Víkingaskipið Vésteinn sökk við bryggju Samúel Karl Ólason skrifar 5. október 2016 21:10 Kafarar undirbúa sig fyrir að setja belgi á Véstein. Vísir/Anton
Starfsmenn Faxaflóahafna uppgötvuðu um klukkan sex í kvöld að mikill sjór var kominn um borð í víkingaskipið Véstein þar sem það lá við bryggju við Norðurbugt á Granda. Skipið sökk við bryggjuna en sjór skvettist um borð í rokinu. Ketill Magnússon, eigandi skipsins, segir í samtali við Vísi að lensidæla sé í skipinu sem hafi líklega slegið út. Hann hafði farið um borð fyrr í dag og gengið úr skugga um að allt væri með kyrrum kjörum og að skipið væri vel bundið. Þegar þetta er skrifað vinna starfsmenn Köfunarmiðstöðvarinnar að því að koma belgum á skipið svo hægt verði að ná því upp og á þurrt. Til stendur að hífa það upp í kvöld. Vésteinn hefur verið notaður til siglinga með ferðamenn frá Reykjavík, en þeim siglingum hefur verið hætt og til stóð að ganga frá Vésteini fyrir veturinn. Varðandi tjón á skipinu segir Ketill að ekkert hafi séð á Vésteini. „Þetta er mjög sterklega byggður bátur. Við verðum að meta það þegar hann er kominn á landi. Þá sjáum við það betur. Það er mótor í honum sem þarf að koma strax í hreinsun. Maður sér samt ekkert á Vésteini. Hann er ekkert brotinn eða svoleiðis“ „Það er bara að vonast til þess að allt gangi vel,“ segir Ketill.
Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Lífið Fleiri fréttir Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Sjá meira