Kortleggja hvernig háskólasamfélagið geti brugðist við Fanndís Birna Logadóttir skrifar 15. nóvember 2021 22:30 Isabel Alejandra Díaz, forseti Stúdentaráðs HÍ. Vísir/Arnar Háskóli Íslands kannar nú hvernig bregðast megi við hertum samkomutakmörkunum þar sem það styttist nú óðum í lokapróf haustmisseris. Forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands segir skiljanlegt að staðan sem nú er uppi sé ógnvekjandi fyrir marga en verið er að finna leiðir til að draga úr áhyggjum stúdenta.
Eftir að hertar aðgerðir voru kynntar í síðustu viku varð stúdentum ljóst að 50 manna samkomubann yrði að öllu óbreyttu í gildi yfir prófatörnina í byrjun desember. Margir stúdentar segjast hafa áhyggjur af stöðu mála og hafa sumir kallað eftir því að fallið verði frá staðprófum í ljósi fjölda smita. Isabel Alejandra Díaz, forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands, segir að staðan í samfélaginu hafi einnig áhrif á umhverfi stúdenta og andlega líðan þeirra. Um leið og hertar aðgerðir lágu fyrir hafi þau fundað með yfirstjórn skólans til að finna leiðir til að koma til móts við stúdenta. „Við erum í raun og veru bara að kortleggja núna hvernig háskólasamfélagið geti brugðist við þessu og erum þá í mjög góðum samskiptum við yfirstjórn skólans, en það er alveg ljóst að stúdentar hafi margir hverjir áhyggjur og það er bara eins og við er að búast,“ segir Isabel. Hún segir nauðsynlegt að háskólinn og stúdentar vinni saman að lausnum til að hægt sé að ljúka misserinu með sem bestu móti. Margir hverjir hafa kallað eftir heimaprófum eða rafrænum próf í stað þess að þurfa að mæta. „Það hafa auðvitað borist til okkar athugasemdir þess eðlis, og við getum svo sem séð það líka á samfélagsmiðlum, að stúdentum þyki þetta vera rétta lausnin, og að sjálfsögðu hlustum við á þær raddir og þessar athugasemdir og komum þeim svo áleiðis,“ segir hún. „Við þurfum að hugsa um nám stúdenta og gæði námsins og kennslunnar til að geta gert þetta með góðu móti. Það er auðvitað áskorun en við höfum tekist á við sambærilegar áskoranir í gegnum þennan faraldur þannig að ég vona að við náum að finna einhvern góðan flöt á þessu,“ segir Isabel. Stúdentaráð fundar nú reglulega með yfirstjórn skólans en próf hefjast samkvæmt kennslualmanaki þann 2. desember næstkomandi. Kennslusvið tekur að lokum ákvörðun um hvernig prófum verður háttað. „Þetta er á allra næsta leiti og við erum bara að reyna að hafa hraðar hendur,“ segir Isabel. „Við höfum verið að funda til þess að finna einhvern flöt á málinu sem er öllum til bóta. Ég vona að við getum fundið einhverja lausn á þessu þannig að stúdentar þurfi ekki að hafa jafn miklar áhyggjur,“ segir Isabel.
Hagsmunir stúdenta Skóla - og menntamál Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Háskólar Tengdar fréttir Getum aflétt hraðar ef örvunarskammtar gefast vel Fimm voru lagðir inn á Landspítalann vegna Covid-19 í gær. Sóttvarnalæknir segir stöðuna þunga á spítalanum og bindur vonir við að góð mæting í örvunarskammta leiði til betri tíðar. Fjöldabólusetningar hófust aftur í Laugardalshöll í morgun. 15. nóvember 2021 13:06 Telja prófahald stangast á við sóttvarnareglur: „HA hefur verið að draga lappirnar“ Nemendur í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri fengu í dag tölvupóst frá viðskiptadeildinni þar sem þeim var greint frá því að lokapróf deildarinnar muni fara fram í húsnæði skólans. Mikil óánægja ríkir meðal nemenda vegna þessa, enda aðeins tvær vikur í fyrstu lokapróf, og hafa nemendur tekið sig til og safnað undirskriftalista til þess að skora á yfirvöld skólans að halda fjarpróf. 8. apríl 2021 23:30 Stúdentar við HÍ æfir vegna fyrirkomulags lokaprófa Fjöldi lokaprófa við Háskóla Íslands, einkum á heilbrigðisvísindasviði, mun fara fram í formi staðprófs sem krefst þess að nemendur mæti í persónu og sitji próf í kennslustofu. 11. nóvember 2020 18:33 Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Sjá meira
Getum aflétt hraðar ef örvunarskammtar gefast vel Fimm voru lagðir inn á Landspítalann vegna Covid-19 í gær. Sóttvarnalæknir segir stöðuna þunga á spítalanum og bindur vonir við að góð mæting í örvunarskammta leiði til betri tíðar. Fjöldabólusetningar hófust aftur í Laugardalshöll í morgun. 15. nóvember 2021 13:06
Telja prófahald stangast á við sóttvarnareglur: „HA hefur verið að draga lappirnar“ Nemendur í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri fengu í dag tölvupóst frá viðskiptadeildinni þar sem þeim var greint frá því að lokapróf deildarinnar muni fara fram í húsnæði skólans. Mikil óánægja ríkir meðal nemenda vegna þessa, enda aðeins tvær vikur í fyrstu lokapróf, og hafa nemendur tekið sig til og safnað undirskriftalista til þess að skora á yfirvöld skólans að halda fjarpróf. 8. apríl 2021 23:30
Stúdentar við HÍ æfir vegna fyrirkomulags lokaprófa Fjöldi lokaprófa við Háskóla Íslands, einkum á heilbrigðisvísindasviði, mun fara fram í formi staðprófs sem krefst þess að nemendur mæti í persónu og sitji próf í kennslustofu. 11. nóvember 2020 18:33