Coutinho nær samkomulagi við Villa Atli Arason skrifar 11. maí 2022 19:30 Steven Gerrard og Philippe Coutinho ná vel saman. Getty Images Philippe Coutinho er sagður hafa náð samkomulagi við Aston Villa um kaup og kjör til að gera félagaskipti hans frá Barcelona til Villa varanleg.
Kaupverðið á leikmanninum er þó talið vera helsta ágreiningsefnið á milli liðanna eins og er. Barcelona keypti Coutinho á 105 milljónir punda frá Liverpool á sínum tíma en spænska liðið vill fyrst og fremst losna við Coutinho af launaskrá liðsins til að hafa pláss fyrir nýja leikmenn. Brassinn þénar um 300 þúsund pund á viku hjá Barcelona. Coutinho hefur verið á láni hjá Aston Villa síðan í janúar en í lánssamningnum er 33 miljóna punda kaupákvæði. Breskir miðlar greindu frá því í dag að Villa hefði gert Barcelona tilboð upp á u.þ.b. 12 milljónir punda. Coutinho byrjaði ferill sinn hjá Aston Villa afar vel en hann skoraði fjögur mörk og lagði upp önnur þrjú í fyrstu átta leikjum sínum fyrir liðið. Coutinho hefur þó hvorki skorað né lagt upp mark í síðustu átta leikjum sínum fyrir Villa. Þrátt fyrir það vill Steven Gerrard, knattspyrnustjóri Villa, ólmur fá Coutinho til liðsins. Gerrard fær í sumar í fyrsta skipti heilt undirbúningstímabil með Villa til að koma hugmyndafræði sinni almennilega til skila og það verður fróðlegt að sjá hvort Coutinho verði hluti af uppbyggingastarfi Gerrard hjá Aston Villa. Everton, Tottenham, Arsenal og Newcastle eru á meðal þeirra liða sem hafa einnig áhuga að fá Coutinho í sínar raðir fyrir næsta tímabil en leikmaðurinn er sjálfur sagður hafa mestan áhuga fyrir því að spila undir stjórn Gerrard.
Enski boltinn Mest lesið Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Enski boltinn Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Fótbolti Cody Gakpo orðaður við Manchester City Enski boltinn Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Formúla 1 Dybala mataði þrennu fyrir Malen gegn Fiorentina Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Íslenski boltinn Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Íslenski boltinn Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Enski boltinn Ísak Andri nálgast sænsku úrvalsdeildina Fótbolti „Maður var aldrei alveg rólegur“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Sjá meira