Tveir snarpir skjálftar í morgunsárið Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. október 2020 06:31 Þetta skjáskot af vef Veðurstofunnar sem tímastillt er klukkan 06:25 sýnir vel þá miklu skjálftavirkni sem verið hefur á Reykjanesskaga síðasta sólarhringinn eða svo. Veðurstofa Íslands
Um 1700 eftirskjálftar hafa mælst á Reykjanesskaga síðan í gær þegar jarðskjálfti að stærð 5,6 varð vestan við Kleifarvatn klukkan 13:43. Stærsti eftirskjálftinn varð laust fyrir klukkan hálffjögur í gær og mældist um fjórir að stærð. Alls er búið að staðfesta 21 skjálfta sem mælst hafa stærri en þrír en Einar Hjörleifsson, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir í samtali við Vísi að líklega séu þeir fleiri. Í morgun mældust til að mynda tveir skjálftar í Fagradalsfjalli, annar klukkan 06:05 að stærð 3,7 og sá síðari kl. 06:23 að stærð 3,8. Veðurstofunni hafa borist tilkynningar um að skjálftarnir hafi fundist í byggð á Reykjanesskaganum, höfuðborgarsvæðinu og upp í Borgarfjörð. Einar segir að hrinunni sé ekki lokið þótt skjálftunum fækki jafnt og þétt. Þá komi þeir svolítið í hviðum. Veðurstofunni bárust tilkynningar um gaslykt í gærkvöldi í nágrenni Grænavatns á Núpstaðahálsi þar sem upptök stóra skjálftans voru. Einar segir að sérfræðingar Veðurstofunnar muni skoða þessar tilkynningar betur í dag. Á vef Veðurstofunnar er varað við aukinni hættu á grjóthruni úr bröttum hlíðum á Reykjanesskaga vegna yfirstandandi skjálftavirkni. Er ferðafólk beðið að sýna sérstaka aðgát undir bröttum hlíðum. Fréttin var uppfærð klukkan 07:35.
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Sjá meira