Sektaðir um 250 þúsund krónur í september en ekki borgað Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. apríl 2021 14:19 Ferðamennirnir voru undir áhrifum áfengis á stað í miðbæ Reykjavíkur þann 26. september. Þeir voru sektaðir um 250 þúsund krónur sem er hámarkssekt. Þeir hafa ekki greitt sektina. Vísir/Vilhelm Ríkissaksóknari telur ekki tilefni til að hækka sektir vegna brota á sóttkví. Sektarheimildir séu þegar ríflegar miðað við sektir almennt hér á landi.
Svo segir í svari ríkissaksóknara til heilbrigðisyfirvalda. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir lagði til á dögunum að sektir vegna brot á sóttkví yrðu hækkaðar til muna. Ferðamenn sem sektaðir voru um 250 þúsund krónur fyrir brot á sóttkví þann 26. september í fyrra hafa ekki enn greitt sektina. Eftir að dómstólar komust að því að reglugerð stóðst ekki lög sem skikkaði fólk á leið til Íslands frá hááhættusvæðum til að dvelja í sóttvarnarhúsi gerði sóttvarnalæknir nýjar tillögur. Allir skyldu fara í fimm daga sóttkví við komu til landsins óháð því hvaðan þeir kæmu, eftirlit með fólki í heimasóttkví yrði aukið og dvöl í sóttvarnahúsi gerð gjaldfrjáls. Hæsta sekt 250 þúsund krónur Þá lagði Þórólfur til að sektir vegna brota á sóttkví yrðu hækkaðar til muna, eða að minnsta kosti tryggt að sektarheimildir væru fullnýttar. Heimildin er 250 þúsund krónur. Þetta vildi Þórólfur að yrði unnið í samvinnu við lögregluembættin en ætla mætti að auknar sektarheimildir letji fólk til að brjóta reglur um sóttkví. Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari telur ekki heppilegt að hækka sektir vegna sóttkvíarbrota.Vísir/Vilhelm Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari leitaði upplýsinga hjá lögreglustjórum vegna þessarar tillögu Þórólfs. Spurði hún um fjárhæð sekta vegna brota á sóttkví og til hvers ákærendur lögreglustjóra litu við mat á alvarleika brotanna, og þar með fjárhæð sektanna. Sektin er í dag á bilinu 50-250 þúsund krónur. Líklegra til árangurs að setja fólk í sóttvarnahús Þau svör fengust að sektir hefðu í einhverjum tilvikum verið upp á 250 þúsund krónur. Til dæmis í tilfelli þriggja erlendra ferðamanna sem áttu að vera í sóttkví. Tilkynnt var um þá á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur. Voru þeir undir áhrifum áfengis og innan um aðra ótengda einstaklinga. Var sekt þeirra ákvörðuð 250 þúsund krónur á mann. Í tilfelli einstaklings sem fór með öðrum í bíl sem átti að vera í sóttkví var sektin ákveðin 50 þúsund krónur. Dæmi eru um að ferðamenn fari beint á gosstöðvarnar við komuna til landsins. Jafnvel þótt þeir eigi að vera í sóttkví.Vísir/ArnarHalldórs „Ríkissaksóknari telur ekki efni til að hækka sektir vegna brota á sóttkví enda eru sektarheimildir ríflegar miðað við sektir almennt hér á landi. Þá má ætla að sú heimild sóttvarnarlæknis til að ákveða að einstaklingur sem ekki hefur fylgt reglum um sóttkví eða einangrun skuli sæta sóttkví eða einangrun í sóttvarnahúsi hafi mun meiri fælingarmátt en hækkun sekta,“ segir í bréfi ríkissaksóknara til heilbrigðisyfirvalda. Þá bendir ríkissaksóknari á að stór hluti þeirra sem verða uppvísir að brotum á reglum um sóttkví séu erlendir ferðamenn. Af því leiði að erfitt getur reynst að innheimta sektir eftir að viðkomandi sé farinn úr landi. „Því er heppilegra að sektarfjárhæðin sé nokkuð viðráðanleg þannig að hinn erlendi ferðamaður geti greitt sektina og þá sem fyrst, jafnvel á vettvangi. Í því sambandi má velta því upp við ríkislögreglustjóra hvort ekki væri æskilegt að útbúa vettvangsskýrsluform fyrir þessi brot.“ Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur áhyggjur af stöðu mála. Hann hefur lagt til að skikka fólk af hááhættusvæðum í sóttvarnahús. Reglugerð þess efnis stóðst ekki lög. Þá hefur hann viljað hækka sektir en það virðist ekki ætla að ná í gegn.Vísir/Vilhelm Ríkissaksóknari segir í svari við fyrirspurn fréttastofu að samkvæmt skráningum í málaskrárkerfi lögreglu hafi ferðamennirnir ekki greitt 250 þúsnd króna sekt sína. Þeir brutu reglur um sóttkví þann 26. september 2020. Samræma með nýjum fyrirmælum Ríkissaksóknari hefur gefið út nýr fyrirmæli um brot gegn sóttvarnarlögum og reglum í samræmingarskyni og gera grein fyrir sjónarmiðum sem lögreglustjórum og ákærendum þeirra ber að líta til við mat á alvarleika brotanna og þar með fjárhæð sektanna. Í fyrirmælunum segir: „Við mat á alvarleika brotanna verði m.a. litið til þess í hvaða aðstæðum sakborningur hefur verið þegar ætlað brot á sér stað, bæði hvað varðar samneyti við aðra einstaklinga, og þá hversu marga, hvar viðkomandi er staddur og hvort hann hafi farið á einn eða fleiri staði, hvort sakborningur gætti varúðar þrátt fyrir brotið, eða hvort hann sýndi af sér vítaverða háttsemi að öðru leyti s.s. með því að vera undir áhrifum áfengis eða ávana- og fíkniefna innan um aðra ótengda einstaklinga.“ Tugir erlendra ferðamanna, sem sektaðir eru fyrir hraðaakstur ár hvert, yfirgefa landið án þess að greiða sektina. Þetta má reglulega sjá í Lögbirtingablaðinu þar sem dómar eru birtir útlenskum ökumönnum þar sem þeir mættu ekki fyrirkalli dómstóla og ekki tókst að birta þeim dóma. Því þeir voru farnir úr landi. Af svörum ríkissaksóknari til heilbrigðisyfirvalda má sjá að hann telur sama vandamál blasa við í tilfelli þeirra sem sektaðir eru hér á landi fyrir brot á sóttkví.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Fleiri fréttir Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum Sjá meira