Hulduhópar dæla út áróðri á samfélagsmiðlum Kjartan Kjartansson og Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifa 25. október 2017 12:15 Nokkur skjáskot af þeim síðum á Facebook sem Vísir hafði samband við.
Fjöldi nafnlausra kosningaáróðurssíðna hafa sprottið upp fyrir þingkosningarnar nú. Vísir hafði samband við nokkrar af þessum síðum en fyrir utan eina vildi enginn þeirra koma fram undir nafni. Andrés Jónsson, almannatengill, telur að hundruð þúsunda króna hafi verið varið í að deila efni einnar umfangsmestu síðunnar sem hann telur hluta af skuggabaráttu á vegum stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins. Síður með nöfnum eins og „Kosningar 2017“, „Kosningavaktin“, „Kjósa“ og „Jæja“ hafa verið áberandi á samfélagsmiðlum í aðdraganda þingkosninganna nú. Sumar þeirra voru einnig virkar fyrir kosningarnar í fyrra, og jafnvel enn fyrr, en þær eiga það sameiginlegt að enginn ábyrgðarmaður er gefinn upp. Efnið sem þær dreifa á Facebook og Youtube er yfirleitt harkaleg gagnrýni á stjórnmálamenn og flokka sem eru í framboði. Þeir sem svöruðu fyrir hönd sumra þeirra síða sem Vísir hafði samband við sögðust engin tengsl hafa við stjórnmálaflokka og þvertóku fyrir að vera áróðurssíður. Aðrir svöruðu litlu sem engu.Hafnar því að Sjálfstæðisflokkurinn hafi nokkuð að gera með áróðurssíðurEin mest áberandi síðan er „Kosningar 2017“. Sú síða var einnig virk fyrir síðustu kosningar og gekk þá undir heitinu „Kosningar 2016“. Aðstandendur hennar dreifa myndböndum sem virðast hafa verið sérstaklega unnin, meðal annars með keyptum auglýsingum á Youtube og Facebook. Síðan beinir spjótum sínum fyrst og fremst að vinstriflokkunum. Andrés telur erfitt að segja til nákvæmlega hversu mikið síðuhaldarar hafi eytt í auglýstar færslur en miðað við umfang keyptra auglýsinga Kosninga 2017 hlaupi kostnaðurinn við þær á hundruð þúsundum króna að minnsta kosti. Sé vinnan við myndbandavinnsluna einnig keypt en ekki unnin í sjálfboðavinnu geti kostnaðurinn numið milljónum sé miðað við hefðbundnar auglýsingaherferðir af sambærilegri stærðargráðu. „Ég hef ekki staðfestar upplýsingar um hverjir standa að baki en það er augljóst að þetta er skuggabarátta á vegum stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins. Það sést bara á því hverjir deila og læka og líka á því hverjir eru skotmörkin,“ segir hann. Þórður Þórarinsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, hafnar því hins vegar alfarið að flokkurinn hafi nokkuð að gera með áróðussíður af þessu tagi. „Það er algjörlega á kristaltæru að þetta tengist Sjálfstæðisflokknum ekki nokkurn skapaðan hlut og við höfum enga vitneskju um hverjir standa þarna að baki þessu,“ segir Þórður. Þegar Vísir óskaði eftir viðtali við aðstandendur Kosninga 2017 í gegnum Facebook-síðu þeirra sagði sá sem svaraði aðeins að þeir væru hvorki þjóðþekktir né auðmenn. „Fréttin í þessu yrði alger ekki frétt því við erum ekki þjóðþekktir né auðmenn. Kjósum að hanga á nafnleyndinni þar til annað breytist,“ var eina svar síðunnar. Spurningum um hversu miklu fé aðstandendur síðunnar hefðu eytt í keyptar auglýsingar á samfélagsmiðlum og hvernig þær væru fjármagnaðar var ekki svarað. Aðstandendur síðunnar vildu heldur engin svör veita þegar Mbl.is leitaði eftir því í fyrra. Báru þeir þá fyrir sig að þeim væri ekki óhætt að koma fram undir nafni í ljósi viðbragða „vinstrisinnaðra lesenda“. Fullyrtu þeir að um væri að ræða „afskaplega smáan hóp áhugamanna um að afhjúpa lýðskrum í stjórnmálum“ sem væri „alls ekki“ á vegum neins stjórnmálaflokks. Trúa því að þau hafi bætt umræðuna Aðstandendur tveggja annarra nafnlausra Facebook-síða sem halda uppi hörðum áróðri gegn Sjálfstæðisflokknum og Bjarna Benediktssyni sérstaklega, „Kosningavaktin“ og „Kjósa“ vildu hvorugir gefa upp hverjir þeir væru en neituðu að þeir tengdust nokkrum flokkum. Sá sem svaraði einkaskilaboðum á Facebook-síðunni Kosningavaktin sagði að hópurinn veitti ekki viðtöl en að hann tæki við spurningum blaðamanns þar. Síðan var stofnuð í fyrir um tveimur vikum viku af hópi „áhugafólks um upplýsta umræðu“. Þar hafa einnig birst myndbönd sem mikið hefur verið lagt í. Síðan hefði verið stofnuð til að „miðla mikilvægum upplýsingum til kjósenda í aðdraganda kosninga og standa vakt um staðreyndir sem fjölmiðlar fjalla ekki um með fullnægjandi hætti“. Hún hafi greitt fyrir auglýsingar á samfélagsmiðlum og síðan sé fjármögnuð með „smáum fjárframlögum velunnara“. Ekki fengust svör við því hversu miklu hefði verið eytt í auglýsingar á samfélagsmiðlum. Spurð að því hvort að nafnlausar færslur af þessu tagi bæti stjórnmálaumræðuna á Íslandi telja aðstandendur Kosningavaktarinnar að svo sé en gagnrýna í sömu andrá „nafnlausar áróðurssíður“. „Kosningavaktin hefur bætt stjórnmálaumræðu á Íslandi með því að miðla mikilvægum upplýsingum til kjósenda og standa vakt um staðreyndir sem fjölmiðlar fjalla ekki um með fullnægjandi hætti. Öðru máli gegnir um nafnlausar áróðurssíður sem bera á borð ósannindi og rógburð en því miður hefur kosningabarátta Sjálfstæðisflokksins einkennst af slíkum óhróðri og má fullyrða að þar sé kostað til milljónum króna,“ var svar þeirra. Síðuhaldarar þvertaka fyrir að þeir geti sjálfir talist halda úti nafnlausri áróðurssíðu. Nafnleysið skýrist af ótta hópsins við „ofsóknir“ af hálfu valdafólks, stjórnmálaflokka og áróðursvéla. „Það er ljóst að mörgum stendur stuggur af þess konar starfsemi og í sumum tilfellum getur það átt við um valdafólk og jafnvel heilu stjórnmálaflokkana. Síðan er nafnlaus til að tryggja að aðstandendur síðunnar verði ekki fyrir ofsóknum af hálfu slíkra afla og áróðursvéla sem haldið er úti á þeirra vegum. Því miður verður ekki hjá því komist,“ segir í svari Kosningavaktarinnar.Telur síðurnar meinsemd á stjórnmálaumræðunni Svör einstaklingsins sem segist standa einn að baki „Kjósa“ eru meira afsakandi en „Kosningavaktarinnar“. Hann viðurkennir að hafa eytt um tíu þúsund krónum í heildina úr eigin vasa í að auglýsa færslur á samfélagsmiðlum í takmörkuðu magni. Hann sé hvorki flokksbundinn né hafi hann gert upp hug sinn um hvað hann ætli að kjósa í kosningunum í næstu viku. Síðan var stofnuð fyrir einni til tveimur vikum en aðstandandinn telur sjálfur að nafnlausar síður séu „algjör meinsemd á stjórnmálaumræðunni á Íslandi“. „En ég gat ekki lengur setið á mér yfir öllum hægri öfgasíðunum sem flæða yfir allt með mjög vafasaman hræðsluáróður, sem virðist virka því miður. Því fann ég mig knúinn til þess að svara þeim, þó það sé mér þvert á geð. Mér finnst að allir stjórnmálamenn ættu að fordæma harðlega síður sem þessar. En það virðist vera sem svo að stjórnmálamenn styðji svona kosningabaráttu og láti hana viðgangast, enda skilar hún þeim atkvæðum,“ segir hann.Sara Oskarsson er formaður Jæja-hópsins en hún er einnig í framboði fyrir Pírata fyrir kosningarnar nú.Formaður Jæja-hópsins í framboði fyrir Pírata Sara Oskarsson er formaður Jæja-hópsins sem heldur úti Facebook-síðunni Jæja. Hún er jafnframt frambjóðandi Pírata fyrir þingkosningarnar nú og skipar 4. sætið á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. Efni sem hefur verið deilt á Jæja fyrir kosningarnar nú snýr mikið að nýju stjórnarskránni og svo lögbanni sýslumanns á fréttaflutning Stundarinnar og Reykjavík Media upp úr gögnum úr Glitni sem sett var á í liðinni viku. Í samtali við Vísi segir Sara enga samvinnu vera á milli Pírata og Jæja enda hafi Jæja verið stofnað áður en hún gekk til liðs við Pírata. Sara kveðst engu að síður meðvituð um það að hún þurfi að gæta hlutleysis á síðu Jæja á Facebook. „Auðvitað hefur þetta verið svolítið erfitt núna, sérstaklega vegna þess að ég er formaður Jæja og er í framboði sjálf fyrir Pírata. Þannig að ég er náttúrulega mjög meðvituð um að reyna að vera óhlutdræg en það er kannski svolítið erfitt og ég geri mér alveg grein fyrir því,“ segir Sara. „Jæja var stofnað áður en ég gekk til liðs við Pírata þannig að fyrir mér er það minn fyrsti vettvangur. Það hafa aldrei nokkurn tímann verið nein bein samvinna á milli flokksins eða Jæja. Ég er Pírati en svo hefur fólk eiginlega úr öllum flokkum nema Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokksins verið starfandi innan Jæja og er ennþá. Þannig að þetta er ekkert vettvangur Pírata frekar en Samfylkingarinnar eða Vinstri grænna þannig séð. En ég geri mér alveg grein fyrir því að ég er ekkert alveg hlutlaus,“ segir Sara.
Kosningar 2017 Mest lesið Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Innlent Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir Erlent Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Innlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Sjá meira