Dó hann? Sigríður Víðis Jónsdóttir skrifar 11. október 2016 07:00 Það fyrsta sem slær hana er myrkrið. Svarta myrkur inni í miðjum bæ. Í svartnættinu sjást skuggar sem koma nær og nær. Bílljósin lýsa upp náföl andlit sem eru svo tekin að hún hefur aldrei séð annað eins. Janúarnóttin er ísköld. „Frænka, ertu með brauð?“ Fólkið er svo aðframkomið að það stendur varla í fæturna. Getur ekki talað, bara hvíslað. „Frænka, áttu bita af brauði?“ Hanaa Singer er komin inn fyrir víggirta vegartálma sýrlenska hersins. Hér í bænum Madaya hefur verið rafmagnslaust í fjóra mánuði. Sýrlenski stjórnarherinn og hersveitir hliðhollar honum hafa setið um bæinn og haldið íbúunum í herkví – enginn fer inn, enginn út. Kaupmenn fá ekki að flytja nein matvæli inn í bæinn. Þetta er strategískur og kolsvartur leikur í stríðinu. Áður en veröldin fór á hvolf var hér fallegur, lítill bær sem var þekktur fyrir hreint vatn, ferska ávexti og blómstrandi ferðamannaiðnað uppi í fjöllunum. Núna hvíslar fólk sögur af súpu úr vatni og laufum sem það borðar og gefur börnunum sínum. Súpu úr vatni og grasi. Það hringsnýst allt í höfðinu á Hönuu Singer. Er þetta virkilega að gerast á 21. öldinni? Hún er yfirmaður UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, í Sýrlandi og segir mér þessa sögu nokkrum mánuðum seinna.Geta ekki grátið Læknir í blóðugum sloppi leiðir hana inn í dimmt herbergi í húskjallara. Þetta er heilsugæslan í bænum þessa mánuðina, læknirinn sá eini á meðal strandaðra bæjarbúa. Málningin er flögnuð af veggjunum og á gólfinu liggja börn sem eru svo veikburða að þau geta ekki hreyft sig. Á staðnum er einungis eitt rúm. Á því eru tvær hrúgur. Eftir því sem Hanaa lítur dýpra inn í myrkrið breytast þær í manneskjur. Annar sjúklinganna er 16 ára gamall. Heitir Ali og er hálfmeðvitundarlaus. Nær dauða en lífi. Þau hlaupa til og reyna björgunaraðgerðir. Hún byrjar að hnoða. Hnoðar og hnoðar. Allt kemur fyrir ekki. Líf hans fjarar út, í skítugum kjallara í sturluðu stríði, beint fyrir framan augun á þeim. Ali deyr hvorki vegna sjúkdóms né slysfara, heldur vegna þess að hann var sveltur til dauða. Hanaa heyrir sjúklinginn í rúminu við hliðina á Ali hvísla lágt. „Dó hann?“ Sjúklingurinn er enn með lífsmarki og heldur dauðahaldi í fingurinn á henni. Fjölskylda Alis er inni í herberginu en of veikburða til að gráta. Þau hanga varla uppi. Fyrir utan hvíslið úr rúminu er þögn í herberginu.Fjórum mánuðum áður en þessi mynd var tekin fóru myndir af Mohammed skelfilega vannærðum og illa förnum um eins og eldur í sinu á samfélagsmiðlum. Þarna er eldhress Mohammed búinn að ná sér og spjallar við Dr. Raiju. Rifbein Andartak líður, svo æðir allt af stað. Teymi UNICEF, Rauða hálfmánans og fleiri samtaka hraðar sér í að sinna börnunum í kjallaranum og dreifa hjálpargögnum í bænum. Þau mega engan tíma missa. Læknirinn Raija Sharhan leiðir aðgerðir UNICEF og skoðar gaumgæfilega öll börnin á staðnum. Næringarástand þeirra er skelfilegt. Mohammed litli er átta ára og hefur ekki borðað í sjö daga, hann er í þoku og á erfitt með að tala, rifbeinin skaga út í loftið. Limar er sjö mánaða og bráðavannærð. Hún er svo veikburða að hún nær ekki að taka upp neina næringu og mun án hjálpar annað hvort verða fyrir óafturkræfum skaða eða deyja. Hjálparstarfsfólkið hjúkrar henni og öðrum og vinnur sleitulaust til klukkan fimm um nóttina, þegar hermenn ýta þeim út úr bænum. Þau skilja eftir vítamínbætt jarðhnetumauk, saltupplausnir, sérstakar mjólkurblöndur og það sem til þarf fyrir lækninn í bænum og hetjurnar sem standa vaktina með honum svo þau geti hlúð að vannærðu börnunum. Næstu daga fara myndir og vídeó úr ferðinni til Madaya eins og eldur í sinu um heimsbyggðina. Mohammed litli verður tákngervingur hörmunganna í Madaya. Stóru brúnu augun hennar Limar vekja upp sterkar tilfinningar, gráturinn hennar sem líkist frekar ýlfri. Þegar ég hitti Hönuu Singer í maí hefur hún góðar fréttir að færa, mitt í öllum hörmungunum. UNICEF hefur tekist að fara fjórum sinnum aftur til Madaya ásamt öðrum hjálparsamtökum, með bílalest fulla af hjálpargögnum, og hefur getað fylgt meðferð vannærðu barnanna eftir. Það sem meira er: Mohammed er búinn að ná sér og meira að segja farinn að mæta aftur í skólann sinn. Limar hefur líka sýnt ótrúlegar framfarir og er öll að braggast!Hitastigið fellur … enn á ný Og nú er kominn október. Enn er setið um Madaya. Enn harðnar stríðið í Sýrlandi. Áfram halda flutningar hjálpargagna inn í litla bæinn í fjöllunum en þeir kosta stöðugar samningaviðræður. Stríðandi fylkingar svífast einskis. Það líður að vetri og Dr. Raija heldur áfram að hjúkra vannærðum börnum. Hanaa Singer skipuleggur flutninga á hreinu vatni til íbúa Aleppo og undirbýr enn einar aðgerðirnar til að bregðast við kuldanum sem fylgir vetrarhörkunum. Hún ætlar sér að ná til tveggja og hálfrar milljónar barna í Sýrlandi og nágrannaríkjunum, neyðin er svo mikil. Þegar ég er sjálf um það bil að bugast yfir þessu klikkaða stríði reyni ég að minna mig á það sem hún sagði í vor: „Ég hef aldrei verið stoltari af neyðaraðgerðum hjá UNICEF. Við erum þarna úti og baráttan ber árangur.“ Framlög heimsforeldra og í neyðarsöfnun UNICEF gegna hér ómetanlegu hlutverki. Við munum sannarlega standa vaktina þangað til stríðinu lýkur og vera til staðar áfram eftir það. En það er ekki nóg. Grundvallaratriðið er að stöðva stríðsglæpina, loftárásirnar, morðin og eyðilegginguna. Hinar ólýsanlegu hörmungar í Sýrlandi duttu ekki af himni ofan heldur eru mannanna verk. Eitt af því sára og ljóta við stríðið er að sjá hvað það gerir börnum. Börnum eins og Mohammed sem var nær dauða en lífi eftir að hafa verið sveltur í umsetnum bæ, Limar litlu sem á ótrúlegan hátt tókst að bjarga og Ali sem við misstum. Það er sameiginleg skylda okkar að verja réttindi þeirra.Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigríður Víðis Jónsdóttir Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar