Vaknið Herdís Egilsdóttir skrifar 18. ágúst 2016 08:00 Menningar- og menntalest þjóðar okkar sem hefur í aldaraðir brunað örugg eftir teinum sínum þéttskipuð ungmennum okkar, fullum tilhlökkunar, gleði og fullvissu um að við þau leiðarlok hefðu þau höndlað til ævilangrar framtíðar traust á sjálf sig, kjark og kunnáttu til að takast á við hvaða verkefni sem lífið ætlaði þeim að leysa. En smám saman og okkur að óvörum mjakaði sér inn á milli okkar gestur sem boðaði með lipurð undur og stórmerki en við uggðum ekki að okkur og gestrisni okkar varð of opin og gagnrýnilaus. Seint og um síðir hrukkum við upp við ónotalegan draum. Menningar- og menntalestin var farin af sporinu, enginn vissi hvar eða hvenær, en öllum sem vaknað höfðu til fulls varð ljóst að hér hlaut að hafa orðið alvarlegt slys. Fregnir af þessum atburði hafa smám saman borist með fáeinum vonsviknum ungmennum sem höfðu haft sig við illan leik til baka með sjálfstraustið skaðað. Þau sögðu sögur af þeim hörðustu sem vildu ekki snúa við heldur börðust áfram fótgangandi í þeirri von að ná þeim glæsta áfangastað sem þá hafði dreymt um og verið heitið. En stærsti hópurinn sat enn örvinglaður í sætum sínum, skimandi og vonaðist eftir að hjálp bærist til að komast til baka.Um hvað fjallar dæmisagan?Hvernig eigum við eiginlega að skilja þessa dæmisögu? Um hvað fjallar hún? Hún segir frá fólki sem var uppi hér á Íslandi fyrir löngu sem skildi það alveg í botn, hve áríðandi og bráðnauðsynlegt væri, að öll þjóðin yrði fljúgandi læs. Og það sem fyrst! Og við trúðum því að þjóðin gæti um alla framtíð verið stolt af þessari visku og framsýni. Ekkert gæti komið í veg fyrir það. Allt fór að óskum lengi vel. Foreldrar, afar, ömmur, og allir sem skildu mikilvægi málsins, lögðu sín þyngstu lóð á þær vogarskálar. En sagan fjallar enn frekar um ungmennin sem urðu ofurseld stjórnvisku fólks sem vildi sem óðast taka upp nýja siði án þess að þrautreyna hvort breytingarnar yrðu til góðs. Breyttu oft aðallega breytinganna vegna, ekki síst ef þær komu utan að, vildu fylgja tísku og tíðaranda, litu á flest sem gamalt var eins og glerharða útslitna kúskinnsskó! Gott og vel, sumt gamalt er gamaldags og hætt að eiga við en mjög margt eldgamalt er klassískt - sígilt! Þarna verða fullvita manneskjur að kunna að greina á milli. Ég væri ekki að taka svona upp í mig ef ekki væri um fátt meira talað en óhugnanlegan lestrarvanda barna fram eftir öllum aldri og það þyrfti nánast að beita klókindum til að fá börn til að lesa, svo leiðinlegt þætti það óskiljanlega mörgum þeirra. Svo við höldum okkur aðeins lengur við dæmisöguna, fóru nokkrir þeir framsæknustu að setja útá lestrarlestina gömlu. Hún þótti alltof hægfara, farin að ryðga, ekki börnum bjóðandi, við drægjust hratt aftur úr erlendum menningarþjóðum. Það borgaði sig ekki að kosta uppá varastykki í hana. Út með hana! Allt virtist vera í lagi um tíma, enda heilmiklu fé varið í þessar nýju aðferðir. Kennaramenntunin lengd í fimm ár, samt virtist sem þeir þyrftu eftir það mikla aðstoð ráðgjafa, leiðbeinenda og námskeiða sem hrökk sumsstaðar ekki til. En hvers vegna og hvenær fór lestin út í móa og hverjum er það að kenna? Og það sem veldur almestu áhyggjunum er: Hvernig bætum við fyrir þetta lest(r)arslys?Hljóðlestraraðferðin best?Ég er einlægur aðdáandi hljóðlestraraðferðarinnar sem Ísak Jónsson færði þjóðinni á silfurfati fyrir níutíu árum. Ég lærði hana undir handleiðslu Ísaks sjálfs þetta eina ár sem nemar með stúdentspróf þurftu til að fá kennararéttindi. Síðan fór ég beint að kenna og kenndi sleitulaust við skólann hans í fjörutíu og fimm ár. Allan tímann með tvo bekki á dag, og alltaf jafnsátt. Hvaða kosti hefur hljóðlestraraðferðin fram yfir aðrar aðferðir sem ég þekki? Hún er auðlærð fyrir kennara, og þarf ekki nema tvo-þrjá dagparta með leiðsögn til að ná tökum á henni. Hún er full af leikjum, móðurmálsþjálfun og óteljandi tegundum af skapandi vinnubrögðum. Börnin skemmta sér hið besta ef kennarinn gerir það líka! Og síðast en ekki síst, nú á þessum snauðu tímum, kostar hún ekki neitt. Ágætar, aðgengilegar bækur flæða yfir okkur úr öllum áttum! Erlendir vísindamenn sem lengi hafa rannsakað lestraraðferðir og læsi hafa komist að þeirri niðurstöðu að hljóðlestraraðferðin sé besta lestraraðferð sem til er og meira að segja Bandaríkjamenn og Bretar, með sína orðaaðferð fram að þessu, eru nú ásamt miklu fleiri menningarþjóðum farnir að taka hana upp. Ég ákalla menntamálaráðuneytið, Menntamálastofnun og menntavísindasvið Háskóla Íslands, að taka í alvöru saman höndum til að finna raunverulega lausn á þessum vanda. Sjálfri finnst mér boginn alltof hátt spenntur í menntun kennara, þar sem svo mikil áhersla er lögð á rannsóknir, greiningar og skimanir, meðan sjálfur grunnurinn undir byggingunni molnar, vegna þess að hornsteinarnir voru fjarlægðir. Hafi ég misskilið eitthvað eða sært einhvern þykir mér það verra, en ég er svona orðhvöt því mér er heitt í hamsi og ofbýður ástandið. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar