Blíðviðrið heldur áfram Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 18. maí 2020 07:19 Það ætti að viðra vel til útiveru í dag og á morgun að minnsta kosti. Vísir/Vilhelm
Blíðviðrið sem verið hefur síðustu daga heldur áfram víðast hvar á landinu í dag að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Það er spáð hægri austlægri eða breytilegri átt og léttskýjuðu í flestum landshlutum en skýjuðu með köflum framan af degi og stöku skúrir austantil. Morgundagurinn verður keimlíkur en þó mun þykkna upp sunnantil með skúrum og þá einkum við sjóinn. Áfram verður milt í veðri, hiti á bilinu fimm til þrettán stig yfir daginn, svalast norðaustan- og austanlands. „Skil munu síðan ganga yfir landið á miðvikudag og fyrripart fimmtudags með ákveðinni suðaustanátt og rigningu, einkum sunnan- og vestanlands. Nokkur hlýindi fylgja þessum skilum og mun hlýja loftið staldra við fram á helgina,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Veðurhorfur á landinu: Austlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s, en 10-15 syðst. Víða léttskýjað, en skýjað með köflum og stöku skúrir austan- og suðaustanlands. Sunnan 3-8 m/s á morgun, en austan 10-15 með suðurströndinni. Skýjað sunnantil og skúrir, einkum við sjóinn, en annars léttskýjað. Hiti 5 til 13 stig að deginum, svalast á Norðaustur- og Austurlandi. Á þriðjudag: Fremur hæg austlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en skýjað með köflum suðvestantil. Hiti 4 til 12 stig, hlýjast norðan- og vestanlands. Á miðvikudag: Ákveðin suðaustlæg átt og rigning, en hægari og væta með köflum norðanlands. Hiti breytist lítið. Á fimmtudag (uppstigningardagur): Suðlæg átt og dálítil væta í flestum landshlutum, en léttir til er líður á daginn. Hlýnandi.
Veður Mest lesið Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Fleiri fréttir Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Sjá meira