Hrönn næsti forstjóri MAST Stefán Ó. Jónsson skrifar 22. júlí 2020 10:01 Dr. Hrönn Jörunsdóttir, næsti forstjóri Matvælastofnunar. stjórnarráðið
Hrönn Jörundsdóttir hefur verið ráðin næsti forstjóri Matvælastofnunar. Hún hefur störf um mánaðamótin og gegnir embættinu til næstu fimm ára. Alls bárust átján umsóknir um starf forstjóra Matvælastofnunar en Jón Gíslason, forstjóri Matvælastofnunar til 15 ára, var ekki meðal umsækjenda. Í orðsendingu stjórnarráðsins segir að hæfnisnefnd hafi talið fimm umsækjendur vel hæfa til að gegna forstjórastöðunni. Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðaði þessa fimm á sinn fund og að endingu var það hans mat að Hrönn væri hæfust. Hún er með BS gráðu í efnafræði frá Háskóla Íslands og lauk MS-prófi í umhverfisefnafræði árið 2002 frá Stokkhólmsháskóla. Árið 2009 lauk hún einnig doktorsgráðu í umhverfisefnafræði frá Stokkhólmsháskóla og hefur unnið hjá MATÍS undanfarin 11 ár. Hrönn hefur verið stjórnandi hjá MATÍS frá árinu 2016 þar sem hún hefur stýrt fjölmörgum innlendum og alþjóðlegum rannsóknarverkefnum, stefnumótun, rekstri og ráðgjafarverkefnum. Einnig hefur Hrönn verið formaður áhættumatsnefndar á sviði matvæla, fóðurs, áburðar og sáðvöru frá árinu 2019. Hún hefur ennfremur sérhæft sig á sviði matvælaöryggis, áhættumats og áhættumiðlunar.
Vistaskipti Landbúnaður Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Fleiri fréttir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Sjá meira