Alþingismenn koma í veg fyrir endurupptöku Gerður Berndsen skrifar 26. apríl 2012 06:00 Alþingismenn koma í veg fyrir að mál dóttur minnar, Áslaugar Perlu, sem myrt var við Engihjalla, verði nokkurn tíma endurupptekið. Samkvæmt 211. gr. er ekki hægt að taka upp morðmál. Hún er aðeins fyrir þann sem er ranglega sakfelldur eða fyrir mun meira brot en…– Það þarf að breyta henni svo hún gildi í öllum málum. Ég sendi Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra tölvupóst 2. október sl. þar sem ég skora á hann að mæla með breytingu á c-lið, 211. gr. Hann sagði mér í gegnum síma: Það er ekki hægt, það verður aldrei gert. Ég hringdi í Álfheiði Ingadóttur í desember og benti henni einnig á c-lið, 211. gr. Hún ætlaði að leggja breytingartillöguna fram á Alþingi. Hún trúði að hún yrði samþykkt fyrir vorið, þurfti fyrst að afla meirihlutafylgis alþingismanna. Það tókst ekki þar sem eftirfarandi grein birtist 29. mars sl. í Smugunni: „Álfheiður Ingadóttir, þingmaður VG, mælti í dag fyrir frumvarpi um breytt fyrirkomulag á afgreiðslu beiðna um endurupptöku dæmdra mála, þannig að óháð stjórnsýslunefnd taki ákvörðun um endurupptöku en ekki Hæstiréttur. Í máli Álfheiðar kom fram að aðeins þrjár endurupptökubeiðnir af 36 sem Hæstarétti bárust á árabilinu 2000-2010 voru samþykktar, 32 var hafnað, ein var óafgreidd. Afgreiðslutíminn var allt frá 26 dögum til 427 daga og niðurstaða Hæstaréttar hvergi birt opinberlega… …Enda þótt dómar Hæstaréttar eigi að heita endanlegir eru alltaf þau tilvik að óska þarf endurupptöku dæmds máls í ljósi nýrra gagna eða annarra lagaskilyrða. Álfheiður rifjaði upp nokkur mál sem hafa vakið tilfinningaþrungna umræðu þegar endurupptöku hefur verið hafnað, Guðmundar- og Geirfinnsmál frá 1997, sem enn er til umræðu, mál sem kennt er við Slippinn í Reykjavík og svokallað Engihjallamál þar sem ung stúlka var myrt. Sagði hún það mál einmitt hafa verið kveikjuna að því að hún fór að grafast fyrir um fjölda endurupptökubeiðna og afdrif þeirra." Ég varð furðu lostin að ekki fékkst meirihluta þingmanna fyrir þessari litlu lagabreytingu. Sérstaklega þar sem hver sem sækir um endurupptöku þarf að leggja fram sönnunargögnin sem rangt voru metin. Þegar alþingismenn samþykktu lög nr. 88/2008 vissu þeir nákvæmlega hvað þeir voru að gera; að koma í veg fyrir að rannsókn máls verði tekin upp að nýju hjá ríkissaksóknara. Fyrir einu og hálfu ári síðan sendi ég öllum alþingismönnum áskorun um réttarfarsdómstól og hringdi síðan í einn þriðja þeirra. Meðfylgjandi voru lög um meðferð sakamála sem ríkissaksóknari braut og öll sönnunargögn í máli dóttur minnar. Þeim var sama. Gallasmekkbuxur dóttur minnar voru upp að hnjám eftir að hann felldi hana í gólfið með því að þvinga þær niður með afli, hún barðist á móti af öllu mætti þannig að hann hélt lim sínum ekki inni í leggöngum hennar. Hann náði ekki að fullkomna glæpinn, með fullnægingu, þá trylltist hann og rotaði hana með því að kýla hana í ennið. Dóttir mín fékk dóm í Hæstarétti fyrir að hafa átt „harkalegt kynlíf" við nauðgara og morðingja sinn og elt hann síðan, nærbuxnalaus, þær voru í rassvasa morðingjans, tættar í sundur á báðum hliðum, án þess að girða upp um sig, út á svalir þar sem hann hafi átt að hafa ýtt henni fram af handriðinu. Þá hefðu gallasmekkbuxur hennar verið um ökkla. Þær voru enn þá upp að hnjám þegar hún fannst. Hámark 5-7 mínútum eftir að hún kom upp á 10. hæð var hún dáin. Hvergi er minnst á eftirfarandi sönnunargagn: Á stigapalli sem er til vinstri við svalir er ljósmynd af veski Áslaugar Perlu, hún steig aldrei fæti þar frekar en á svalirnar, en morðinginn fór þar um. Alþingismenn höfðu nægan umhugsunartíma, styddu þeir tillöguna fengi dóttir mín uppreisn æru og morðingi hennar dóm fyrir allt sem hann gerði henni. Styddu þeir hana ekki hylma þeir yfir óvenju grimmdarlegan glæp og misgjörðir ríkissaksóknara. Þeir völdu hið síðara. Það tók mig mörg ár að finna út að það eina sem þurfti var lítil lagabreyting til að fá endurupptöku málsins, en það dugði ekki til. Alþingismenn komu í veg fyrir það enda tel ég þá siðlausa. Þessi breytingartillaga varðar ekki þjóðaröryggi heldur mannréttindi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðanir Mest lesið Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar