Gríska fríkið kom Milwaukee aftur á sigurbraut | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. mars 2019 07:30 Giannis var góður að vanda.
Giannis Antetokounmpo var allt í öllu í sigri Milwaukee Bucks gegn Indiana Pacers á heimavelli í NBA-deildinni í körfubolta í nótt en Bucks hafði betur, 117-98. Giannis fékk tæknivillu snemma leiks sem gerði hann svolítið pirraðan en gríska fríkið svaraði því með að taka yfir leikinn og endaði með 29 stig. Khris Middleton skoraði 27 stig fyrir heimamenn. Milwaukee batt þar með enda á tveggja leikja taphrinu en það var í fyrsta sinn á tímabilinu sem að liðið tapaði tveimur leikjum í röð. Liðið er með 49 sigra og 17 töp en ekkert lið hefur unnið fleiri leiki í NBA-deildinni í vetur.Paul George er kominn aftur á flug fyrir Oklahoma City Thunder og munar um minna en hann skoraði 32 stig, tók fjórtán fráköst og gaf sex stoðsendingar en Thunder vann góðan útisigur á Portland í stórleik í vesturdeildinni í nótt, 129-121. Russell Westbrook lét sitt ekki eftir liggja með 37 stigum, sjö fráköstum og þremur stoðsendingum en Damien Lillard fór hamförum fyrir Portland og skoraði 51 stig, tók fimm fráköst og gaf níu stoðsendingar. Lillard setti niður aðeins þrjú þriggja stiga skot af tíu en hann fór 20 sinnum á vítalínuna og hitti úr 18 vítaskotum sínum. Thunder er með 39 sigra eins og Houston og Portland en liðin berjast hatrammlega um þriðja sætið í vestrinu nú þegar að rétt undir 20 leikir eru eftir af deildarkeppninni.
NBA Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Fótbolti Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Fótbolti Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Handbolti UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Fótbolti Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Enski boltinn Fleiri fréttir Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Sjá meira