Á kostnað hvers? Kristófer Orri Guðmundsson skrifar 14. september 2021 19:31 Mikil umræða hefur verið um fiskeldi í opnum sjókvíum að undanförnu, en sjókvíaeldi á Íslandi felst í ræktun laxa þar sem þeir eru geymdir og fóðraðir í netapokum út í sjó þar til sláturstærð er náð. Góð og gild ástæða er til að ræða málið þar sem fiskeldi er áhrifamikill iðnaður þegar litið er til margra átta. Hér vil ég varpa ljósi á viðfangsefnið með tilliti til náttúruverndar. Umræða um t.d. arðgreiðslur, fiskeldi sem tól til byggðaþróunar og áhrif á ferðamennsku á Íslandi, t.a.m. með tilliti til laxveiða, er því látin liggja á milli hluta að sinni. Í þessu samhengi er gott að líta til þeirrar hugmyndafræði sem sjálfbærni byggir á. Atvinnugreinar af öllu tagi og fyrirtæki innan þeirra eru í auknum mæli krafin um að innleiða sjálfbærni í stefnumótun og að tileinka sér hana í verki. Sjálfbærni í fiskeldi snýst um að viðhalda framboði á ræktuðum eldisfiski í þágu mannsins án þess að skaða líffræðilega fjölbreytni og núverandi vistkerfi sem mörg hver binda kolefni úr andrúmsloftinu, og án þess að fara yfir getu plánetunnar til að endurnýja þær náttúruauðlindir sem þarf til framleiðslunnar. Hagsmunaaðilar um fiskeldi eru flestir á einu máli um að styðja sjálfbært fiskeldi, en stofnanaumboð þeirra og hvatar eru ekki alltaf á pari við þá ósérplægni sem þarf til þess að ná jafnvægi á milli þriggja grunnþátta sjálfbærni, þ.e.a.s. umhverfis, samfélags og efnahags. Í Argentínu er ekki séð fram á að hægt sé að ná þessu jafnvægi með fiskeldi í opnum sjókvíum en stjórn þar í landi bannaði, í júlí síðastliðnum, fiskeldi í opnum sjókvíum. Þetta er fyrsta bann þess eðlis þar í landi, og nær bannið yfir þann flóa þar sem það þykir langvænlegast að stunda sjókvíaeldi. Með þessu móti hafa stjórnvöld í Argentínu gefið ákveðna yfirlýsingu hvað þetta varðar sem ber að taka tillit til þegar velt er vöngum um jákvæðar og neikvæðar hliðar sjókvíaeldis. Þegar það kemur að því að framleiða próteinríka fæðu til neyslu hefur fiskeldisiðnaðurinn almennt, þar sem fisktegundum er breytt með kynbótum, orðið sífellt mikilvægari. Því verður ekki neitað. Vel heppnuð útrás sjávartegunda í eldi, bæði á landi og í sjó, býður upp á verulega aukningu sjálfbærrar fiskeldisframleiðslu og með samþættu átaki til að auka skilvirkni getur sjálfbær fiskeldisframleiðsla stuðlað að því að fullnægja aukinni eftirspurn á heimsvísu eftir fæðuöryggi. En til þess að við njótum góðs af þeim ávinningi sem sjálfbært sjókvíaeldi getur stuðlað að, þá þarf framleiðslan fyrst og fremst að vera vel uppsett, örugg og sjálfbær svo að hún megi teljast heppnuð. Sú aðferðafræði sem notast hefur verið við til þessa við laxeldi í opnum sjókvíum veldur neikvæðum umhverfisáhrifum sem lítið eftirlit er með og getur starfsemin því ekki talist sjálfbær, og þar með ekki vel heppnuð í samhengi við kröfur nútímans. Þar til skýr stefna og aðgerðaráætlun hefur verið mörkuð um sjálfbærni sjókvíaeldis í íslenskum fjörðum, og lagt hefur verið mat á hvort sjálfbærni í greininni sé raunhæfur kostur, þá eru ýmsar spurningar sem koma upp. Hverju er verið að fórna með því að stunda þennan iðnað? Noregur er gott dæmi um tilvik þar sem náttúran hefur ekki fengið að njóta vafans í þágu efnahagslegra hagsmuna. Hversu langt er í að við getum farið að sjá sjálfbæra fiskeldisframleiðslu hér á landi áður en mögulegar óafturkræfar neikvæðar afleiðingar á náttúru og umhverfi eiga sér stað? Afleiðingarnar eru m.a. í formi erfðablöndunar við villta stofna þar sem eldislax sleppur ítrekað úr netapokunum og ógnar tilvist villtra stofna; sníkjudýra og sjúkdóma sem ná út fyrir sjókvíarnar; úrgangs ásamt laxalúsarsem sest á sjávarbotninn með meðfylgjandi neikvæðum áhrifum á botndýralíf og aukinnar mengunar í sjó sem fer almennt súrnandi. Setja má spurningamerki við það að eldisfyrirtækin hafi eftirlit með sér sjálf hvað varðar vöktun á laxalús, en ekki óháðir aðilar. Auk þess dregur iðnaðurinn úr fegurð íslenskra fjarða með því að breyta upprunalegri ásýnd og vekur upp siðferðislegar spurningar hvað varðar dýravelferð miðað við núverandi vinnubrögð en mikill fiskidauði hefur fylgt sjókvíaeldi á norrænum slóðum. Þetta eru dæmi um afleiðingar sem laxeldi í opnum sjókvíum á Íslandi og víðar hefur haft, en iðnaðurinn mun halda áfram að valda neikvæðum áhrifum á lífríki ef aðferðafræðin og afmörkuð stefna breytist ekki. Eins og sjá má eru víðsvegar vísbendingar um að sjókvíaeldi skaði lífríki, líffræðilega fjölbreytni og þar með vistkerfi sem við mannkynið reiðum okkur svo á í ýmsum skilningi. Þar að auki sýnir norsk úttekt frá 2020 að eldislax sem ræktaður er í opnu sjókvíaeldi sé með fimm sinnum stærra kolefnisspor en þorskur. Til að draga fram mikilvægi loftlagsmála í þessu samhengi má nefna skýrslu sem UNICEF gaf ut nýverið sem sýnir að hamfarahlýnun ógni nú milljarði barna. Öll matvælaframleiðsla hefur sínar afleiðingar en velta má fyrir sér þeirri þörf á að leyfa laxeldi í opnum sjókvíum á Íslandi þegar horft er til ofangreindra atriða og þeirrar staðreyndar að starfsemin, framkvæmd með núverandi hætti, er ekki sjálfbær. Með þessum skrifum hvetur undirritaður öll til að leggja mat á og kynna sér betur þær aðferðir sem liggja að baki fiskeldis í sjó á Íslandi. Mikilvægt er að bera þann iðnað saman við aðrar mögulegar aðferðir, sbr. landeldi og innanhúsarækt, sem væri mögulegt að nýta í staðinn. Við stöndum vel að vígi hvað varðar innanhúsarækt með okkar endurnýjanlegu orkugjafa ásamt þekkingu og færni í beinni nýtingu jarðhita sem varmagjafa. En fyrst og fremst á ákvarðanataka í málaflokki fiskeldis og umhverfismála ávallt að byggja á vísindum og sérfræðiþekkingu og ef vísindin eru ekki nógu skýr á náttúran alltaf að njóta vafans þar til vísindin skýrast. Auk þess hvet ég fólk til þess að kynna sér einkunnir sem allir þingflokkarnir fengu í loftslags- og umhverfismálum fyrir Alþingiskosningar frá Ungum umhverfissinnum í gegnum verkefnið SÓLIN. Málefnið sem hér var rætt fellur svo sannarlega innan þess stóra og mikilvæga málaflokks sem ætti að vera í hávegum hafður hjá næstu ríkisstjórn. Höfundur er ferðamálafræðingur og meðstjórnandi Náttúruverndarnefndar Ungra umhverfissinna. Greinin er hluti af greinaskrifaátaki sem ætlað er að vekja athygli á mikilvægi loftslags- og umhverfismála í komandi kosningum. Öll þau mál sem tekin eru fyrir birtast í SÓLINNI - Einkunnagjöf Ungra umhverfissinna fyrir Alþingiskosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Kosningar 2021 Umhverfismál Loftslagsmál Mest lesið Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar