Lögreglumaður meðal þeirra 180 sem hafa nú greinst Eiður Þór Árnason skrifar 15. mars 2020 22:56 Mikið álag hefur verið á veirufræðideild Landspítalans síðustu vikur. Vísir/vilhelm
180 einstaklingar hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi samkvæmt tölum frá landlækni og Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra. Lögreglumaður í Vestmannaeyjum er meðal þeirra sem greindust síðdegis í dag. Unnið er að smitrakningu en ekki er talið að hann hafi smitast við störf sín. Um er að ræða fyrsta smitaða einstaklinginn í Vestmannaeyjum og eru þar nú átján í sóttkví. Lögreglan í Vestmannaeyjum greinir frá þessu og segir að aðgerðastjórn almannavarna hafi verið virkjuð í bæjarfélaginu í kjölfarið. Staðfestum smitum hefur fjölgað um sautján á landsvísu frá því í gær. Fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld að Íslensk erfðagreining hafi klárað að greina rúmlega eitt þúsund sýni og reyndust níu af þeim vera jákvæð. Alls hafa 1.868 sýni verið tekin á vegum sóttvarnarlæknis fram að þessu og eru 1.761 einstaklingur nú í sóttkví. 180 eru í einangrun og þrír liggja á sjúkrahúsi, þar af einn á gjörgæslu. Langflestir sem hafa greinst með veiruna eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu eða 165 af alls 180.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Vestmannaeyjar Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira