Þingmenn fengu körfu hlaðna kræsingum frá Landbúnaðarklasanum Jakob Bjarnar skrifar 27. nóvember 2020 10:36 Þingmenn hafa í ýmar kræsingar að natra nú á aðventunni. Nema Píratar, þeir hafa gefið hina drekkhlöðnu körfu áfram og telja þessa gjöf Landbúnaðarklasans afar vafasama. vísir „Glæsilegar körfur frá Landbúnaðarklasanum biðu þingflokkanna í dag, fullar af spennandi vörum frá frumkvöðlum unnar úr íslensku hráefni,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson þingflokksformaður Miðflokksins – harla ánægður.
Þingmaðurinn birti mynd af glæsilegri matarkörfu drekkhlaðinni allskyns kræsingum, matarkyns og áfengum drykkjum, á Facebooksíðu sinni. Landbúnaðarklasinn er hugarfóstur Bændasamtakanna sem vildu breyta um íslenskan landbúnað. Sunna Gunnars Marteinsdóttir, kærasta Gunnars Braga, er varaformaður Landbúnaðarklasans. Glæsilegar körfur frá Landbúnaðarklasanum biðu þingflokkanna í dag, fullar af spennandi vörum frá frumkvöðlum unnar úr úr íslensku hráefni :-) Posted by Gunnar Bragi Sveinsson on Miðvikudagur, 25. nóvember 2020 Þingmenn hafa því í sitthvað gott að bíta nú á aðventunni en Píratar ætla reyndar að neita sér um það. Í samtali við fréttastofu segir Björn Leví Gunnarsson alþingismaður þetta vera á afar gráu svæði. Píratar hafi því gripið til þess ráðs að gefa körfuna til hjálparsamtaka. Búvörulög til afgreiðslu sama dag og karfan barst Einhver gæti talið þetta lobbýisma á sterum; það er þegar hagsmunasamtök fara offari við að ota sínum tota og jafnvel næsti bær við mútur? Björn Leví segir það rétt, ekki síst því búvörulög voru til atkvæðagreiðslu seinna þann sama dag og karfan barst. Hann segir að þeim hafi borist skilaboð, hvort þau í þingflokknum gætu tekið við „smá körfu“? Björn Leví segir að ekki sé um neina „smá“ körfu að ræða, verðmæti hennar hljóti að fara vel yfir fimmtíu þúsund krónur og þá þýði þá það að þingmönnum sé skylt að færa það til bókar í hagsmunaskráningu. Þessi karfa sem send var Pírötum, segir Björn Leví að sé talsvert meira virði en fimmtíu þúsund krónur. Henni hefur verið komið áfram til þeirra sem þurfa meira á henni að halda. Björn Leví segir að þetta hafi verið afar óþægilegt því þau gátu ekki brugðist við með því að afþakka hina drekkhlöðnu körfu, þingverðirnir hafi fært þeim körfuna og því hafi verið gripið til þess ráðs að gefa hana áfram til þeirra sem ætla má að þurfi á henni að halda. Inga segir kælivöruna komna í ísskápinn Inga Sæland, formaður Flokks fólksins segir það rétt, þingflokkunum hafi borist matarkarfa frá Landbúnaðarklasanum. „Ég hef enn ekki haft tíma til að skoða þetta nánar . En umfangið er í takti við stærð flokka ef ég skil þetta rétt.“ Þannig að þið eruð ekki að fá hlutfallslega mest sem minnsti þingflokkurinn? „Nei ekki frekar en „sannleikurinn“ um að við séum með fleiri starfsmenn fyrir flokkinn en þingmennirnir telja,“ segir Inga og hlær. Spurð, í ljósi þess sem hún segir að hún hafi ekki haft tök á að skoða körfuna nánar, hvort þarna sé ekki eitthvað góðgæti sem þurfi að koma í kæli og liggi þá undir skemmdum segir Inga: „Það er í ísskáp á skrifstofunni okkar í Austurstræti, sem þangað þarf að fara.“ Vísir hefur ekki upplýsingar um hvort þau sem nú eru utan flokka, Rósa Björk Brynjólfsdóttir og Andrés Ingi Jónsson, hafi fengið góðgæti frá Landbúnaðarklasanum eða hvort þau verði að fá að smakka hjá sínum fyrrverandi félögum í Vinstri grænum. Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um tengslum þingmanns við stjórnarmann Landbúnaðarklasans.
Alþingi Landbúnaður Búvörusamningar Mest lesið „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Innlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Innlent Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Innlent Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Fleiri fréttir „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Sjá meira