Árið 2020 var sérstaklega erfitt hjá Viðari Skjóldal Stefán Árni Pálsson skrifar 15. janúar 2021 13:32 Viðar Skjóldal vakti mikla athygli á Snapchat fyrir nokkrum árum. vísir/vilhelm „Þetta var heldur betur árið sem átti að vera alveg frábært og í dag er ég giftur með þrjú börn og konu,“ segir Viðar Skjóldal, betur þekktur sem Enski, sem hefur verið fyrirferðamikill á Snapchat síðustu ár og vakið þar mikla athygli. Hann mætti í Harmageddon á X-inu í gær og fór yfir liðið ár. „
Það eina sem ég vil muna frá árinu 2020 er að Liverpool varð Englandsmeistari og ég gifti mig,“ segir Viðar. Viðar lenti í kastljósi fjölmiðlanna í vikunni þegar fjallað var um uppákomu sem hann lenti í á vef Hringbrautar. Viðar fór yfir atburðarásina í Harmageddon. „Ég og konan mín förum út að borða á American Style og ég pantaði mér einn lítinn bjór í gleri sem ég náði ekki einu sinni að klára,“ segir Viðar og bætir við að hann hafi því næst farið út í bíl með konunni sinn sem þarna var orðin mjög þreytt. Hún hafi ákveðið að leggja sig í bílnum og Viðar ákvað að fara inn í prentsmiðju við hliðin á veitingastaðnum. Upptaka af símtali við blaðamann fór í dreifingu Hann langaði að athuga með brúðkaupsboðskort og fékk ágæta þjónustu en fór síðan aftur inn í bifreið sína. Starfsmaður prentsmiðjunnar kemur því næst út og biður hann um að drepa á bílnum sem Viðar segist hafa gert með glöðu geði. Hann segist hafa ákveðið að fara á nýjan leik inn í verslunina til að láta prenta út fyrir sig eitt blað en að hans sögn hafi starfsmaðurinn brugðist illa við og að lokum rekið hann út og smúlað hann. Myndband af atvikinu var birt á samfélagsmiðlum og birtist frétt um það á vefsíðu Hringbrautar eins og áður segir. Seinna um kvöldið segist Viðar hafa hringt upp á fréttastofu Fréttablaðsins og ræddi þar við blaðamann um umfjöllun Hringbrautar, en Fréttablaðið og Hringbraut eru skipuð blaðamönnum á sömu ritstjórn og heyra undir ritstjórann Jón Þórisson. Upptaka af símtalinu fór hins vegar í dreifingu og hefur gengið milli manna á samfélagsmiðlum í vikunni. „Svo í fyrradag hringir í mig ritstjóri Fréttablaðsins og segir við mig að þeir líta þetta grafalvarlegum augum. Ég spyr bara af hverju ert þú að hringja í mig? Hvað á ég að gera? Þetta símtal lak út frá þeim, væntanlega frá einhverjum starfsmanni.“ Saknaði íþrótta í sjónvarpinu Viðar flutti ásamt eiginkonu sinni í Reykjanesbæ á síðasta ári um það leyti þegar kórónuveirufaraldurinn var að fara af stað um heim allan. „Það voru engar íþróttir í sjónvarpinu og maður vissi ekkert hvað maður átti að gera. Ég hef sennilega aldrei orðið eins þunglyndur á ævi minni. Þetta var rosalega erfiður tími. Í janúar á síðasta ári fæ ég símtal um að kvíðalyf sem ég hafði verið á væru að hætta á markaðnum og ég þyrfti að fá eitthvað annað. Ég fer til læknisins og tek þá þá ákvörðun að hætta alfarið á lyfjunum, mér liði svo vel.“ Um vorið er Viðar farinn að fá mikil kvíðaköst. „Þetta lýsir sér sem svona herpingur í maga og hjartslátturinn fer í tvö hundruð. Þetta er algjör viðbjóður og ég hef verið með kvíða frá því að ég var barn. Þetta var orðið svo slæmt að ég var farinn að missa sjónina. Ég var farinn að vakna á nóttunni inni í herbergi og bara blindur. Þetta endaði með því að ég fór til læknis og fékk ný kvíðalyf. Ég prófaði tvö eða þrjú lyf og svo fannst frábært lyf fyrir mig.“ Erfiðir dagar Viðar segir að mikið hafi gengið á í lífi hans þegar hann bjó í Reykjanesbæ. „Ég er ekkert að setja út á þetta bæjarfélag en ég lenti bara í slæmum málum þarna og það var endalaust áreiti, grjót og eggjaköst í rúðurnar hjá mér á nóttunni og börnin að vakna. Ég hringdi í lögregluna og þeir höfðu engan áhuga á þessu. Ég hélt fyrst að þetta væri bara út af mér en svo var þetta í gangi í hverfinu.“ Viðar segir að hann hafi einfaldlega fengið líflátshótanir eftir að hann gekk í það heilaga í sumar. „Það hringir í mig kona strax eftir athöfnina og segir við mig að ég eigi ljótustu konu í heimi og maðurinn hennar sé hundrað kílóa sterabolti og það koma líflátshótanir og ég veit ekki hvað. Ég varð mjög hræddur og hringdi strax í lögregluna.“ Viðar var lagður inn á geðdeild í haust eftir einstaklega erfitt ár þar sem hann segist hafa náð ákveðnum botni. Hér að neðan má hlusta á viðtalið við Viðar þar sem hann fer yfir árið 2020.
Reykjanesbær Harmageddon Mest lesið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Keppast um að minnast Stewarts Lífið Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Lífið samstarf Fleiri fréttir Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Sjá meira