógna fjarskiptastrengjum af mannavöldum eins og strandsvæðaskipulagið gerir. Sigurður Ingi: Nýsamþykkt strandsvæðaskipulag brýtur fjarskiptalög á mikilvægum innviðum. Seyðisfjörður er önnur af farþega-millilandagáttum landsins, og eina höfnin með reglubundnar áætlunarsiglingar bíla- og farþegaferju milli Íslands og Evrópu til tæpra 50 ára. Auk þess fer mikill út- og innflutningur um höfnina. Seyðisfjörður er fjórða stærsta skemmtiferðaskipahöfn landsins. Seyðisfjarðarhöfn er grunnnetshöfn, sem nýtur siglingaverndar. Siglingaleiðin um ytri höfnina verður þrengd úr hófi fram, ef farið er að óskum Fiskeldis Austurlands um sjókvíaeldi. Ef þetta er gert er lítið gagn í uppbyggingu góðrar hafnar með tveim bílaferjulægjum og aðstöðu fyrir stór skemmtiferðaskip, sem unnið er við að landtengja. Höfnin skapar miklar tekjur ekki bara fyrir Múlaþing heldur landið allt. Í frétt Innviðaráðuneytisins segir: ” rétt er að taka fram að vinna við áhættumat siglinga stendur enn yfir á tilteknum svæðum,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra. Sigurður Ingi: Það á að hafa siglingaöryggi á hreinu áður en strandsvæðaskipulag er samþykkt. Að mati Landhelgisgæslunnar er rík ástæða til að stækka öryggissvæði siglingaleiða fjórfalt, úr 50 m í a.m.k. 200 m, til þess að gefa sjófarendum nauðsynlegan viðbragðstíma, t.d. til stefnubreytingar eða til að koma út akkeri. Landhelgisgæslan hvetur því svæðisráð og Skipulagsstofnun til þess að leggja heildstætt mat á siglingasvæði í strandsvæðaskipulagi svæðisins, ekki aðeins út frá mestu umferð skipa eins og hún er í dag, heldur út frá almannaöryggi og hvernig það verður best tryggt. Samgöngustofa og Vegagerðin komu með síðbúnar athugasemdir við skipulagið vegna vita og siglingaleiða. Athugasemdir þessara stofnana voru ekki virtar. Menn geta barið sér á brjóst og talað um samráð við fjölda aðila, en fara svo ekkert eftir því þegar á reynir. Í þessu strandsvæðaskipulagi er fjöldamörgum spurningum ósvarað. Miðað við þrönga siglingaleið og aðra fyrirliggjandi innviði og stærð og legu Seyðisfjarðar getur enginn sérfræðingur ráðlagt innviðaráðherra að sjákvíaeldi komist fyrir í Seyðisfirði. Sigurður Ingi: Það á að hlusta á athugasemdir sjálfstæðra ríkisstofnana. Í minnisblaði frá Veðurstofu, sem gert var fyrir Fiskeldi Austfjarða og er í fullu gildi, kemur fram að kvíastæði í Selstaðavík er á C hættusvæði ofanflóða. Við þurfum ekki hamfarir í slysasleppingum af mannavöldum. Sigurður Ingi: Það á að taka mark á þessu. Strandsvæðaskipulagið þurrkar út grænt svæði í Skálanesbót fyrir sjókvíaeldi. Þar er uppeldissvæði æðarfugls og fiska, fræðasetrið í Skálanesi með átta manns í vinnu og Austdalur, sem er á náttúruminjaskrá og nýtur hverfisverndar. Sjókvíaeldið var valið á grundvelli þess að rangt burðarþolsmat lá fyrir í Seyðisfirði og áform um sjókvíaeldi langt komin í leyfisveitingaferli. Þetta strandsvæðaskipulag stenst enga skoðun. Þarna viðurkennir svæðisráð það sem við höfum haldið fram. Skipulagið er eingöngu unnið fyrir sjókvíaeldi og Sigurður Ingi samþykkir það á þeim forsendum. Sigurður Ingi: Það á að taka tillit til fleiri hagsmuna en sjókvíaeldis. Sigurður Ingi er ráðherra sveitarstjórnarmála. Sameining sveitarfélaga á að vera af hinu góða. Það kann ekki góðri lukku að stýra ef einum af fjórum er ýtt út í horn með alla sína uppbyggingu til hagsbóta fyrir aðra í hópnum. Sigurður Ingi: Það á að virða íbúalýðræði og taka mark á þeim 75% íbúa Seyðisfjarðar, sem eru andvígir sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Siðfræðingur talaði um svörtu skýrslu Ríkisendurskoðanda um sjókvíaeldi, sem skýrslu á borð við hrunskýrsluna. Guð blessi Ísland. Í skýrslunni segir á bls. 11: “Verðmætum í formi eldissvæða og lífmassa hefur verið úthlutað til lengri tíma án endurgjalds og dæmi eru um að uppbygging sjókvíaeldis skarist á við aðra mikilvæga nýtingu strandsvæða, svo sem siglingaleiðir, helgunarsvæði fjarskipta- og raforkustrengja og við hvíta ljósgeira siglingavita.” Þarna er ansi fast skotið á skipulagsvinnuna, sem setti innviði landsins til hliðar fyrir sjókvíaeldi. Sigurður Ingi bætti um betur og horfði fram hjá öllum þeim rökum og staðreyndum sem kom í veg fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Spillingin lekur af þessu hálfunna skipulagi. Gamalt máltæki, sem á vel við hér, segir: „Leiðin til helvítis er vörðuð fögrum fyrirheitum“. Þegar Danir unnu sitt strandsvæðaskipulag var öll áhersla á að vernda nærumhverfi og strendur. Ísland leggur sínar strendur undir sjókvíaeldi, sem fer beint í sölu í norsku kauphöllinni. Til hamingju Ísland með algerlega galna stjórnsýslu. Við kveðjum með tilvitnun í Magnús Þór Sigmundsson og Fjallabræður. Kæra Freyja míná ég skilið að eiga þig aðeftir að hafa þérafneitað? Ég seldi þigfiskinn í sjónum og fjöreggin míngrundirnar, fjöllin og vötnin þínfyrir hvað? Gulllin mín – fyrir hvað?Já, ég skammast mín Höfundar eru félagar í Félagi um verndun fjarðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjávarútvegur Stjórnsýsla Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Verðbólgan er stærsti einstaki uppruni hagnaðar á Íslandi Egill Almar Ágústsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Slaufun, skautun, skömmun Örn Bárður Jónsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Hvað segja hin 20.000 fyrirtækin? Andrés Magnússon,Hrund Rudolfsdóttir,Margrét Kristmannsdóttir Skoðun