Rangfærslur um hópsmit á Íslandi birtar í norskum fjölmiðlum Atli Ísleifsson skrifar 19. ágúst 2020 13:42 Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis. Vísir/Vilhelm
Norska Dagbladet segir frá því í frétt í dag að einn smitaður einstaklingur sem komið hafi til Íslands frá Balkanskaga á meginlandi Evrópu hafi valdið rúmlega hundrað manna hópsýkingu hér á landi. Aðstoðarmaður landlæknis segir norska blaðamanninn hafa misskilið svör hans um stöðuna á Íslandi. Í greininni er rætt við Kjartan Hrein Njálsson, aðstoðarmann landlæknis, en Kjartan Hreinn segir í samtali við Vísi að þetta sé alls ekki það sem hann sagði við norska blaðamanninn. „Þarna er ekki rétt með farið og er búið að senda ábendingu um þetta á blaðamanninn sem ætlar að taka mið af því í fréttinni sinni og uppfæra,“ segir Kjartan Hreinn. Skjáskot af frétt Dagbladet. Hann segir að þarna hafi einhver misskilningur átt sér stað í grein þar sem fjallað er um fjölgun smita hér á landi. „Ég segi við blaðamanninn að að liggi ekki fyrir hvernig þetta afbrigði af veirunni kom til landsins. Þetta afbrigði er það sem hefur grafið um sig hérna og er að valda þessum hópsýkingum hér. Hann hefur væntanlega misskilið þetta á þann veg að einn einstaklingur hafi valdið þessu. Ég var hins vegar nokkur skýr með það – að ég hélt – að það væri ekki hægt að segja nákvæmlega hvernig þetta kemur til landsins. Hvort að það sé einn einstaklingur, eða hópur. Það er ekki eitthvað sem okkur hefur tekist að átta okkur á og ekkert víst að það muni takast. Þar liggur misskilningurinn,“ segir Kjartan Hreinn.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Sjá meira