Frá einu stærsta liði Evrópu í Grill 66 deildina Arnar Geir Halldórsson skrifar 2. ágúst 2021 17:28 Nýr þjálfari Þórs á Akureyri. vísir/Getty Þórsarar virðast stórhuga fyrir komandi keppnistímabil í Grill 66 deildinni en félagið tilkynnti í dag um ráðningu nýs þjálfara. Sá þjálfaði makedónska stórveldið Vardar Skopje á síðasta tímabili.
Greint er frá ráðningu Stevce Alusovski á heimasíðu Þórs í dag. Þórsarar féllu úr Olís deildinni á síðustu leiktíð og í kjölfarið hætti Halldór Örn Tryggvason þjálfun liðsins eftir að hafa þjálfað það undanfarin tvö ár. Stevce er 49 ára og átti glæstan leikmannaferil á árum áður; er leikjahæsti landsliðsmaður Makedóníu frá upphafi og einnig sá næstmarkahæsti en handboltagoðsögnin Kiril Lazarov er sá eini sem hefur skorað fleiri mörk en þessi nýi þjálfari Þórs fyrir makedónska landsliðið. Sem fyrr segir þjálfaði hann síðast makedónska stórliðið Vardar Skopje sem hefur verið eitt besta handboltalið heims undanfarin ár en liðið varð meðal annars Evrópumeistari 2017 og 2019. Alusovski tók við þjálfun Vardar í ársbyrjun 2020 og stýrði þeim til meistaratitilsins þar í landi í tvígang. Hjá Vardar þjálfaði hann leikmenn á borð við Timur Dibirov, Ivan Cupic og Christian Dissinger. Hann hafði áður þjálfað RK Pelister, RK Eurofarm Rabotnik í Makedóníu en í sumar missti hann starfið hjá Vardar til Serbans Veselin Vujovic. Keppni í Grill 66 deildinni hefst þann 24.september og mæta Þórsarar ungmennaliði Vals í 1.umferð.
Handbolti Þór Akureyri Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Sjá meira