Serbar frábærir í sigri á Spánverjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. september 2015 18:08 Nemanja Bjelica var magnaður í kvöld. Vísir/Getty
Serbía vann tíu stiga sigur á Spánverjum, 80-70, í öðrum leik dagains í riðli Íslands á Evrópumótinu í körfubolta í Berlín. Serbar voru frábærir í þessum leik eða eftir að þeir náðu smá skrekk úr sér í byrjun. Liðið spilaði af miklum eldmóð og á pöllunum létu stuðningsmennirnir vel í sér heyra. Spánverjar eru án nokkurra af sinna stærstu stjarna á Eurobasket í ár og þeir réðu ekki við grimmar og kraftmikla Serba í dag. Enginn lék betur í dag en Nemanja Bjelica en þessi hávaxni bakvörður hefur samið við Minnesota Timberwolves og er því á leiðinni í NBA-deildina á næstu leiktíð. Nemanja Bjelica var með 25 stig, 10 fráköst og 4 stoðsendingar í leiknum í kvöld. Spánverjar byrjuðu leikinn samt vel og voru komnir í 21-9 í fyrsta leikhluta eftir að hafa skorað 12 stig í röð. Serbarnir unnu sig hægt og rólega inn í leikinn og voru búnir að minnka muninn niður í tvö stig í hálfleik en þá var staðan 36-34 fyrir Spán. Serbar tóku síðan öll völd í þriðja leikhlutanum sem þeir unnu 28-16 og voru því tíu stigum yfir fyrir lokaleikhlutann. Spænska liðið kom sér aftur inn í leikinn og náði aðminnka muninn í þrjú stig (66-63) en þá fóru Serbarnir aftur í gang og unnu síðustu fjórar mínútur leiksins 14-7. Pau Gasol var stigahæstur í spænska liðinu með sextán stig þrátt fyrir rólega byrjun en ellefu stiga hans komu í lokaleikhlutanum.
EM 2015 í Berlín Mest lesið Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Fleiri fréttir 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Þetta eru alvöru hermenn“ „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Uppgjörið: Ármann - Keflavík 90-108 | Keflavík með sannfærandi sigur í Laugardalnum Kristinn útskýrir allar reglubreytingar vetrarins Þekkir ekkert annað en pressu Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Leikmaður ársins missir af landsleikjum Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum KR vann erkifjendurna sannfærandi Sóttu fyrsta sigur tímabilsins á heimavelli Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur Sjá meira