Tuchel finnur til með Gallagher Arnar Geir Halldórsson skrifar 16. apríl 2022 08:00 Conor Gallagher hefur verið einn besti leikmaður Crystal Palace á tímabilinu. vísir/Getty Enski miðjumaðurinn Conor Gallagher fær ekki að taka þátt í undanúrslitaleik Crystal Palace og Chelsea í enska bikarnum á morgun.
Þessi 22 ára gamli miðjumaður er lánsmaður hjá Palace frá Chelsea og í lánssamningnum á milli félaganna er kveðið á um að hann megi ekki spila leiki Palace gegn Chelsea. Þegar í ljós kom að liðin myndu mætast í undanúrslitum óskaði Palace eftir því að Gallagher fengi að spila leikinn en þeirri beiðni var hafnað af Chelsea. Thomas Tuchel, stjóri Chelsea, segir ákvörðun félagsins rétta en hann skilji vel að Gallagher, sem hefur verið frábær í liði Palace í vetur, sé svekktur. „Ég hitti hann á dögunum, fyrir tilviljun, á veitingastað og við spjölluðum saman og þetta kom upp. Ég bað hann afsökunar,“ sagði Tuchel. „Ég veit hversu kappsamur hann er og ég þekki hans karakter. Ég kann mjög vel við hann og það var gott að vinna með honum á undirbúningstímabilinu.“ „Við spilum til að vinna leiki og reglurnar voru skýrar þegar við gerðum lánssamninginn. Ég skil vel hans vonbrigði en þetta voru ákvæðin í samningnum og þau standa,“ segir Tuchel. Leikur Chelsea og Crystal Palace fer fram á sunnudag og hefst bein útsending á Stöð 2 Sport 2 klukkan 15:20.
Enski boltinn Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Enski boltinn Fleiri fréttir Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjá meira