Fárið truflaði okkur ekki Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. apríl 2014 07:00 Þórir Ólafsson verst Gunnari Steini Jónssyni á æfingu landsliðsins í gær. Vísir/Daníel
Þórir Ólafsson segir að fjölmiðlafárið eftir fyrri leik sinna manna í Kielce gegn Rhein-Neckar Löwen í Meistaradeild Evrópu hafi lítil áhrif haft á leikmannahópinn. Sem kunnugt er gekk mikið á á milli þjálfara liðanna, þeirra GuðmundarGuðmundssonar hjá Löwen og TalantsDujshebaev, þjálfara Þóris hjá Kielce. „Við fengum frið til einbeita okkur að leiknum. Það var auðvitað mikil umfjöllun um þetta en maður reyndi bara að útiloka það,“ sagði Þórir í samtali við Fréttablaðið í gær. Hann er staddur hér á landi með landsliðinu sem leikur tvo æfingaleiki við Austurríki um helgina. Mikil spenna var í síðari leik liðanna sem fór fram á mánudagskvöld. Liðin voru jöfn að markatölu eftir báða leikina en Löwen komst áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli. „Þetta mál vann ekki gegn okkur. Við spiluðum mjög vel í þessum leik en við getum sjálfum okkur um kennt að hafa ekki staðið okkur betur í riðlakeppninni og fengið þar af leiðandi auðveldari andstæðing í 16-liða úrslitunum.“ Þórir segist vera ánægður með Dujshebaev sem þjálfara og kann vel við hann. „Hann er fínn kall – auðvitað mikill keppnismaður og blóðheitur, eins og flestir þjálfarar. Hann er fær þjálfari og ég er ánægður með að spila undir hans stjórn.“ Eins og áður hefur verið greint frá mun Þórir yfirgefa herbúðir Kielce í lok tímabilsins og óljóst hvað tekur við. Þórir er þó með nokkur járn í eldinum. „Ég er að vinna í þessum málum með mínum umboðsmanni. Markaðurinn fór ekki á hreyfingu fyrr en eftir að EM í Danmörku lauk,“ segir Þórir sem var lengi á mála hjá Lübbecke í Þýskalandi. Hann segist opinn fyrir því að snúa aftur í þýsku deildina. „Alveg eins. Það er allt opið.“
Íslenski handboltinn Handbolti Mest lesið Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Handbolti Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Handbolti Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Enski boltinn „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Íslenski boltinn „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Íslenski boltinn Fulham - Chelsea | Vinir mætast í Lundúnaslag Enski boltinn Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Formúla 1 Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Enski boltinn Skutu flugeldum að áhorfendum Fótbolti Fleiri fréttir Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 31-33 | Þjóðverjar áttu alltaf svar Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“ Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Viktor Gísli framlengir við Barcelona Stráklingarnir okkar fóru illa með Króata í fjórða sigrinum í röð á EM Costa-bræðurnir eftirsóttu völdu Flensburg Unnu leikina í riðlinum með samtals 32 mörkum og Króatar og Portúgalir bíða Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim Sjá meira