Fyrsta stefnumót Keane-hjónanna var martröð líkast Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. janúar 2023 11:30 Theresa og Roy Keane hafa verið gift í aldarfjórðung. getty/John Peters Roy Keane segir að fyrsta stefnumót hans og eiginkonu hans, Theresu, hafi verið martröð líkast.
Keane-hjónin hafa verið gift síðan 1997 og eiga fimm börn og tvö barnabörn. En eftir fyrsta stefnumótið benti ekkert til þess að niðurstaðan yrði farsælt hjónaband. Keane var gestur í þættinum The Tommy Tiernan Show þar sem hann sagði frá fyrsta stefnumóti þeirra Theresu. Það var í upphafi 10. áratugarins þegar Keane lék með Nottingham Forest. „Það fór mjög illa. Við hittumst. Ég sótti hana á City Ground [heimavöllur Forest] og við keyrðum af stað,“ sagði Keane. „Ég spurði hana hvort hún vildi fara í bíó. Þá gætum við allavega horft á myndina og ekki þurft að tala mikið og hún sagði nei. Hún sagðist hafa farið með vinum í gær en ég sagði að það væru aðrar myndir í boði. Ég spurði hana síðan hvort hún vildi fá sér drykk en hún sagði líka nei.“ Keane var forviða og spurði Theresu hvað hún vildi þá gera, fyrst hún vildi ekki fara í bíó eða fá sér drykk. „Hún fór út úr bílnum. Ég spurði hvort við myndum sjást í næstu viku en hún sagði ég held ekki og skellti hurðinni. Þetta var fyrsta stefnumótið okkar og við erum enn gift,“ sagði Keane en ljóst er að fall hefur verið fararheill í þessu tilfelli.
Enski boltinn Ástin og lífið Mest lesið Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Íslenski boltinn Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Íslenski boltinn Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Enski boltinn Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Fótbolti Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Enski boltinn Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Íslenski boltinn Cody Gakpo orðaður við Manchester City Enski boltinn Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Formúla 1 „Maður var aldrei alveg rólegur“ Íslenski boltinn Ísak Andri nálgast sænsku úrvalsdeildina Fótbolti Fleiri fréttir Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Sjá meira