Úlfar og Grímur skipaðir í stöðu lögreglustjóra á Suðurnesjum og í Vestmannaeyjum Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 11. nóvember 2020 20:19 Dómsmálaráðherra hefur skipað Úlfar Lúðvíksson í embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum og Grím Hergeirsson í embætti lögreglustjóra í Vestmannaeyjum.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað Úlfar Lúðvíksson í embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum. Þá hefur hún jafnframt skipað Grím Hergeirsson í embætti lögreglustjóra í Vestmannaeyjum. Þeir Úlfar og Grímur eru skipaðir í embætti að undangengnu mati hæfnisnefndar og miðast upphaf skipunartíma við 16. nóvember næstkomandi að því er fram kemur í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu. Ólafur Helgi Kjartansson, sem gegndi embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum, tók við starfi sérfræðings í málefnum landamæra í dómsmálaráðuneytinu í haust og var Grímur þá settur tímabundið í embættið. Hann mun þó nú taka við embættinu í Vestmannaeyjum og Úlfar fyllir stöðuna á Suðurnesjum. Úlfar hefur meðal annars gegnt embætti lögreglustjóra á Vesturlandi og á Vestfjörðum og embætti sýslumanns á Ísafirði og Patreksfirði. Hann hefur jafnframt verið formaður Lögreglustjórafélagsins frá 2016. Grímur starfaði um árabil hjá lögreglunni á Selfossi og hefur gegnt kennslustörfum við Lögregluskóla ríkisins og hefur gegnt ýmsum stöðum innan lögreglunnar. Frá 2017 hefur hann verið staðgengill lögreglustjóra á Suðurlandi og yfirmaður ákærusviðs embættisins. Hann hefur tvisvar verið settur lögreglustjóri á þessu ári, í samtals fimm mánuði, fyrst á Suðurlandi en síðan á Suðurnesjum.
Lögreglan Stjórnsýsla Vistaskipti Reykjanesbær Vestmannaeyjar Mest lesið „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Færir Selenskí eldflaugateikningar Erlent Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Innlent Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Fleiri fréttir Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Sjá meira