Fögnuðu sigri gegn Covid en vöknuðu upp við vondan draum Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 28. apríl 2021 14:45 Flestum íþróttahöllum og skólum hefur nú verið breytt í bráðabirgðaspítala á Indlandi til að takast á við aðra bylgju faraldursins. AP/Dar Yashin Tvö hundruð þúsund hafa nú látist af völdum kórónuveirunnar á Indlandi. Fleiri hafa einungis látist í Bandaríkjunum, Brasilíu og Mexíkó en ástandið hefur versnað hratt á Indlandi síðustu vikur.
Sár skortur er á súrefni, öndunarvélum og öðrum nauðsynjum til að sinna sjúklingum. Sjúkrahús ráða engan veginn við álagið. Tæplega 3.300 létust af völdum veirunnar í landinu í gær og fleiri en 360 þúsund greindust, sem er met í heiminum. Önnur bylgja faraldursins ríður nú yfir í þessu næstfjölmennasta ríki heims og er hún miklum mun verri en sú fyrri. Hápunktur fyrri bylgjunnar var þann 11. september þegar 98 þúsund greindust en með haustinu lægði og eftir áramót voru færri en tuttugu þúsund að greinast dag hvern. Seinni bylgjan skall svo á í mars og síðustu vikur hefur hvert metið fallið á fætur öðru. Undanfarna daga hafa stjórnvöld skráð fleiri en 2.000 dauðsföll dag hvern vegna veirunnar en segja þó að raunverulegur fjöldi sé líklegast töluvert hærri. Hundruð þúsunda greinast nú með veiruna á hverjum degi á Indlandi.EPA/Divyakant Solanki Sár skortur Hamfaraástand ríkir á sjúkrahúsum landsins og mun færri komast að en þurfa. Eins og stendur eru um tuttugu þúsund á sjúkrahúsi í Nýju-Delí einni og margfalt fleiri á landsvísu. Þeir sem eru svo heppnir að fá pláss á sjúkrahúsum geta þó ekki fengið þá þjónustu sem þörf er á enda er sömuleiðis skortur á súrefni, öndunarvélum og öðrum nauðsynjum. AP-fréttaveitan segir fjölskyldur sjúklinga leita logandi ljósi að súrefniskútum um allan bæ en ekkert gengur. Samkvæmt gögnum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar er þörf á um þrettán milljónum rúmmetra af súrefni fyrir Covid-sjúklinga á dag á Indlandi, meira en í nokkru öðru ríki. PATH, lýðheilsusamtök sem starfa meðal annars á Indlandi, segja að eftirspurnin aukist um sex til átta prósent á hverjum degi. Þessi súrefnisþörf, sem hefur tífaldast frá áramótum og er þreföld á við það sem var þegar fyrri bylgjan reið yfir, er meiri en ríkið hefur tök á að svara og deyr fólk nú á sjúkrahúsum sem hefði lifað ef það hefði fengið súrefni. Yfirvöld hafa reynt að leysa vandann en án teljandi árangurs. Breska ríkisútvarpið hafði eftir Rajesh Bhushan heilbrigðisráðherra að alla jafna fengi heilbrigðiskerfið um 15 prósent alls súrefnis landsins. Nú fái það um níutíu prósent. Herinn sér nú um að flytja það súrefni sem til er á milli borga og borgir og ríki reyna að flytja það inn að utan. Hæstiréttur landsins hefur biðlað til ríkisstjórnar Narendra Modi forsætisráðherra að setja fram heildstæða Covid-stefnu og leysa úr súrefnisskortinum. Ekki bara súrefnið Eins og áður segir er einnig skortur á öndunarvélum og plássi. Jafnvel þótt íþróttahöllum, skólum og öðrum stórum byggingum hafi verið breytt í bráðabirgðasjúkrahús fær fárveikt fólk enn ekki pláss vegna gríðarlegs fjölda alvarlega veikra. Öndunarvélar eru sömuleiðis af skornum skammti. Sjúkrahús hafa ekki viljað taka á móti þeim fáu öndunarvélum sem framleiddar eru innanlands vegna óáreiðanleika, samkvæmt indverskum miðlum, og ríkisstjórnin hætti við áform sín um að panta fleiri slíkar öndunarvélar. Hjálp að utan Önnur ríki leitast nú við að koma Indverjum til aðstoðar vegna versnandi stöðu. Bretar hafa þegar flogið með súrefnisþjöppur, öndunarvélar og annan búnað til landsins og Þjóðverjar, Bandaríkjamenn, Pakistanar og fleiri ríki hyggjast gera slíkt hið sama. „Við stöndum með Indverjum bæði sem vinir og bandamenn á þessum erfiðu tímum í baráttunni við kórónuveiruna,“ sagði Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands. Þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta átti símafund með indverskum kollega sínum um helgina þar sem hann hét því að senda öndunarvélar og lyf og þá hyggjast Bandaríkjamenn einnig fjármagna uppbyggingu verksmiðja sem framleiða bóluefni á Indlandi. Brennd undir berum himni Hjálparsendingarnar eru hins vegar fæstar komnar og staðan í höfuðborginni Nýju-Delí, sem og víðar, er afar slæm. Bálstofur ráða engan veginn við mikinn fjölda dauðsfalla og bráðabirgðaaðstöðu hefur verið komið upp á bílastæðum og í görðum Nýju-Delí. Hin látnu eru brennd undir berum himni. AP-fréttaveitan ræddi í dag við Amit Kaushik, íbúa í borginni og einn af fjölmörgum sem hefur misst ástvin síðustu vikurnar. Samkvæmt opinberri tölfræði deyja nú um 380 á dag af völdum Covid-19 en Kaushik sagði rétta tölu trúlega í kringum þúsund. Þetta mat byggi hann á heimsóknum á bæði sjúkrahús og bálstofur borgarinnar. Narendra Modi forsætisráðherra hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir sein viðbrögð.EPA-EFE/PRESS INFORMATION BUREAU Aðgerðaleysi Greina má mikla reiði í garð stjórnvalda bæði í höfuðborginni og landinu öllu vegna bæði seinna viðbragða við annari bylgju faraldursins og súrefnisskortsins. Ákvarðanir ríkisstjórnar Modis um að heimila stærðarinnar kosningafundi og hátíðahöld hafa vakið litla lukku á meðal landsmanna og þá eru stjórnvöld einstakra ríkja sökuð um aðgerðaleysi sömuleiðis. Reglum um grímuskyldu hefur lítið verið framfylgt í landinu og skortur er sagður á skýrum skilaboðum til landsmanna. Þá brugðust ráðamenn seint við þegar ljóst var að önnur bylgja var að skella á landinu. Modi-stjórnin hreykti sér að því að hafa sigrast á veirunni og formaður lýðheilsustofnunar landsins lét falla digurbarkaleg ummæli um að ekki þyrfti að bólusetja landsmenn vegna náttúrulegs ónæmis. Indverjar hafa mótmælt stjórnvöldum harðlega á veraldarvefnum og krafist aðgerða. Það vakti því litla lukku þegar ríkisstjórnin krafðist þess um helgina, og fékk í gegn, að samfélagsmiðillinn Twitter fjarlægði innlegg þar sem viðbrögð stjórnvalda við faraldrinum voru gagnrýnd.
Indland Fréttaskýringar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Fleiri en 200 þúsund látið lífið af völdum Covid-19 á Indlandi Kórónuveirufaraldurinn er enn í mikilli útbreiðslu á Indlandi en á síðustu sjö dögum hafa fleiri greinst smitaðir þar en í nokkru öðru landi. 28. apríl 2021 06:47 Koma Indverjum til aðstoðar Fjöldi ríkja kemur nú Indverjum til aðstoðar en kórónuveirufaraldurinn er í hæstu hæðum í þessu næstfjölmennasta landi heims. 26. apríl 2021 20:01 Fleiri en 200 þúsund látið lífið af völdum Covid-19 á Indlandi Kórónuveirufaraldurinn er enn í mikilli útbreiðslu á Indlandi en á síðustu sjö dögum hafa fleiri greinst smitaðir þar en í nokkru öðru landi. 28. apríl 2021 06:47 350.000 greindust með Covid-19 á Indlandi í gær og 2.500 létust Bretar, Bandaríkjamenn og Evrópusambandið undirbúa nú aðstoð til handa Indverjum en kórónuveirufaraldurinn er nú á háalvarlegu stigi í landinu. Tæplega þrjúhundruð og fimmtíuþúsund manns greindust smituð þar í gær og um 2.500 létust. 26. apríl 2021 07:30 Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Fleiri fréttir Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Sjá meira
Fleiri en 200 þúsund látið lífið af völdum Covid-19 á Indlandi Kórónuveirufaraldurinn er enn í mikilli útbreiðslu á Indlandi en á síðustu sjö dögum hafa fleiri greinst smitaðir þar en í nokkru öðru landi. 28. apríl 2021 06:47
Koma Indverjum til aðstoðar Fjöldi ríkja kemur nú Indverjum til aðstoðar en kórónuveirufaraldurinn er í hæstu hæðum í þessu næstfjölmennasta landi heims. 26. apríl 2021 20:01
Fleiri en 200 þúsund látið lífið af völdum Covid-19 á Indlandi Kórónuveirufaraldurinn er enn í mikilli útbreiðslu á Indlandi en á síðustu sjö dögum hafa fleiri greinst smitaðir þar en í nokkru öðru landi. 28. apríl 2021 06:47
350.000 greindust með Covid-19 á Indlandi í gær og 2.500 létust Bretar, Bandaríkjamenn og Evrópusambandið undirbúa nú aðstoð til handa Indverjum en kórónuveirufaraldurinn er nú á háalvarlegu stigi í landinu. Tæplega þrjúhundruð og fimmtíuþúsund manns greindust smituð þar í gær og um 2.500 létust. 26. apríl 2021 07:30