Skorar á Dag B. að mæta á eina vakt uppi í Mosó Snorri Másson skrifar 6. desember 2021 12:05 „Ég verð að fara út í hvaða veðri sem er, hvort sem mér líkar verr eða betur,“ segir Björg Loftsdóttir sjúkraliði hjá Reykjavíkurborg sem fær ekki að nota nagladekk við heimahjúkrun. Vísir/Sigurjón Hálka gerir Íslendingum lífið leitt. Jafnvel sjálfir söltunarbílar hins opinbera runnu til í glærahálku í morgun og sjúkraliði hjá Reykjavíkurborg hótar að leita sér að öðru starfi ef hún fær ekki að sinna heimahjúkrun á nagladekkjum.
Ákveðið var fyrir skemmstu að taka alla bíla á vegum borgarinnar af nagladekkjum, enda vilja borgaryfirvöld ganga á undan með góðu fordæmi í þeim efnum. Nagladekk eru enda mun meira slítandi en ónegld vetrardekk og eru meginorsök svifryks. En þetta kemur illa niður á Björgu Loftsdóttur, sjúkraliða sem starfar við heimahjúkrun fyrir Reykjavíkurborg. Hún heimsækir fólk í öllum veðrum og það oft upp í efri byggðir borgarinnar og fáfarnari staði þar sem stundum er minna mokað og saltað. Björg var til viðtals í Morgunblaðinu í dag. „Við vorum komin á nagla búin að vera á þeim í þrjár vikur og allir voru svo sendir að taka naglana af,“ segir Björg í samtali við fréttastofu, sem kveðst vera að íhuga að leita sér að annarri vinnu ef hún getur ekki komist örugg á leiðarenda við sín störf. Á ónegldum Yaris í sveitinni Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur talað fyrir því að sem fæstir keyri á nagladekkjum innanbæjar.Vísir/Vilhelm Samfylkingin hefur lagt til á Alþingi að Reykjavíkurborg fái heimild til að rukka fólk á nöglum um allt að fjörutíu þúsund krónum á ári. Björg telur sjálfsagt að draga úr notkun nagladekkja hjá fjölskyldubílum innanbæjar en segir allt annað uppi á teningnum þegar komið er í efri byggðir. „Ein lenti í því að vera hérna í efri byggðum og var að keyra upp brekku og ætlaði aldrei að ná upp brekkuna. Hún sagðist hafa verið heppin að enginn hafi verið fyrir aftan hana því hún rann alltaf aftur niður. Hún var á Toyota Yaris, ónegldum,“ segir Björg. Björg hvetur borgarstjóra til að setja sig í þeirra spor. „Dagur B. Eggertsson ætlar að prófa sjálfur, held ég, að keyra á ónegldum. Ég býð hann velkominn upp í efri byggð og taka eina kvöldvakt á ónegldum bílum og fara hérna innst inn í Mosó og svo framvegis og taka eina góða kvöldvakt þegar brjálað veður er. Velkominn.“ Þær voru annars sagðar einkar erfiðar aðstæðurnar sem mættu vetrarþjónustunni hjá Reykjavíkurborg í morgun þegar söltun og mokstur hófust klukkan hálffimm. Það var heiðríkja og frost í jörðu, sem svo gufaði upp þegar hlýnaði aðeins með morgninum. Slíkar aðstæður geta valdið glærahálku með tilheyrandi hættu - í Kópavogi var sagt frá því að söltunarbíll hafi misst stjórn og runnið utan í fimm kyrrstæða bíla.
Umhverfismál Umferðaröryggi Reykjavík Mosfellsbær Nagladekk Tengdar fréttir Vilja að heimilt verði að rukka þá sem nota nagladekk Þingmenn Samfylkingarinnar hafa lagt frumvarp á Alþingi um breytingar á umferðarlögum þess efnis að sveitarstjórnum verði heimilt að rukka fyrir notkun á nagladekkjum. 2. desember 2021 22:01 Uggandi yfir nýju fyrirkomulagi og kalla eftir skýrum aðgerðum Stjórn Landverndar fagnar markmiðum nýrrar ríkisstjórnar í loftslagsmálum en kallar eftir skýrari aðgerðum til að ná þeim. Áform um að ganga gegn áliti fagaðila varðandi rammaáætlun þrjú sé stríðsyfirlýsing. Þá óttast Landvernd að sama ráðuneytið haldi utan um orkumál og náttúruvernd. 29. nóvember 2021 12:11 Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira
Vilja að heimilt verði að rukka þá sem nota nagladekk Þingmenn Samfylkingarinnar hafa lagt frumvarp á Alþingi um breytingar á umferðarlögum þess efnis að sveitarstjórnum verði heimilt að rukka fyrir notkun á nagladekkjum. 2. desember 2021 22:01
Uggandi yfir nýju fyrirkomulagi og kalla eftir skýrum aðgerðum Stjórn Landverndar fagnar markmiðum nýrrar ríkisstjórnar í loftslagsmálum en kallar eftir skýrari aðgerðum til að ná þeim. Áform um að ganga gegn áliti fagaðila varðandi rammaáætlun þrjú sé stríðsyfirlýsing. Þá óttast Landvernd að sama ráðuneytið haldi utan um orkumál og náttúruvernd. 29. nóvember 2021 12:11