Sjö ára svívirða Þorvaldur Gylfason skrifar 17. október 2019 07:45 Reykjavík – Þið munið hvað gerðist. Bankamenn, sem voru sumir síðan dæmdir til samtals 88 ára fangavistar, og stjórnmálamenn, sem var öllum hlíft við refsingu, lögðu landið á hliðina 2008. Fólkið reis upp, barði potta og pönnur og heimtaði stórhreingerningu og nýja stjórnarskrá. Alþingi lét undan, lamað af ótta, boðaði til þjóðfundar 2010 og leyfði fólkinu í landinu milliliðalaust að kjósa Stjórnlagaráð sem samdi frumvarp 2011 í samræmi við niðurstöðu þjóðfundarins. Hæstiréttur reyndi að skjóta kosninguna niður en skotið geigaði. Frumvarpið var samþykkt með 67% atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðslu 20. október 2012. Þá var það eitt eftir að Alþingi lyki málinu með því að staðfesta frumvarpið fyrir þingkosningarnar 2013 og síðan aftur eftir kosningarnar. Alþingi brást og bisar nú við að semja eigin stjórnarskrá, stjórnarskrá flokkanna og útvegsfyrirtækjanna frekar en stjórnarskrá fólksins. Atgangur Alþingis er svívirðileg atlaga að lýðræðinu í landinu, réttnefnd tilraun til valdaráns. Fjórflokkurinn, sem Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra nefndi því nafni 2010, situr fastur í herkví útvegsfyrirtækja og hefur ekki þrek til að losa sig þótt þjóðaratkvæðagreiðslan 2012 hafi veitt honum fullkomið færi til þess. Þingmenn gátu þá sagt við útvegsmenn: „Þjóðin hefur talað. Þið þurfið héðan í frá að greiða fullt gjald fyrir kvótann.“ Rannsóknarnefnd Alþingis upplýsti í skýrslu sinni 2010 (8. bindi, bls. 164-9) að föllnu bankarnir styrktu stjórnmálamenn og flokka 2004-2008 um 147 mkr. Það gerir um 300 mkr. á núvirði og jafngildir nærri 2.000 kr. á hvert greitt atkvæði í alþingiskosningunum 2007. Það þarf engin geimvísindi til að geta sér til um að útvegsfyrirtæki hafi bæði fyrir og eftir hrun séð sér hag í að hafa sama háttinn á og bankarnir sem keyptu sér frið til að hlunnfara fórnarlömb sín án aðhalds frá Alþingi. Tólfta hver fjölskylda um landið missti heimili sitt eftir hrun. Vonandi þarf ekki nýtt hrun með tilheyrandi skakkaföllum til að leiða fram upplýsingar um fjárhagstengsl útvegsfyrirtækja við stjórnmálamenn og flokka. Í Bandaríkjunum eru nú þingið, alríkislögreglan og saksóknarar í óða önn að fletta ofan af hliðstæðum fjárhagstengslum eins og vera ber í sæmilega heilbrigðu réttarríki. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur 2009-2013 ber þunga ábyrgð. Henni bar að neyta þingmeirihlutans sem fyrir lá með undirskriftum 32ja þingmanna til að staðfesta nýju stjórnarskrána vorið 2013 en stjórnin bar ekki gæfu til þess. Eigin flokksmenn keyrðu forsætisráðherrann niður með fulltingi nýrra formanna þv. stjórnarflokka, Árna Páls Árnasonar í Samfylkingu og Katrínar Jakobsdóttur í VG. Óhæfuverk þeirra markaði upphaf þeirrar sjö ára svívirðu sem fólkið í landinu þarf enn að búa við. Gömlu helmingaskiptaflokkarnir snerust báðir gegn þjóðinni þegar mesti óttinn rann af þeim eftir hrun og hafa nú báðir verið klofnir í herðar niður. Hitt er enn lakara að fyrsta meirihlutastjórn lýðveldisins án beggja þessara hermangs- og einkavinavæðingarflokka skyldi bregðast trausti kjósenda þegar svo mikið lá við. Vinstri græn innsigluðu samsekt sína með því að mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki og Framsókn 2017, stjórn sem þykist nú sitja við að semja nýja stjórnarskrá í stað þeirrar sem 67% kjósenda samþykktu 2012. Málflutningur forsætisráðherra o.fl. um stjórnarskrármálið vitnar um einbeittan brotavilja gagnvart fólkinu í landinu. Auðlindaákvæði ráðherrans er bersýnilega ætlað að þýðast ríkjandi hagsmuni, þau öfl sem áttu mestan þátt í að koma Íslandi á kaldan klaka 2008, skaða ásjónu landsins í augum umheimsins og grafa undan trausti innan lands. Niðursallandi umsagnir almennings um ákvæði ráðherrans á vefsetri Alþingis afhjúpa óhæfuna. Fimm af hverjum sex vantreysta Alþingi skv. nýlegri könnun Gallups. Frumvarp Stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá svaraði að loknum þjóðfundi 2010 ákalli þjóðarinnar um nýja stjórnarskrá, nýja siði, nýtt upphaf. Þetta var gert í samræmi við verkferli sem Alþingi ákvað. Fyrirætlanir forsætisráðherra miða að því að bregðast þessu ákalli, ekki aðeins með því að úrbeina auðlindaákvæðið sem 83% kjósenda lýstu sig fylgjandi í þjóðaratkvæðagreiðslunni 2012 heldur einnig með því leiða hjá sér ákvæðið um jafnt vægi atkvæða, eitt brýnasta ákvæði frumvarpsins, og einnig t.d. ákvæðið um framsal ríkisvalds. Ekki bara það: Forsætisráðherra hefur beinlínis ýtt þeim tillögum sem kjósendur samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu út af borðinu eins og þær leggja sig. Já, þið lásuð rétt! Án nýs kosningaákvæðis verða næstu alþingiskosningar enn á ný haldnar skv. kosningalögum sem 67% kjósenda höfnuðu í þjóðaratkvæðagreiðslunni 2012. Án nýs framsalsákvæðis munu alþingismenn halda áfram að sæta ásökunum um að brjóta vísvitandi gegn gildandi stjórnarskrá þar eð í hana vantar skýrt ákvæði um framsal ríkisvalds. Og enn um sinn mun haldast í gildi hin bráðsmellna 30. grein gildandi stjórnarskrár frá 1944: „Forsetinn veitir, annaðhvort sjálfur eða með því að fela það öðrum stjórnvöldum, undanþágur frá lögum samkvæmt reglum, sem farið hefur verið eftir hingað til.“ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Stjórnarskrá Þorvaldur Gylfason Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Skoðun Umsóknarferlið útskýrt fyrir kjána Elísabet Kjárr skrifar Skoðun Hlakkarðu til að fara í skólann? Hulda Dögg Proppé skrifar Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar