Óttaslegin á Spáni og komast ekki heim Jakob Bjarnar skrifar 1. apríl 2020 12:57 Götur í Torrevieja eru auðar. Gréta Jónsdóttir biðlar til stjórnvalda en hún og maður hennar erum bæði lungna-, hjarta- og gigtarsjúklingar. Þau óttast smit en Spánn hefur orðið hart úti vegna Covid-19.
Nokkur fjöldi Íslendinga er nú fastur á Spáni, landi sem hefur orðið hart úti vegna Covid-19 sjúkdómsins, og sjá ekki færa leið heim til Íslands. Um er að ræða hóp hvar í eru einstaklingar sem er með undirliggjandi sjúkdóma sem þýðir að þau eru í áhættuhópi. „Við erum íslenskir ríkisborgarar með lögheimili á Íslandi, en erum núna á Spáni, Costa Blanca. Við áttum miða með Norwegian til Íslands í apríl, en búið að fella niður allar flugferðir hjá þeim fram í maí,“ segir Gréta Jónsdóttir fyrrverandi uppeldis- og hjónabandsráðgjafi. Hún er, ásamt eiginmanni sínum og fjölda annarra Íslendinga, föst á Spáni en mörg hver eru orðin afar óttaslegin. Þau hjónin með undirliggjandi sjúkdóma Og þeir sem eru á Spáni hafa fulla ástæðu til að óttast. Covid-19 hefur lagst þungt á Spán, þar er sjúkdómurinn og útbreiðsla hans nú að ná hámarki. Dauðsföll sem rakin eru til Covid-19 eru nú komin í um níu þúsund manns, þegar þetta er skrifað. En gagnvirkt kort um útbreiðslu sjúkdómsins má sjá hér neðar og er það uppfært reglulega. Neyðarástandandi hefur verið lýst yfir og er ætlað að það standi til 12. apríl næstkomandi hið minnsta. „Við erum bæði lungna-, hjarta- og gigtarsjúklingar, maðurinn minn skerta lungnastarfsemi vegna fylgikvilla gigtar,“ segir Gréta. Nú er 18. dagur í útgöngubanni. „Við megum fara í matvörubúð og apótek, en fáum engar gönguferðir eða líkamsrækt sem er skelfilegt og strax farið að koma niður á lungnastarfsemi og fleiru. Það er nánast enga lækna- eða sérfræðilæknisþjónustu að fá, tímar afpantaðir og ekki vitað hvenær hægt er að fá tíma aftur. Skilst að það sé búið að þjóðnýta einkasjúkrahúsin og Háskólasjúkrahúsið í Torrevieja á fullt í fangi með Covid-19 sjúklinga,“ segir Gréta. Höfðu ekki efni á flugmiðanum En, hvers vegna eru þau ekki komin heim? Þar er hægara um að tala en í að komast. Gréta Jónsdóttir segir þau hjónin lífeyrisþega með litla peninga milli handa og þau hafi því ekki komist í þær flugferðir sem farnar voru frá Alicante fyrir mánaðarmótin. „Að eigin frumkvæði flaug Icelandair 3 ferðir neyðarflug til Alicante í mars, sem er jú alveg frábært hjá þeim og fallega gert,“ útskýrir Gréta. Nema síðasta ferðin þaðan hafi verið 28. mars. „Við sem erum lífeyrisþegar með litla peninga gátum ekki komist í þessi flug, útborgun er jú um mánaðamót.“ Miðaverðið var um 82 þúsund krónur og munar um minna þegar fólk hefur ekki mikið á milli handanna. Gréta hefur það eftir borgaraþjónustu utanríkisráðuneytis að það væru 4 til 500 manns eftir, en Icelandair segist ekki ætla að fljúga fleiri ferðir. „Get ekki skilið af hverju þeir vilja ekki fara eina eða tvær ferðir í viðbót, varla hefur verið tap á ferðunum þar sem fargjaldið var yfir 80.000 á mann. Þannig að við erum algjörlega föst hér og erum verulega uggandi um heilsu okkar og velferð. Skilst á Borgaraþjónustunni að eina leiðin núna sé að fljúga með neyðarflugi SAS til Stokkhólms, þaðan til Heathrow og svo til Íslands. Það eru tvær millilendingar, langt og hættulegt flug upp á mögulegt smit,“ segir Gréta. Gréta vill beina þeirri fyrirspurn til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins hvort til standi að gera eitthvað fyrir þann hóp Íslendinga sem eftir eru úti á Spáni? En, sem stendur er ekkert úrræði á borðum þar sem beinist beint að þeim hópi. Afar flókin og erfið staða Vísir ræddi við Maríu Mjöll Jónsdóttur sem er deildarstjóri upplýsingadeildar utanríkisráðuneytisins. Hún segir þetta afar flókna stöðu, nú þegar við blasi að landamærum víða hafi verið lokað. Þetta væri að verulegu leyti á hendi Icelandair þar sem um er að ræða almennar flugsamgöngur í heiminum öllum. Þar hafi flugfélagið besta yfirsýn en ríkisstjórnin hefur gert samning við Icelandair um að annast þær flugsamgöngur sem í boði eru. „En, þetta er flókið fyrir marga sem eru vanir að geta flogið beint frá Þýskalandi, Spáni og fleiri löndum. En staðan hefur breyst alls staðar. Við erum í góðu samstarfi við Icleandair og útvegum þeim tölur sem við höfum og svo hafa þau aðgang að góðum upplýsingum um eftirspurn hjá sér.“ María Mjöll ásamt Ölmu Möller landlækni. Hún segir stöðuna afar flókna á heimsvísu. Utanríkisráðuneytið er í góðu samstarfi við Icelandair og veitir þeim upplýsingar um eftirspurn en það er flugfélagsins að skipuleggja flugferðir, þeirra er yfirsýnin.visir/vilhelm María Mjöll segir þetta þannig hjá ráðuneytinu að ekki sé gott að hafa nákvæmar tölur yfir þetta en í gagnagrunni hvar fólk skráir sig sjálft, Íslendingar í útlöndum, séu um 11.500 manns sem þar af fimm hundruð manns sem eru að leita leiða heim. „Fáir hafa haft samband við okkur sem eru í brýnum vanda,“ segir María Mjöll og að um 4.600 manns hafi sent inn fyrirspurnir. Margir á heimleið Þeir sem eru í svona langmestu vandræðunum er fólk sem er statt í fjarlægum ríkjum þar sem er algjörlega búið að loka landamærunum og fólk á mismikinn rétt á heilbrigðisþjónustu. „Þess vegna höfum við haft samband við 2000 manns sem eru skráðir hjá okkur, hringt í þá sem staddir eru utan Evrópu. Það er sem betur fer þannig að 75 prósent af því fólki er annað hvort komið heim eða búið að ákveða að vera áfram. Töluverður fjöldi sem er á leiðinni heim.“ Margir Íslendingar sem nú eru staddir í útlöndum og eru afar uggandi um sinn hag horfa nú til flugvéla Icelandair.Vísir/Vilhelm María Mjöll segir að sér sé kunnugt um að Icelandair séu að skoða möguleika á flugi til Stokkhólms og svo er flogið á London, næstum daglega. Fólk getur komið sér þangað, það hefur verið sú leið sem hefur verið greið, hvaðanæva úr Evrópu. „Við höfum beint fólki á London og hins vegar Boston sem hafa verið þessar aðalleiðir undanfarna daga.“ María Mjöll ítrekar að þessi staða sé afar sérstök og þessi vandi sé uppi hvarvetna í heiminum. Hún segist skilja það mjög vel að fólk sé áhyggjufullt. Eiginkonan föst í Svíþjóð Og ekki er ofsagt að vandinn sé víðtækur og spjótin standa að utanríkisráðuneytinu og Maríu úr öllum áttum. Í Reykjavík síðdegis í gær var rætt við Guðlaug Þór Þórðarson utanríkisráðherra um Íslendinga í útlöndum. Vísir hefur einnig rætt við Rúnar Vilhjálmsson prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Hann lýsir hremmingum eiginkonu sinnar sem hann hefur áhyggjur af en hún hefur ekki komist heim til Íslands frá Svíþjóð. Þrátt fyrir fróm orð um að sú leið væri fær. Hann hefur sent Maríu Mjöll erindi þar sem hann vitnar til orða hennar um að mestur vandinn snúi að Íslendingum utan Evrópu. Rúnar telur þetta villandi. „Nú eru Íslendingar strandglópar í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, komast illa heim til Íslands og fá engar upplýsingar um hvenær þeir komast heim - sumir bíða eftir svörum á hótelum í Skandinavíu, kona mín þar með talið.“ Rúnar bendir á að samningur stjórnvalda og Flugleiða frá föstudeginum tryggir EKKI flug frá Stokkhólmi til Íslands. Samkvæmt þeim samningi þurfi Icelandair aðeins að fljúga frá London eða Stokkhólmi, auk Boston eins og áður sagði. Rúnar Vilhjálmsson kallar eftir frumkvæði stjórnvalda. Hann telur að rekstrarleg sjónarmið hafi ráðið því að Icelandair vilji helst bara fljúga til London en hafi nú sleppt því að bjóða uppá flug frá Stokkhólmi. Rúnar segir Icelandair hafa valið að fljúga frá London og ætlar að það hljóti að vera hagstæðara rekstrarlega séð. Engar upplýsingar fáist um hvenær flogið verður aftur frá Stokkhólmi. Íslendingar hafi komið sér með ærinni fyrirhöfn til Stokkhólms til dæmis frá Osló, Malmö, Lundi, eða Gautaborg, af því þeir voru með flugmiða til Íslands frá Stokkhólmi og vilyrði um flug frá Flugleiðum. Þeir hafi fengið að vita með dags fyrirvara að ekkert verði af viðkomandi flugi. Gagnrýnir stjórnvöld harðlega „Ekki er auðvelt að ná tengiflugi gegnum London: Bæði er að nánast ógerningur er að fá tengiflug sama dag, erfitt að fá hótel í London (lokanir hótela og hótelrými tekin undir sjúklinga), og síðast en ekki síst óvíst hvort af flugi verður daginn eftir að komið verður til London: Beint flug frá Stokkhólmi til Íslands er því brýnt fyrir íslenska strandaglópa í Skandinavíu. Þetta verða utanríkis- og samgönguráðuneytin að skilja, og stjórnvöld að bregðast við,“ segir Rúnar og gagnrýnir stjórnvöld harðlega. Í bréfi hans til Maríu segir meðal annars: „Aðkoma stjórnvalda að einkafyrirtækinu Flugleiðum hefur, eins og áður, verið óbein, og afskipti stjórnvalda háð samkomulagsvilja fyrirtækisins. Í raun ákveður fyrirtækið hvort, í hvaða mæli, og hvernig, landið er opið gagnvart umheiminum þegar kemur að flutningum fólks og varnings á tímum almannavár,“ skrifar Rúnar og hann heldur áfram og feitletrar eftirfarandi: „Þessa óbeinu aðkomu stjórnvalda að tengingu landsins við umheiminn þarf að endurskoða og fara yfir viðeigandi lagaheimildir í því sambandi og það ætti að varða fleiri lykilfyrirtæki á markaði. Þetta snertir nauðsynlegar tengingar og þjónustu á tímum almannavár og má þar nefna flutninga fólks og varnings, þar með talið flutning matvæla, lækningatækja og lyfja. Til skemmri tíma verður að leysa vanda íslenskra standaglópa í Skandinavíu.“
Utanríkismál Fréttir af flugi Íslendingar erlendis Spánn Svíþjóð Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Þrjú hundruð Íslendingar á leiðinni heim Þrjú hundruð Íslendingar eru á heimleið með Icelandair næstu daga. Utanríkisráðuneytið aðstoðar hluta hópsins vegna þess að víða er búið að fella niður flug og á í samstarfi við önnur ríki við að koma fólki heim. 30. mars 2020 13:36 Óskar heim með neyðarflugi að kröfu dætra hans Strandaglópurinn heim ásamt fleiri Íslendingum með sérstöku neyðarflugi Icelandair annað kvöld. 27. mars 2020 07:00 Dauðsföllum fækkar en Spánn tekur fram úr Kína Dauðsföllum vegna Covid-19, sjúkdómsins sem nýja kórónuveiran veldur, hefur fækkað lítillega milli daga en þrátt fyrir það hefur Spánn tekið fram úr Kína hvað varðar fjölda staðfestra smita. 30. mars 2020 12:01 Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Fleiri fréttir Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Sjá meira
Þrjú hundruð Íslendingar á leiðinni heim Þrjú hundruð Íslendingar eru á heimleið með Icelandair næstu daga. Utanríkisráðuneytið aðstoðar hluta hópsins vegna þess að víða er búið að fella niður flug og á í samstarfi við önnur ríki við að koma fólki heim. 30. mars 2020 13:36
Óskar heim með neyðarflugi að kröfu dætra hans Strandaglópurinn heim ásamt fleiri Íslendingum með sérstöku neyðarflugi Icelandair annað kvöld. 27. mars 2020 07:00
Dauðsföllum fækkar en Spánn tekur fram úr Kína Dauðsföllum vegna Covid-19, sjúkdómsins sem nýja kórónuveiran veldur, hefur fækkað lítillega milli daga en þrátt fyrir það hefur Spánn tekið fram úr Kína hvað varðar fjölda staðfestra smita. 30. mars 2020 12:01