Stal fötum úr þvottahúsi í sameign Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 3. júní 2019 07:55 Lögreglan hafði í ýmsu að snúast á vaktinni í gærkvöldi og nótt. vísir/vilhelm
Óskað var eftir aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu upp úr klukkan níu í gærkvöldi í Bústaðahverfinu í Reykjavík vegna þjófnaðar á fatnaði úr þvottahúsi í sameign fjölbýlishúss. Í dagbók lögreglu segir að sakborningurinn, þrítug kona, hafi verið stöðvuð utandyra og hafi hún afhent fötin sem hún stal. Hún viðurkenndi brotið og sagði hafa verið að koma úr heimsókn hjá vinkonu sinni. Um klukkan hálfsex í gær var svo tilkynnt um slagsmál í Austurstræti en það var yfirstaðið og allir farnir þegar lögregla kom á staðinn. Þá var tilkynnt um umferðarslys á Breiðholtsbraut við Selásbraut skömmu eftir klukkan hálfsex. Varð þriggja bíla árekstur og sagði sá sem olli slysinu að hann hefði misst athyglina í smá stund. Tveir voru fluttir á slysadeild með minniháttar meiðsl. Upp úr klukkan hálfeitt í nótt óskaði svo starfsfólk verslunar á Granda eftir aðstoð lögreglu vegna þjófnaðar. Var sakborningur látinn laus að lokinni skýrslutöku á vettvangi. Skömmu fyrir hálfþrjú í nótt barst síðan tilkynning um tvo menn uppi á þaki á Fossvogsskóla. Voru þar á ferð tveir ölvaðir 16 ára strákar. Þeim var ekið heim til sín og rætt við foreldra. Rétt fyrir klukkan þrjú var svo tilkynnt um innbrot og þjófnað í heimahús í Árbæ. Var gluggi spenntur upp og reiðufé og ýmsum persónulegum munum stolið. Málið er í rannsókn.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Noregur sökkar“ Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjá meira