Skipsheitið Kap er gælunafn stúlku Kristján Már Unnarsson skrifar 20. febrúar 2021 13:48 Útvegsbóndinn Jón Jónsson í Hlíð og kona hans Þórunn Snorradóttir ásamt barnahópnum. Elsta barnið, dóttirin Þuríður Kapítóla, stendur aftast fyrir miðju. Heimaslóð/Einkasafn, Þyri Kap Skip Vinnslustöðvarinnar, Kap VE 4, sem landaði fyrsta loðnufarmi íslensks fiskiskips í þrjú ár, og kom þannig loðnuvertíðinni af stað í Vestmannaeyjum þetta árið, ber forvitnilegt heiti. Sem skipsnafn í Eyjum á það sér nærri eitthundrað ára sögu en nafnið Kap er stytting á kvenmannsnafninu Kapítóla.
Sagan á bak við nafnið er sennilega vel kunn mörgum Eyjamönnum en síður öðrum. Á vefnum Aflafréttir má lesa að alls hafi sjö bátar borið þetta nafn allt frá árinu 1924. Það ár keypti útgerðarmaðurinn Jón Jónson í Hlíð 27 tonna bát frá Noregi og gaf honum nafnið Kap eftir elstu dóttur sinni, sem hét Þuríður Kapítóla en var ætíð kölluð Kap. Kap í Vestmannaeyjahöfn að landa fyrstu loðnunni síðastliðinn þriðjudag. Áhugaverð saga er á bak við þetta óvenjulega skipsnafn.Egill Aðalsteinsson „Ég leit alltaf á hana sem ömmu mína. Kap var Amma, með stórum staf, mín og okkar systkina,“ segir Þyri Kap Árnadóttir í samtali við Vísi í dag en hún er dóttir Árna Guðmundssonar, sem var fóstursonur Þuríðar Kapítólu. Kapítóla Jónsdóttir, Kap. Hún var fædd árið 1905 en lést árið 1961.Heimaslóð „Pabbi hennar var útgerðarmaður og ól með sér skáldadrauma. Hann las bókina Kapítóla og var svo heillaður af söguhetjunni að hann ákvað að ef hann eignaðist dóttur þá myndi hann skíra hana eftir henni. Konan hans var jarðbundnari og hún vildi nafnið Þuríður. Þuríðarnafnið var aldrei notað og gleymdist alveg. Hún var aldrei kölluð neitt annað en Kap. Sjálf vildi hún aldrei nota annað en nafnið Kap, eins og söguhetjan í bókinni,“ segir Þyri Kap, sem einnig er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum. Þuríður Kapítóla var elsta barn útgerðarmannsins en hún var fædd árið 1905. Hún var gift Jóni Þorleifssyni bifreiðarstjóra. Þeim hjónum varð ekki barna auðið en ólu upp frænda hennar, Árna Guðmundsson. Árni skírði dóttur sína Þyri Kap í höfuðið á fóstru sinni. „Nafnið Kap er mér mjög kært. Við erum fjórar sem heitum Kap en mannanafnanefnd viðurkennir ekki nafnið þar sem við erum of fáar. Nafnið Þyri hef ég heyrt að hafi verið notað sem stytting á Þuríður,“ segir Þyri Kap. Núverandi Kap er sjöunda skipið í Vestmannaeyjum sem ber þetta nafn.Egill Aðalsteinsson Á Eyjavefnum Heimaslóð er minningargrein sem Þorsteinn Þ. Víglundsson skólastjóri ritaði um Kapítólu Jónsdóttur en hún lést árið 1961, 55 ára gömul. „Í daglegri önn og samskiptum nefndu Eyjabúar hana gælunafninu Kap,“ segir Þorsteinn. Hjónin Jón Þorleifsson og Kapítóla Jónsdóttir.Heimaslóð/Einkasafn, Þyri Kap „Vinnuhugurinn, eljan og atorkan voru ríkar eigindir í skapgerð og sálarlífi Kapítólu Jónsdóttur. Það leit helzt út fyrir, að hún ynni sér aldrei hvíldar. Og öll hennar störf voru innt af hendi af frábærri samvizkusemi og alúð, ósérhlífni og skyldurækni. Um þetta get ég borið persónulega, þar sem hún var starfsmaður Gagnfræðaskólans í 9 ár, ræsti hann daglega, meðan starfað var hvert ár. Það starf innti hún af hendi af frábærum mannkostum og trúmennsku,“ segir í minningargrein Þorsteins skólastjóra frá árinu 1962. Skáldsagan um Kapítólu Black er eftir bandaríska rithöfundinn Emmu Southworth. Sagan var fyrst gefin út árið 1859 og fjallar um frakka og klára götustelpu í New York, að því er fram kemur á vef Forlagsins, sem endurútgaf bókina fyrir þremur árum. Þar segir að Íslendingar hafi kynnst Kapítólu fyrst sem framhaldssögu í Heimskringlu á árunum 1896–1897 og síðan hafi hún komið út mörgum sinnum hér á landi. „Hér á landi varð Kapítóla innblástur og fyrirmynd þriggja kynslóða kvenna sem lærðu af henni sjálfstæði, hvatvísi, hugrekki og staðfestu,“ segir í ritdómi Steingerðar Steinarsdóttur, sem Forlagið vitnar til. Hér má sjá þegar fyrstu loðnunni var landað úr Kap í vikunni:
Vestmannaeyjar Sjávarútvegur Mannanöfn Tengdar fréttir Fyrstu loðnunni landað í Eyjum Fyrsta loðnufarmi íslensks fiskiskips í þrjú ár var landað í Vestmannaeyjum í dag. Um þrjátíu prósent loðnukvótans er gerður út í Vestmannaeyjum og var líf og fjör í Eyjum í dag. 16. febrúar 2021 23:39 Finnst gott að finna loðnulyktina og að fólkið fái meira útborgað Hrognafylling loðnunnar sem komin er á land í Vestmannaeyjum er orðin nægilega mikil fyrir Japansmarkað, sem stóreykur verðmæti hennar. Í Eyjum er slegist um að komast á loðnuvertíðina. 18. febrúar 2021 21:55 Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Sjá meira
Fyrstu loðnunni landað í Eyjum Fyrsta loðnufarmi íslensks fiskiskips í þrjú ár var landað í Vestmannaeyjum í dag. Um þrjátíu prósent loðnukvótans er gerður út í Vestmannaeyjum og var líf og fjör í Eyjum í dag. 16. febrúar 2021 23:39
Finnst gott að finna loðnulyktina og að fólkið fái meira útborgað Hrognafylling loðnunnar sem komin er á land í Vestmannaeyjum er orðin nægilega mikil fyrir Japansmarkað, sem stóreykur verðmæti hennar. Í Eyjum er slegist um að komast á loðnuvertíðina. 18. febrúar 2021 21:55