Fágætar bækur boðnar upp 29. nóvember 2012 11:58 Margt verður boðið upp sem heyrir fortíðinni til.
Stjörnufræði handa alþýðu í þýðingu Jónasar Hallgrímssonar er meðal muna á uppboðinu. Fornbókabúðin Bókin er með uppboð á vefnum (www.uppbod.is) í samstarfi við Gallerí Fold. Þar er úrval fágætra bóka, til dæmis fyrsta bók Steinunnar Sigurðardóttur, Sífellur og brautryðjandaverk Björns Th. Björnssonar, Íslenzk myndlist. Þá eru boðnar bækur Þorvalds Thoroddsen, Lýsing Íslands, Landskjálftar á Íslandi og Árferði á Íslandi og tímaritið Verðandi sem Hannes Hafsein gaf út. Rit frá gömlu íslensku prentstöðunum, Hólum, Leirárgörðum og Viðey, verða boðin upp, meðal annars Stjörnufræði, létt og handa alþýðu í þýðingu Jónasar Hallgrímssonar og Leirgerður, sálmabókin frá Leirárgörðum, prentuð 1801, Húspostillur Vídalíns prentaðar á Hólum í Hjaltadal 1744, einnig útgáfa frá 1750. Góð eintök í upprunalegum böndum og með silfurspenslum. Bækurnar verða til sýnis í Bókinni að Klapparstíg 25 til 27, dagana 30. nóvember til 1. desember. Uppboðinu lýkur 2. desember 2012.
Menning Mest lesið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Lífið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Bíó og sjónvarp Líkindi með Grand Theft Auto og Red Dead Redemption Leikjavísir Fleiri fréttir Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira