Borgarlínan og samgönguverkfræðin Jónas Elíasson skrifar 24. maí 2021 10:00 BRT-Lite í Álaborg Tveir samgönguverkfræðingar skrifa á Vísi 22.5 að PlusBus kerfi í Álaborg sé BRT kerfi þó Þórarinn Hjaltason hafi sagt að það sé ekki. Þessi grein er skrifuð til að segja þeim að samgönguverkfræðingum er alveg óhætt að trúa því sem Þórarinn Hjaltason segir. Ef hann segir að þetta sé BRT-Lite þá er það BRT-Lite og verður það þangað til samgönguyfirvöld Álaborgar eru komin með vottun frá ITDP (Institute for Transportation and Development Policy. Borgarlínan er líka BRT-Lite Upphaflega myndin sem birt var af tilvonandi Borgarlínu var af BRT kerfi í Ecuador. Síðan hefur sá kvittur verið uppi að Borgarlínan ætti að vera BRT en að öllum líkindum hefur svo aldrei verið. Verkefnisstjórinn var ekki viss um að sótt yrði um vottun á fundi í ágúst 2019 og sú afstaða er skynsamleg. Fyrirmyndin En það er ekki Plusbus í Álaborg sem er helsta fyrirmyndin að Borgarlínu, það er Bussveien í Stavanger, sbr. grein eftir þáverandi verkefnisstjóra undirbúnings fyrir Borgarlínu í Mbl í des. 2017. Bussveien verður 50 km og þar með lengsta BRT-kerfi Evrópu, sbr. þessa grein. Áætlað er að Borgarlínukerfið verði 58 km. Ef Borgarlínan verður BRT, þá er Evrópumet Stavanger í hættu! Nær hefði verið að taka Þrándheim til fyrirmyndar. Þar eru nýjar línur 1-3, teknar í notkun 2019. Upphaflega stóð til að gera þær BRT, lagt var af stað með sama götusnið og birt er í frumdragaskýrslu borgarlínunnar, þetta var tillagan í upphafi. En henni var hafnað 2011 og línurnar gerðar með biðstöðvum hægra megin og flýtibrautum eftir þörfum, sem er mikið skynsamlegra fyrir innanbæjar strætó. Valdir voru van Hool XXL vagnar (frá Belgíu) , þá má gera sem BHLS (Bus with High Level of Service). Þetta er bláu vagnarnir í frumdragaskýrslunni sem ekki á að kaupa, heldur leggja 300.000 fermetra af þarflausu rauðu malbiki frá malbikunarstöð Rvk, ríkið borgar. Engin þörf fyrir BRT Löngun ráðgjafaverkfræðinga til að gera eitthvað fínt og flott er skiljanleg, en það verður að vera einhver þörf fyrir það. BRT á að líkja eftir MRT (Metro) hvað flutningsgetu varðar, en hér hafa aldrei verið neinar lestar og engin þörf fyrir slíkar eftirlíkingar. Samgönguverkfræðingar sem kynna strætólínur á 30 km/klst með 600 m á milli stöðva sem BRT gera sjálfan sig að athlægi. Og kalla Borgarlínukerfið, sem fer á sama hraða og gamli strætó, hraðvagnakerfi, er líka hlægilegt. Það er líka dálítið hlægilegt að vera að tala um borgarlínu með getu til að sjá fyrir 12% af ferðaþörfinni sem „lausn“ í samgöngumálum. Ein BRT lína flytur gjarnan 60 - 150.000 farþega á dag. 45.000 innstig á dag í allar 20 - 30 línurnar samtals þykir gott hjá Strætó bs. Ef menn vilja svo hraðvagnakerfi gæti Strætó bs léttilega komið upp hraðvagnakerfi í þríhyrningnum Akranes-Selfoss-Keflavík með miðju í Rvk. Þetta myndu verða um 15 hraðvagnastöðvar allt í allt og vagnarnir á 50 -60 km/klst hraða. Gamli strætó mundi sjá um flutning milli stöðvanna. Svona kerfi gæti keppt við einkabílinn. Þar á Borgarlínan ekki möguleika. Hraðbrautir og mislæg gatnamót. Á Íslandi eru ekki hraðbrautir og verða sjálfsagt aldrei. Hægt er að tala um frívegi (freeway), en það er vegur með frjálsum flæði, ljóslaus, hraðinn 60 - 90 km/klst, valinn samkvæmt öryggissjónarmiðum, eins og er á íslenska þjóðvegakerfinu. Að þrengja að umferðinni á slíkum vegum er samgönguverkfræðileg bilun, Laddi hefði líklega sagt: Náttúrlega bilun. Hraðar samgöngur eru nauðsynlegar til að halda uppi þjóðarframleiðslu. Þetta skilja samgönguverkfræðingar og snúa sér að verkefnum sem samræmast því. Hér í Reykjavík þarf að byggja nokkur mislæg gatnamót tíl að gera þjóðvegina að frívegum, en borgarstjórnin hefur verið í þrjóskukasti gagnvart þessu verkefni undanfarin ár. Aðal viðfangsefni samgönguverkfræðinnar Mesta samgönguvandamál dagsin eru umferðatafir og tafakostnaður. Tafakostnaður í dag er 33 miaKr/ári, hækkandi umtæpa 2 miaKr/ári og þetta er lágt metið. Samfélagslegur kostnaður af slíkri stærðargráðu vegna umferðatafa er óþarfur og óviðunandi. Atvinnulífið hefur miklar áhyggjur af þessu og það með réttu. Rvk heldur að hún sé að græða á þessu, fái ókeypis borgarlínu og tafagjöld, en það er misskilningur. Stefna hennar í skipulagsmálum er þegar búin að hrekja alla bestu gjaldendurna til nágrannasveitafélaganna og eftir situr borgarsjóður galtómur. Nú eru fyrirtækin líka að hugsa sér til hreyfings vegna umferðatafanna, t.d. ætlar Icelandair að flytja frá umferðaklessunni í Nauthólsvík til Hafnarfjarðar. Hvað ætla ráðgefandi samgönguverkfræðingar að gera ? Taka þátt í þessu, eða gefa einhver ráð sem virka ?? Höfundur er professor i verkfræði við Háskóla Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samgöngur Borgarlína Jónas Elíasson Mest lesið Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar